Innlent

Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. vísir/einar

Fyrirhuguð breyting dómsmálaráðherra á umdæmum lögreglunnar hefur sætt töluverðri gagnrýni víðs vegar um landið. Ráðherrann segir að skoðanir verði alltaf skiptar en þessi breyting er niðurstaða ítarlegrar greiningarvinnu. Hvorki lögreglumönnum né starfsstöðvum verði fækkað.

Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýni. Lögreglufélag Vestfjarða lýsir yfir áhyggjum af fækkuninni þar sem um sé að ræða afar krefjandi starfssvæði. Þá leggjast starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra einnig gegn hugmyndunum þar sem ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess og hvernig sameiningin muni bæta löggæslu.

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum voru birt í byrjun mánaðar í samráðsgátt. Þar mótmælir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar harðlega áformunum þar sem hún feli í sér umfangsmikla miðstýringu sem ógni staðbundinni þekkingu, nálægð við íbúa og mikilvægum tengslum lögreglu við sveitarfélög og viðbragðsaðila.

„Það vekur sérstaka furðu að Vesturland skuli samkvæmt tillögunni sameinast Norðausturlandi í eitt víðfeðmt lögregluumdæmi. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur óásættanlegt að færa yfirstjórn löggæslu svo langt frá nærsamfélaginu án þess að sýnt hafi verið fram á skýran ávinning fyrir þjónustu og öryggi íbúa,“ segir í umsögn þeirra.

Félag yfirlögregluþjóna segir í sinni umsögn að það telji frumvarpið ekki sýna með fullnægjandi hætti fram á að fækkun embætta muni leysa þær áskoranir sem íslensk lögregla stendur frammi fyrir. Verulegur skortur sé til að mynda á mannafla. 

Sveitarstjórn Dalabyggðar leggst einnig „eindregið gegn áformum dómsmálaráðherra eins og þau eru í dag“.

Nokkrir aðstoðarlögreglustjórar

Þorbjörg birti pistil á Facebook í morgun þar sem hún ræðir fyrirhugaðar breytingar en minnist þó ekki á gagnrýnina sem fyrirhuguð breyting hefur vakið.

„Í vor og sumar fór ég í hringferð um landið og heimsótti öll níu lögregluembættin til að ræða við lögreglumenn á hverjum stað fyrir sig um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Þessi samtöl voru góð. Mér finnst alltaf best að hitta fólk til að hlusta eftir sjónarmiðum um hvað virkar vel og hvar tækifæri til umbóta liggja,“ hefur Þorbjörg pistilinn á.

Markmiðið með breytingunum sé að lögreglan verði betur undirbúin til að takast á við flóknari verkefni og styrkja skipulag hennar. Hún undirstrikar að með þessu verði löggæsla á landsbyggðinni styrkt en ekki dregið úr nærþjónustu.

„Með hverjum lögreglustjóra verði nokkrir aðstoðarlögreglustjórar, staðsettir hringinn kringum landið, þannig að öflugt teymi stjórnenda verði starfandi í hverju umdæmi fyrir sig.“

Stærsta kerfisbreyting í áratug

Þorbjörg ítrekar þá að hvorki starfsstöðvum né lögreglumönnum verði fækkað með þessum breytingum heldur verði lögð áhersla á staðbundna stjórnun. Þá verði meira jafnvægi á milli embætta með fyrirkomulaginu.

„Þetta er stærsta kerfisbreyting lögreglu í áratug. Hún er þörf og hún er tímabær enda verða embættin að hafa burði til að sinna verkefnum sem hafa orðið fleiri og flóknari með árunum. Og þá er nauðsynlegt að skipulagið styðji við sífellt flóknari áskoranir.“

Þessi útfærsla hafi verið niðurstaða stýrihóps eftir ítarlega greiningarvinnu og lagði hún því þessa leið til. Hún gerir sér þó grein fyrir því að skoðanir verða alltaf skiptar um leiðir að markmiðum.

„Markmiðið er að skipulag, stefna og löggjöf styðji og styrki lögregluna í landinu. Til þess að ná fram því markmiði þarf margþættar aðgerðir. Skipulag er hins vegar grundvallarþáttur í því að auka öryggi fólksins í landinu með sterkari liðsheild lögreglu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×