Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sindri Sverrisson skrifar 28. október 2026 10:31 Það má fastlega reikna með því að Orri Óskarsson sé á ratsjánni hjá stórum félögum í Evrópu. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina í janúar. Íslandsvinurinn David Moyes er sagður hafa hug á að krækja í framherjann sem verið hefur sjóðheitur með Real Sociedad að undanförnu.
Vefmiðillinn Teamtalk fullyrðir þetta í grein í dag. Miðillinn kveðst hafa heimildir fyrir því að Everton-menn fylgist náið með framgöngu Orra nú þegar verið sé að vega og meta kosti í framherjamálum áður en félagaskiptaglugginn opnast í janúar. Everton are considering a January move for Iceland captain Orri Oskarsson 🇮🇸🔥 The 22-year-old striker has been in impressive form for Real Sociedad, and Everton are among several clubs showing interest ⤵️ @GraemeBailey | #EFC https://t.co/cSAc1hDxb9— TEAMtalk (@TEAMtalk) October 28, 2026 Everton veitir ekki af framherja eftir að Beto var seldur til Fiorentina í sumar og enginn fenginn í hans stað. Félagið ætlaði að fá Folarin Balogun frá Monaco en þær áætlanir duttu upp fyrir á síðustu stundu. Því hefur Thierno Barry verið eini hreinræktaði framherjinn í hópnum á leiktíðinni. Teamtalk segir að fleiri úrvalsdeildarfélög, Tottenham, Newcastle, Sunderland og Brentford, fylgist einnig með Orra en ekki kæmi á óvart ef framganga hans að undanförnu hefði vakið athygli. Orri hefur nú skorað í þremur leikjum í röð fyrir bikarmeistara Real Sociedad, gegn Málaga og Levante í spænsku deildinni og gegn Lilleström í Evrópudeildinni. Áður hafði hann skorað þrjú mörk og átt tvær stoðsendingar í leikjunum fjórum í síðustu landsleikjatörn. Orri, sem er uppalinn hjá Gróttu, kom til Real Sociedad fyrir rúmum tveimur árum fyrir metfé í sögu FC Kaupmannahafnar, eða 20 milljónir evra. Hann hafði þá verið leikmaður FCK frá árinu 2020.
Enski boltinn Everton FC Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Sjá meira