Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar 30. október 2026 08:16 Nýafstaðnar kosningar í Ísrael sýna að það er ekki neinna stefnubreytinga að vænta þótt önnur ríkisstjórn taki við. Níu af hverjum tíu atkvæðum voru greidd flokkum sem styðja síonismann, hernámið, aðskilnaðarstefnuna, þjóðernishreinsanir á Vesturbakkanum og þjóðarmorðið á Gaza. Kosningarnar sýna að þjóðarmorðið er „lýðræðislegt“ val, þ.e. mikill meirihluti kjósenda styður áframhaldandi kúgun og morð sem hafa það markmið að eyða lífsskilyrðum sjö milljón Palestínumanna sem eru undir hæl síonistaríkisins. RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS VEIT - ALÞINGISMENN VITA Ísraelsher fremur þjóðarmorð í Palestínu. Því getur enginn mótmælt, við vitum þetta öll, allur heimurinn horfir á. Ríkisstjórn Íslands horfir á, ríkisstjórn Íslands veit að ríki sem Ísland viðheldur stjórnmálasambandi við fremur þjóðarmorð. Alþingismenn vita að Ísrael fremur þjóðarmorð. Íslendingar vita að Ísland stundar viðskipti og viðheldur stjórnmálasambandi við þjóð sem fremur þjóðarmorð. ALDREI AFTUR? Þjóðarmorð er ekki lagatæknilegt fyrirbrigði. Þjóðarmorð er glæpur og fyrir glæpi á að refsa. Ekkert ríki refsar Ísrael sem fremur þjóðarmorð. Hundrað fimmtíu og fjögur ríki hafa undiritað Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948. Ísland er eitt þeirra. Ríki Evrópu hafa tekið sáttmálann í sín lög, einnig Ísland. Hugtakið þjóðarmorð (e. Genocide) heitir hópmorð í íslenskum lögum og varð til í eftirleik heimstyrjaldarinnar sem lauk 1945. „Lög um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði“ tóku gildi hér á landi 2018. Skilgreining laganna á hópmorði er sú sama og er í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948. Sáttmálinn um þjóðarmorð var fyrsti mannréttindasáttmálinn sem Allsherjarþingi SÞ samþykkti og var yfirlýsing alþjóða samfélagsins um að voðaverk heimsstyrjaldarinnar myndu „aldrei aftur“ líðast. SKYLDUR ÞJÓÐA Samkvæmt þjóðarétti og Sáttmála SÞ bera öll ríki ríka lagalega skyldu til aðfyrirbyggja og refsa fyrir þjóðarmorð. Þessi skylda hvílir á ríkjum óháð því hvort þau hafi staðfest sáttmálann sjálfan, þar sem bannið við þjóðarmorði og skyldan til að hindra það telst til æðri reglna þjóðaréttar (jus cogens) sem skuldbindur öll ríki heims (erga omnes). Þessi skylda krefst þess að ríki, ein sér eða í samstarfi við önnur ríki, beiti öllum tiltækum og lögmætum ráðum sem þau hafa yfir að ráða svo sem diplómatískum þrýstingi, efnahagslegum þvingunum og einangrun á sviði menningar, vísindasamstarfs og íþrótta gegn hinu brotlega ríki. ÞAÐ ER ÞJÓÐARMORÐ OG ÞJÓÐARMORÐ SKAL ÞAÐ HEITA Eftir tveggja ára rannsóknir birti óháð nefnd Sameinuðu þjóðanna skýrslu í september 2025 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að aðgerðir Ísraels á Gaza uppfylltu skilyrði þjóðarmorðs. Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðimanna (International Association of Genocide Scholars) hafa ályktað að stefna og hernaðaraðgerðir Ísraels á svæðinu uppfylli skilyrði þjóðarmorðs samkvæmt sáttmála SÞ. Amnesty International gaf út skýrslu í desember 2024 þar sem samtökin komust að þeirri niðurstöðu að Ísrael hefði framið þjóðarmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Meðal samtaka sem hafa lýst stríði Ísraels gegn Palestínu sem þjóðarmorði eru: Lemkin-stofnunin til varnar þjóðarmorði (heitir í höfuðið á manninum sem mótaði hugtakið genocide), Genocide Watch, Human Rights Watch, B´T Selem og Læknar án landamæra. Á YKKAR VAKT! Alþjóðadómstóllinn í Haag (ICJ) hefur úrskurðað hernám Ísraels í Palestínu ólöglegt og að þeim beri að yfirgefa svæðin og greiða skaðabætur. Dómstóllinn hefur einnig lýst því að mögulega eigi þjóðarmorð sér stað með aðgerðum Ísraela og að þeim beri að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir aðgerðir sem falla undir þjóðarmorðssáttmálann, tryggja að herinn fremji ekki slík brot, refsa þeim sem hvetja opinberlega til þjóðarmorðs og hleypa neyðaraðstoð óhindrað inn á svæðið. Ísraelar hafa hunsað fyrirskipanir dómstólsins og hert aðgerðir. Nú liggur fyrir að dómstóllinn mun ekki birta dómsorð sitt fyrr en árið 2030. Hver verður staðan þá - hversu langt mun Ísrael ná í þjóðarmorðinu meðan íslensk stjórnvöld gera ekkert annað en bíða eftir þessum úrskurði? Munu stríðsglæpamaðurinn Netanyahu eða barnamorðinginn Eisenkot fá skotleyfi frá ríkisstjórn Íslands og Alþingi og halda áfram morðum í Gaza, á Vesturbakkanum, í Líbanon og Sýrlandi? Þetta er að gerast á vakt stjórnmálamannanna sem sitja á Alþingi - enginn er undanskilinn og skömmin er allra! Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun