Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. október 2026 12:42 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðun gagnrýnir ákvörðun háskólaráðs Háskólans á Akureyri um að slíta sameiningarviðræðum við Háskólann á Bifröst. Embættið telur rökin fyrir viðræðuslitunum ekki haldbær og segir ráðuneyti eiga að leiða sameiningar stofnana sinna. Ríkisstofnunum undir ráðuneytum fækkaði úr 155 í 143 frá árslokum 2020 til ársloka 2025.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun. Þar kemur meðal annars fram að þótt ríkisstofnunum hafi fækkað séu stofnanir sem telji tuttugu stöðugildi eða færri ríflega fjórðungur allra stofnana. Ríkisendurskoðun hvetji stjórnvöld til að kanna með hvaða hætti hægt sé að efla umræddar stofnanir og yfirstíga það óhagræði sem kunni að felast í smæð þeirra. Í hraðaútttekt Ríkisendurskoðunar er sérstaklega vikið að vinnu við sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst en 1. október 2025 tilkynnti Háskólinn á Akureyri að háskólaráð skólans hefði ákveðið að hætta sameiningarviðræðum. Rifjar Ríkisendurskoðun upp að helstu ástæður sem gefnar voru upp hafi verið ólík rekstrarform skólanna og óvissuatriði í tengslum við stofnun rannsóknarsjóðs með sölu eigna og framlagi úr ríkissjóði. „Það vekur athygli Ríkisendurskoðunar að svo virðist sem háskólaráðið hafi einhliða slitið framangreindum viðræðum, án samráðs við ráðuneytið. Embættið telur framangreind rök fyrir viðræðuslitum auk þess ekki haldbær. Ólíkt rekstrarform þessara aðila er að mati embættisins ekki fyrirstaða fyrir áframhaldandi sameiningaviðræðum. Þá vekur athygli að ráðuneytið hafi ekki verið haft með í ráðum þegar ákvörðun háskólaráðs lá fyrir. Forystuhlutverk ráðuneyta í sameiningarmálum stofnana þeirra er ótvírætt og því ekki í höndum undirstofnana að taka ákvarðanir um hvort haldið sé áfram í sameiningarferli. Skýrt er kveðið á um yfirstjórnunarhlutverk ráðherra skv. lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008.“ Skýrslurnar þrjár má nálgast hér. Eftirfylgni_RE_Breytingar_á_stjórnarmálefnumPDF462KBSækja skjal Eftirfylgni_RE_stofnanir_ríkisinsPDF408KBSækja skjal Stofnanir_ríkisins_hraðúttekt_REPDF608KBSækja skjal
Ríkisendurskoðun Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Sjá meira