Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. október 2026 15:05 Njáll Trausti sakar Eyjólf um algert samráðsleysi þvert á það sem ráðherrann boðaði. vísir Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir landsbyggðina brjálaða vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Samgönguráðherra hafi lofað samráði um málið í óundirbúnum fyrirspurnartíma í apríl og því sé samráðsleysi í málinu sérstaklega alvarlegt.
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgönguráðherra út í fjármögnun tengda loftbrúnni en brúin hefur verið Njáli hugleikin síðan hann var kjörinn á þing fyrir tíu árum. Þá sagði Eyjólfur loftbrúna mikilvæga og að samráð yrði haft við íbúa um mögulegar breytingar á henni. „Ég tel að við þurfum að skoða þetta frá grunni. Það er það sem við ætlum að gera og að sjálfsögðu í samráði við alla íbúa í landinu,“ sagði Eyjólfur Ármannsson í pontu Alþingis í vor. Njáll Trausti segir að honum hafi verið mjög brugðið að sjá þessi áform Eyjólfs kynnt í gær í ljósi fyrri orða hans um samráð. „Það kemur mér verulega á óvart núna að þetta samráð hefur ekkert farið fram vegna þess að þetta er mjög stórt og mikið mál fyrir íbúa á landsbyggðinni að eiga kost á Loftbrúnni í þeirri mynd sem hefur verið hingað til. En það er greinilega algjört samráðsleysi í málinu og ég hef fengið það staðfest síðasta sólarhringinn. Ég hef haft samband við mjög marga og það hefur ekki verið neitt samráð við einn né neinn í málinu.“ Hvernig er hljóðið í landsbyggðinni vegna þessa máls? „Það er ljóst, og maður sér það bara á samfélagsmiðlum, að landsbyggðin er brjáluð í rauninni yfir þessu máli og það er gríðarlega sterk samstaða þar um Loftbrúna og ég er náttúrulega mjög ánægður með það hversu mikil hún er. Þess vegna er þessi andstaða núna en hún kemur alveg af fullum krafti fram núna síðasta sólarhringinn og ég bara vona að við náum að breyta þessari ákvörðun þannig að hún haldi bara áfram í það minnsta í því formi sem hún hefur verið síðastliðin sex ár, frá 2020 þegar hún var sett á og þetta er bara það sem við erum að vinna með. Við þurfum á þessari Loftbrú að halda og þurfum þess vegna að breyta þessari ákvörðun sem var tekin í gær af hálfu ríkisstjórnarinnar.“ Ingibjörg Isaksen er ósátt með málið.Vísir/Vilhelm Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknar hefur óskað eftir fundi með þingmönnum Norðausturkjördæmis vegna málsins. Í samtali við fréttastofu segir hún að Logi Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í kjördæminu og ráðherra í ríkisstjórninni, hafi þegið boð á fundinn.
Flug Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngumál Tengdar fréttir Föst krónutala í stað hlutfalls Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent. 23. október 2026 11:29 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira
Föst krónutala í stað hlutfalls Ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verður framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi, eða 40 prósent. 23. október 2026 11:29