Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Atli Ísleifsson skrifar 29. október 2026 10:01 John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. HÍ Sænski þýðandinn, ritstjórinn og rithöfundurinn John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin í ár. Rektor Háskóla Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra munu afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 12. nóvember næstkomandi og mun John Swedenmark flytja erindi af því tilefni.
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. „Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, starfrækt undir merkjum UNESCO, efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar, en hún er velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO (Mennta, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna). John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. Hann nam norræn tungumál við háskólann í Uppsölum og hefur í áratugi verið helsti núlifandi þýðandi íslenskra bókmennta á sænsku, jafnframt því sem hann þýðir bókmenntir úr fleiri tungumálum, meðal annars samísku, frönsku og ensku. John er einnig mikilvirkur höfundur ritgerða um bókmenntir og menningargagnrýni. Auk rúmlega 50 útgefinna þýðinga liggja eftir hann ritgerðasöfnin Om Kritikmaskinen och andra texter (2009) og Baklängesöversättning och andra texter (2011). John hefur jafnframt lagt lóð á vogarskálar bókmenntafélaga og tímarita. Árin 2004–2015 var hann menningarritstjóri LO-Tidningen/Arbetet; hann situr í ritstjórn Divan, tímarits um sálgreiningu og menningu; undanfarin 25 ár hefur hann verið sekreterare Gunnar Ekelöf-bókmenntafélagsins, og frá árinu 2015 hefur John setið í ritstjórn tímaritsins Karavan sem gefur út skáldskap frá öllum heimshornum. John Swedenmark hefur verið nefndur sendiherra íslenskra bókmennta í Svíþjóð og sæmdur viðurkenningum á borð við Fálkaorðu Forseta Íslands (2018), hlotið þýðingaverðlaun Sænsku akademíunnar (2019), heiðursverðlaunin Orðstír (2020), verðlaun Letterstedtska félagsins (2021), og þýðingaverðlaun akademíunnar Samfundet De Nio (2026). Fyrri handhafar Vigdísarverðlaunanna eru Ryan Eyford (2025), sagnfræðingur og dósent við University of Winnipeg, Asifa Majid (2024), sálfræðingur, málfræðingur og prófessor í hugrænum vísindum við Oxford-háskóla, Anne Carson (2023), skáld og sérfræðingur í klassískum fræðum og nýbakaður handhafi bókmenntaverðlauna Nóbels, Juergen Boos (2022), forstjóri Bókastefnunnar í Frankfurt, grænlenska ljóðskáldið og málvísindakonan Katti Frederiksen (2021), og færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen (2020). Í stjórn Vigdísarverðlauna 2026 sitja Birna Bjarnadóttir, rannsóknalektor við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands (formaður stjórnar), tilnefnd af rektor Háskóla Íslands, Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, og Páll Valsson, rithöfundur og útgáfustjóri bókaforlagsins Bjarts, tilnefndur af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu Háskóla Íslands, starfar með nefndinni,“ segir í tilkynningunni.
Háskólar Vigdís Finnbogadóttir Svíþjóð Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Fleiri fréttir Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Sjá meira