Lífið samstarf

Minna plast og meiri tenging við upp­runann hjá Nándinni í Firði

Nándin
Nándin í Firði sameinar fjölbreytt vöruúrval og skýra hugsjón um minni umbúðanotkun, endurnýtingu og náið samstarf við smáframleiðendur.
Nándin í Firði sameinar fjölbreytt vöruúrval og skýra hugsjón um minni umbúðanotkun, endurnýtingu og náið samstarf við smáframleiðendur.

Íslenskir handverksostar, sveitamjólk á glerflöskum, glútenfrítt bakkelsi og sápur til áfyllingar. Matarbúðin Nándin í Firði sameinar fjölbreytt vöruúrval og skýra hugsjón um minni umbúðanotkun, endurnýtingu og náið samstarf við smáframleiðendur. Verslunin er meðal nýrra viðbóta í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði.

„Okkar sýn er að það eigi að vera hægt að versla allar helstu nauðsynjar heimilisins plastlaust,“ segir Þóra Þórisdóttir myndlistarmaður, sem stendur ásamt fjölskyldu sinni að Matarbúðinni Nándinni.

„Hjá okkur geta neytendur nálgast allar helstu nauðsynjar heimilisins án þess að skilja eftir sig fjöll af plastúrgangi og innbyrða plastefni. Hér finnur fólk einstakar gjafavörur úr íslenskri náttúru og matvæli beint frá smáframleiðendum,“ segir Þóra.

Íslensk náttúra lagði grunninn

Upphafið má rekja sextán ár aftur í tímann þegar Þóra stofnaði Urta Islandica. Þar fóru saman áhugi hennar á hönnun, virðing fyrir náttúrunni og löngun til að fanga bragð íslenskra jurta, berja og salts í vörum fyrir heimilið og til gjafa.

Vöruúrvalið hefur síðan vaxið jafnt og þétt og nýverið bættist við eigin súkkulaðideild. Þar mætast íslenskar jurtir og vönduð hráefni í handverkssúkkulaði sem nú ma finna í hillum Nándarinnar ásamt öðrum framleiðsluvörum Urta Islandica.

„Nándin hóf göngu sína sem fimm ára tilraunaverkefni á Austurgötu 47 í Hafnarfirði. Markmiðið var að kanna hvort hægt væri að reka matvöruverslun án hefðbundinna plastumbúða. Viðskiptavinir tóku hugmyndinni það vel að með tímanum varð húsnæðið of lítið,“ útskýrir Þóra.

Flutningurinn í Fjörð í byrjun árs 2026 í 300 fermetra húsnæði skapaði því tækifæri til að byggja áfram á reynslunni.

Umbúðirnar hluti af hugsjóninni

Þóra segir umbúðavalið snerta fleiri þætti en sorpmagnið eitt. „Hugmyndafræðin snýst nefnilega ekki bara um að bjarga umhverfinu og minnka sorpmagn og plast, heldur spilar lýðheilsa gríðarlega stórt hlutverk.“

Hún segir áhyggjur af örplasti og efnum sem geta borist úr umbúðum í matvæli séu meðal þess sem liggur að baki áherslunum. Jafnframt er horft til uppruna og samsetningar varanna. Verslunin er ekki með formlega lífræna vottun en leggur áherslu á náttúruleg hráefni og vandað vöruval.

„Vörurnar koma ýmist í stórpakkningum frá framleiðendum eða eru pakkaðar hjá fyrirtækinu. Við notum meðal annars pappírsumbúðir, sellófan- og vakúmumbúðir úr vottuðum niðurbrjótanlegum efnum og gler sem viðskiptavinir geta skilað eða endurnýtt.“

Þannig nær hugsunin bæði til þess sem fer í innkaupapokann og umbúðanna sem sitja eftir þegar heim er komið.

Frá sveitabænum á matarborðið

Samstarf við íslenska bændur og smáframleiðendur setur sterkan svip á úrvalið. Í mjólkurkælinum má finna ófitusprengda sveitamjólk á glerflöskum frá Erpsstöðum og Biobú, óhrært sveitaskyr, jógúrt og rjómaís. Einnig er boðið upp á laktósafría mjólk frá Örnu og D-vítamínbætta mjólk frá MS.

Ostaúrvalið gefur sælkerum tilefni til að staldra við. Þar eru handverksostar frá Erpsstöðum og Hvammshlíð, geitaostar frá Háafelli í Reykholtsdal og valdir ostar frá MS í plastlausum umbúðum. Veganostar eiga einnig sinn stað í borðinu.

Í kjötúrvalinu má meðal annars finna lífrænt lambakjöt frá Sölvanesi í Skagafirði, þar á meðal hakk, gúllas, steikur og birkireykt bjúgu. Frá Miðhúsabúinu á Ströndum kemur sagað lambakjöt og frá Ytra-Hólmi á Akranesi koma vinsæl kofabjúgu og hangikjötsálegg.

Fyrir jólin bætist tvíreykt og grafið kjöt frá Ytra-Hólmi við úrvalið og með því má bera fram Tótu-flatkökur úr Brælubakaríinu á Vatnsleysuströnd.

Þá fást ósprautað íslenskt alifuglakjöt, nautahakk og grísahakk frá völdum smábændum, auk pylsna og áleggs frá Pylsumeistaranum. Sjávarfangið er sömuleiðis fjölbreytt, meðal annars einfrosnar rækjur frá Kampa á Ísafirði og hraðfrystur ferskur og reyktur íslenskur fiskur.

Kjöti og fiski er pakkað í skammta fyrir tveggja til fjögurra manna heimili með það að markmiði að auðvelda innkaupin og draga úr matarsóun.

Bakkelsi fyrir fjölbreyttar þarfir

Við flutninginn í Fjörð blasti við að rótgróið bakarí væri þegar í næsta nágrenni. Nándin mótaði því sérstöðu sína með áherslu á glútenfrítt og vegan bakkelsi.

Það er handgert í eigin glútenfríu eldhúsi Urta Islandica í Keflavík. Markmiðið er að vörurnar höfði til allra sem kunna að meta gott bakkelsi, um leið og þær auka valkosti fólks sem þarf að huga sérstaklega að innihaldsefnum.

Einnig fæst handverksbakkelsi frá Björnsbakaríi og brauð og kleinur eru bökuð á staðnum. Í ísborðinu er mjólkurlaus og glútenfrír ís sem hægt er að fá í boxi eða glútenfrírri veganvöfflu.

Fyrir þá sem vilja grípa með sér máltíð er boðið upp á kjúklingasalat og heimagerðar frosnar pizzur á glútenfríum botni, einnig í veganútgáfu.

Gamli sápubrúsinn fær nýtt hlutverk

Hringrásarhugsunin nær líka til hreinlætisvara. Viðskiptavinir geta komið með eigin umbúðir, fyllt á og greitt eftir vigt fyrir innihaldið. Meðal þess sem fæst til áfyllingar eru sápur og hárvörur frá Sóley Organics.

Gamall plastbrúsi getur því áfram þjónað tilgangi sínum. Endurnýting hans fellur vel að markmiðinu um að nýta það sem þegar er til.

Í hillunum eru einnig tannkrem, baðsalt, borðtuskur og viskustykki. Jafnvel salernispappírinn hefur fengið sérstaka útfærslu: Papco pakkar honum í pappírsumbúðir fyrir Nándina.

Núna fyrir jólin verða jafnframt í boði fjölbreyttar gjafakörfur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þar fær upphaflega hugsjón Þóru áfram að njóta sín: fallegar vörur, íslenskt hráefni og bragð sem tengir fólk við náttúruna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.