Enski boltinn

Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við við­talið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erling Haaland fagnar marki sínu í leiknum á móti Liverpool sem var sá fyrsti eftir að dómurinn féll.
Erling Haaland fagnar marki sínu í leiknum á móti Liverpool sem var sá fyrsti eftir að dómurinn féll. Getty/Robbie Jay Barratt

Norska sjónvarpsstöðin TV2 átti möguleika á að fá einkaviðtal við Erling Braut Haaland en afþakkaði boðið. Ástæðan voru fjárhagsleg reglubrot City.

Haaland er stærsta íþróttastjarna Norðmanna og ein stærsta íþróttastjarna heims og því eftirsóttur viðtalsgestur. Forráðamenn TV2 voru aftur á móti ekki sáttir við þær hömlur sem þeim voru settar.

Aðrir norskir fjölmiðlar fjalla um að ekkert hafi orðið af viðtalinu við Haaland.

„Við lentum í ákveðnu atviki í tengslum við síðasta landsleikjahlé þar sem skilyrðið fyrir viðtali við Haaland var að við spyrðum ekki um dóminn yfir Manchester City. Því höfnuðum við,“ sagði Vegard Jansen Hagen, íþróttaritstjóri TV 2, við Verdens Gang.

Sambandið staðfestir söguna

Norska knattspyrnusambandið staðfestir einnig söguna og greinir frá því að fjölmiðlafulltrúi Haalands hafi tekið þátt í umræðunum.

Á meðan á umræddri landsliðssamveru stóð varð ljóst að vinnuveitandi Haalands, Manchester City, hefði verið fundinn sekur um 114 brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Í kjölfarið átti Haaland að hitta norska fjölmiðlamenn í heild sinni en NFF ákvað að breyta áætlununum.

Svarið var sem sagt nei

Það var í þessu ljósi sem TV 2 fékk tækifæri til að ræða við stjörnuframherjann. Svarið var sem sagt nei.

„Það hefði verið blaðamennskuleg vanræksla að sneiða hjá þeim augljósu spurningum sem áhorfendur okkar vildu fá svör við. Við áttum í skýrum samskiptum við NFF um þetta, þar sem við afþökkuðum,“ sagði íþróttaritstjóri TV 2 við VG.

City hefur áfrýjað sakfellingunni vegna reglubrotanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×