Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar 30. október 2026 08:31 Af hverju unga fólkið? Inngangur Mikil umfjöllun hefur verið upp á síðkastið um talsverðan áhuga og tilfærslu ungu kynslóðarinnar yfir í hægrisinnuð gildi og skoðanir. Sumir hafa talað fyrir því að stöðva þurfi þessa þróun meginstraumsins, á meðan eldri íhaldshyggjumenn taka henni fagnandi. Er hægt að færa ígrunduð rök fyrir því að þetta sé náttúruleg og jákvæð þróun í ljósi aðstæðna? Í þessari grein verður gefin innsýn í hugsun unga hægrifólksins, nokkur dæmi talin upp um íhaldssöm gildi þeirra og hvaða menningarlegu orsök eru að baki. Virði unga Íslendingsins í dag Það hefur aldrei í manna minnum verið jafn hátt fasteignaverð á móti greiddum meðallaunum. Meðalaldur fyrstu kaupenda hækkar og hækkar, og þeir sem hafa ekki tök á að leigja frekar neyðast til að hanga heima með gamla settinu lengur en áður tíðkaðist. Á sama tíma eyðir ríkið milljörðum árlega í hýsingu og þjónustu hælisleitenda, verðbólga hækkar og raunhæfasta leið fyrir tilvonandi sjálfstæða kaupendur á Íslandi er að láta ríkið verða að meðeiganda heimilisins með hlutdeildarláni. Það ýtir svo vissulega undir að fasteignaverð hækki enn meir. Atvinnumarkaðurinn er svo önnur skotgröf, og þeir mörgu sem fá ekki allt í hendurnar vita að framtíð vinnufólks er á óvissustigi. Iðnvæðingin heldur áfram af fullum krafti, og ber þar gervigreind einna mest af. Áhyggjur um þróun gervigreindar varða alls kyns starfsstéttir, frá listamönnum til lögfræðinga. Framleiðsla og sköpun er flutt í hendur fyrirtækja úti í heimi sem annað dæmi. Að lækka alla innflutningstolla og versla vörur frá Kína á gjafverði (engin loforð um endingargildi) hljómar sem freistandi skammtímatilbreyting, en hvað verður um okkar atvinnutækifæri ef okkar framleiðsla og sala leggst niður á móti? Einnig er innflutt vinnuafl enn að aukast. Það er auðvitað óraunhæft að stöðva allan innflutning erlendra aðila. Fólk hefur alltaf í einhverjum mæli viljað flytja og vinna annars staðar en í sínu heimalandi, og stundum er það skilyrði vegna náttúru vinnunnar, en einhvers staðar þarf að líta til hagsmuna þeirra sem þurfa nú þegar að komast á vinnumarkað hér heima fyrir. Oft er talað um að Íslendingar vilji ekki vinna, og sérstaklega ungt fólk. Sú staðhæfing að unga fólkið nenni ekki að leggja neitt af mörkum í að snúa hjólum atvinnulífsins er staðhæfing sem bókstaflega má rekja gegnum hverja kynslóð alla leið aftur í forn rit bronsaldarinnar fyrir þúsundum árum. Hægt er að sanna fram á hið andstæða; ungt fólk sækir um en kemst í sífellt færri stöður því við annaðhvort vélvæðum eða flytjum inn ódýrara vinnuafl í auknum mæli. Það þarf engan hagfræðing til að átta sig á því að stöðug útskipting íslenska vinnumannsins fyrir þann erlenda á lægra kaupi skapar aðstæður þar sem vinnuveitandi getur nýtt sér aðstæður og ráðið þá bara fleiri útlendinga. Þetta skapar neikvæðar afleiðingar fyrir báðar hliðar. Hagkerfið þjáist vegna minni veltu fjárs sem skýrist af lægra kaupi, og í mörgum tilfellum er stór hluti launa sem erlent vinnuafl fær sendur beint í heimalandið og úr okkar höndum. Erlendi vinnumaðurinn þarf sömuleiðis að bíta í það súra epli að hann verður sennilega ekki ráðinn nema hann sætti sig við þessar forsendur. Erlendur iðnmeistari getur svo átt von á að vinna fyrir íslenskum nemalaunum. Er einhver siðferðislegur ávinningur sem við hljótum af því að horfa á útlendinga sem ódýrt vinnuafl fyrir okkar skítverk? Er það skilgreining góðrar manneskju að halda öllu opnu fyrir þann möguleika? Hvað þá í tilfellum þar sem aðilinn þarf ekki yfir höfuð að vinna, heldur verður hann hýstur, fæddur og klæddur á kostnað skattgreiðanda, ef hann lærir á kerfið góða? Það finna flestir til samkenndar með þeim sem eiga bágt, og í fullkomnum heimi myndi engan skorta neitt, en það mun engin þjóð lifa af sem getur ekki forgangsraðað þörfum heimamanna. Kynjabaráttan - til góðs eða ills? Feðraveldið margumrædda er ein birtingarmynd meints ofbeldis sem karlmenn, allir sem einn, meðvitað eða ómeðvitað, eiga að hafa átt sinn þátt í að halda uppi frá fæðingu. Einhvers konar náttúrulegar eða yfirnáttúrulegar orsakir virðast hafa gert karlmönnum kleift að halda konum í ákveðinni samfélagslegri gíslingu frá upphafi mannkynsins. Sem dæmi má nefna að samkvæmt femínískum fræðiritum er vísvitandi verið að borga körlum meira en konum í sama starfi (burtséð frá þeirri staðreynd að þeir vinna að jafnaði fleiri stundir, biðja oftar um launahækkun, stöðuhækkun, o.s.frv), íslenskt tungumál er hannað til að vera of karllægt, og jafnvel beita menn konur ofbeldi með öráreiti, eins og að sitja of gleitt, sökum munar á líkamsbyggingu. Þessi hugmyndafræði er í fullri alvöru kennd á öllum skólastigum, fólk í opinberum og einkavæddum geirum fær laun fyrir að viðhalda þessum áróðri, og síðustu áratugi hefur þetta verið innlimað í nýju þjóðtrú pólitískrar rétthugsunar. Einstæðar mæður hafa aldrei verið jafn margar og í dag, og ungir strákar aldrei alist upp í jafn kvenlægu umhverfi, með kvenkyns kennara í meirihluta, í gegnum skólagöngu sína þar sem þeir upplifa skertari lesskilning og þrótt í námi en bekkjarsystur þeirra, í námi sem gerir þá tilbúna fyrir háskólagöngu sem konur sækja í hærra hlutfalli en þeir fyrir vinnu í vísindum eða stjórnarstöðum sem enn og aftur konur annaðhvort hafa náð jöfnu framlagi eða meirihluta. Í allri verklegri vinnu ríkir enn mikill karllægur meirihluti, og eru karlar mun líklegri til að slasast eða deyja í vinnunni. Sumir myndu benda á mögulegan líkamlegan mun eða jafnvel náttúruleg kynjahlutverk sem útskýringu fyrir því af hverju konur flykkjast ekki allar að svona vinnu, en það er ábyggilega hægt að vísa þeim skýringum íhaldsins á bug með því svari að það sé líka, ofan á allt annað, körlum að kenna. Í gegnum þroskaferli unga mannsins skal aldrei þreytast á að minna hann á að hann sé uppistaða alls ills í heiminum - vegna óáþreifanlegra afla feðraveldisins - og að róttækar breytingar þurfi að verða á eitraðri hegðun og náttúru þeirra svo mannkynið (eða kvenkynið, þess heldur) geti loksins farið að ná einhverjum framförum. Viðbrögð nútímakarlmannsins við því sem vægast samt mætti kalla neikvæða endurgjöf í garð tilveru hans frá upphafi mótunar ættu þá kannski ekki að koma mörgum á óvart; hann upplifir sig týndan og tilgangslausan, náttúrulegt hlutverk og framlög hans til mannkynssögunar er smánað, staða hans í fjölskyldueiningunni lítillækkuð og í rauninni er það eina sem ætlast er af honum að hann líkist og hegði sér sem hitt kynið. Hans þátttaka sem hann sjálfur virðist óþörf. Hvað með konur? Unga konan fær hins vegar ekkert mikið betri díl í hendurnar í okkar póstmódernísku útópíu. Frá ungum aldri er sífellt ýjað að henni drögum að einhvers konar kynjastríði. Hún hefur nefnilega alltaf haft það svo bágt undir járnhnefastjórn vonda karlmannsins sem, samkvæmt nútímafræðum, gerði það að sínu helsta lífsmarkmiði að halda henni niðri. Hennar hlutverk í fjölskyldumyndun er niðurlægt, og hún á að líta niður á þær konur sem tileinka sér það hlutverk yfir önnur. Eina leiðin til að frelsast er að afneita karlmanninum og eltast frekar við líf sem einkennist af sífelldri þörf á sjálfstæði, eða frekar viðurkenningu á útgáfu þess í nútímalegum og iðnvæddum skilningi; starfsferill, frami, og að kjósa frekar yfirmann en eiginmann er nýja hlutverk hennar. Og hvaða gildi lærir hún? Hún á að sanna fram á að hún sé nákvæmlega eins og karlmaður, í verki, náttúru og einkennum. Að barneignir, tilkoma lífs á jörðu, séu ekkert nema smávægilegur eiginleiki sem hún er tæknilega séð fær um að framkvæma en ætti ekki að eyða of mikilli orku í að eltast eftir. Offjölgun, úrelt hlutverk, loftslagið… Vinsamlegast veldu neikvæða tengingu, hættu að pæla í þessu og farðu að gera þig að nothæfu vinnuafli, góða! Henni er kennt að kyngering og klámvæðing konunnar sé ýmist góð eða slæm eftir hvort hún geti grætt pening á eigin líkama, að vændi sé göfugur og hagkvæmur starfskostur og í rauninni á konan ekki að vera neitt annað en söluvara (en á sama tíma rekstrarstjóri). Þetta er merkileg þróun í sífellt meira torskiljanlegum femínisma sem virtist berjast fyrir því að fyrirbyggja þessa sömu klámvæðingu yfir höfuð fyrir stuttu síðan. Þennan boðskap hafa ungar konur verið neyddar til að innbyrða, og í verstu tilfellum eru tilfelli þar sem unglingsstelpur hafa beðið eftir deginum á fullorðinsári sem þær máttu stofna OnlyFans reikning til að byrja að selja sig fyrir aukapening. Öfgar eða almenn skynsemi? Á endanum segir okkar kynslóð að nú sé nóg komið og við neitum að leggjast undir gjörsamlegt siðrof og hrun vestrænnar menningar. Við viljum væntanlega að einhver gildi og reglur tryggi það að menning og framtíð okkar stefni ekki í verri volæðisheim en í óhugnalegasta vísindaskáldskap. Ung pör neyðast til að bíða lengur og lengur eftir því að skapa fjölskyldu vegna fyrrnefndra fjárhagsörðugleika nútímasamfélags. Önnur eru sannfærð um að sleppa því yfir höfuð og fá sér bara kött eða plöntu í staðinn. Þær hugmyndir sem teljast í daglegu máli vera frá “öfga-hægrinu” voðalega eru langflestar venjulegar væntingar til að viðhalda heilbrigðu samfélagi, væntingar sem voru normið fyrir 20 árum. Kynin tvö eru jafn mikilvæg og þurfa hvort annað. Það er ekkert að því að hafa þjóðarstolt. Við eigum okkar rétt á því að samfélagið sem við eyðum lífsorku okkar í að byggja muni bera ávöxt fyrir okkur og næstu kynslóðir. Rétt skal vera rétt, sama hvað er í tísku. Nýstárleg hugmyndafræði um að flestir séu eilíf fórnarlömb á einhverja vegu, að inngrip stjórnvalda þurfi til að halda öllum föstum í sömu skorðum í nafni jafnræðis og að sumir séu jafnari en aðrir var áhugaverður fasi, sem þó hefur valdið miklum skaða. Þessi skrípaleikur á kostnað skynseminnar, jafnar útkomur í staðinn fyrir jöfn tækifæri, óháð framlagi eða getu, virkar ekki svo spennandi lengur þegar það er komið að okkur að bera framgang þjóðarinnar á okkar herðum, með öllum skuldum sem fylgja. Höfundur er varamaður í stjórn ungliðahreyfingar Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun