Innlent

Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þorbjörg Sigríður kynnir breytingarnar eftir mál Helga Magnúsar.
Þorbjörg Sigríður kynnir breytingarnar eftir mál Helga Magnúsar.

Dómsmálaráðherra hefur kynnt nýtt frumvarp um að fella niður embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara. Þess í stað verði ríkissaksóknara og héraðssaksóknara heimilt að velja sér staðgengla úr hópi saksóknara við embættin til allt að fimm ára í senn en lagt er til að áfram verði notast við starfsheitin.

Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara yfir staðgenglana. Ráðherra kynnti drögin að lagabreytingunum í fyrra en enginn gegnir embætti vararíkissaksóknara eftir að Helgi Magnús Gunnarsson lét af embættinu eftir langan aðdraganda. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari hefur verið í leyfi vegna tímabundinna starfa við Eurojust.

„Ég tel að æviskipanir eigi ekki lengur rétt á sér nema örfá mjög mikilvæg embætti. Slík forréttindi eiga að heyra fortíðinni til. Við þurfum að færa stjórnsýsluna nær nútímanum og nær því sem er skynsamlegt,“ var haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í fréttatilkynningu í september í fyrra þegar drögin voru birt í samráðsgátt.

Í samráðsgátt nú segir að markmið frumvarpsins sé að einfalda stjórnfyrirkomulag embættanna og styrkja sjálfstæði ákæruvaldsins með því að fela ríkissaksóknara og héraðssaksóknara sjálfum að velja sína næstráðendur í stað þess að ráðherra skipi í þau embætti. Gert er ráð fyrir að lögin öðlist þegar gildi, en nýtt fyrirkomulag við val á staðgengli héraðssaksóknara og niðurlagning embættis varahéraðssaksóknara taki þó ekki gildi fyrr en það embætti verður næst laust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×