„Ég sá fólk gráta úr gleði“ Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 12:00 Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur aldeilis gengið vel á hans fyrsta ári í Færeyjum. Vísir/Sigurjón Sigurður Ragnar Eyjólfsson fagnar færeyskum meistaratitli með liði sínu NSÍ Runavík. Liðið varð meistari í gær eftir eitt besta tímabil í sögu félagsins. „
Ég sá fólk gráta úr gleði, ég sá fleiri stuðningsmenn koma á völlinn en búa í öllu bæjarfélaginu okkar, ég sá stúkuna okkar fulla 30 mínútum fyrir leik, ég sá gula og svarta, stolta, spennta og glaða, ég sá trommur, blys og flugeldasýningu, ég sá börn sem eignuðust fyrirmyndir,“ skrifar Sigurður Ragnar meðal annars á Facebook þennan mánudagsmorguninn eftir frækinn árangur hans manna. NSÍ nægði stig gegn HB frá Þórshöfn í leik gærdagsins og 1-1 jafntefli liðanna tryggði titilinn. Peter Knudsen var hetja NSÍ þar sem hann skoraði jöfnunarmark á 84. mínútu. Sjá fagnaðarlætin hér að neðan. NSÍ er meistari í fyrsta sinn í 19 ár og aðeins í annað sinn í sögu félagsins. Sigurður Ragnar stýrði liðinu þá jafnframt til titils á hans fyrsta ári í Færeyjum. Færsla Sigurðar Ragnars á Facebook: Hvað upplifðir þú í gær Siggi Raggi? - Ég sá fólk gráta úr gleði, ég sá fleiri stuðningsmenn koma á völlinn en búa í öllu bæjarfélaginu okkar, ég sá stúkuna okkar fulla 30 mínútum fyrir leik, ég sá gula og svarta, stolta, spennta og glaða, ég sá trommur, blys og flugeldasýningu, ég sá börn sem eignuðust fyrirmyndir, ég sá hetjur gefa eiginhandaráritanir, stráka verða að mönnum, ég sá unga menn verða að meisturum, ég sá minningar sem verða til alla ævi hjá heilu bæjarfélagi, ég sá hundruð manna missa sig við lokaflautið og hlaupa inná völlinn með mér og tryllast af fögnuði, ég sá fólk missa alla stjórn á tilfinningunum sínum, ég sá okkur lenda undir en berjast og jafna metin, líkt og lífið er sjálft. Ég sá allt liðið okkar taka þátt í jöfnunarmarkinu. Ég sá okkur ná markmiði sem við settum saman fyrir einu ári síðan þegar enginn hafði trú á okkur. Ég hef séð lið sem gefst aldrei upp og uppskar eftir því. Besta tímabil í sögu NSÍ er staðreynd. Til hamingju NSÍ! Saman stöndum við sterk! Við erum meistarar!
Færeyski boltinn Færeyjar Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira