Innlent

Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS segir að vikur eða mánuðir gætu liðið þar til óprúttinn aðili nýtir sér öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu sem opinberaðist í gær.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í gær. Forstöðumaður CERT-IS segir að erlendis hafi þegar komið upp dæmi þar sem öryggisgallinn hafi verið misnotaður.

Gera á breytingar á farþegasal og strætóstöðinni sjálfri í Mjódd til að bregðast við ofbeldi á svæðinu. Rætt verður við formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í fréttatímanum.

Yfirvöld í Frakklandi hafa bannað fyrirhuguð mótmæli í nokkrum borgum í dag og þá boðaði Emanuel Macron forseti ráðherra og leyniþjónustu á fund í morgun til að fá skýringar á því hvað hafi farið úrskeiðis þegar mótmæli fóru úr böndunum um síðustu helgi.

Stjórnmálafræðingur segir að persónulegar erjur innan Viðreisnar séu að komast á yfirborðið og ljóst sé að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið mun meira áfall fyrir flokkinn en forsvarsmenn vilja viðurkenna.

Í viðtali í Sætinu boðaði Logi Einarsson ráðherra að gerð nýs þjónustusamnings við RÚV yrði flýtt. Hann segir að breytingar sem hann boði í nýju frumvarpi fari ekki óbreyttar í gegnum þingið.

Í íþróttum verður rætt við þjálfara Íslandsmeistara Grindavíkur í körfubolta sem farið hafa illa af stað í Bónus-deildinni. Þá verður fjallað um brottrekstur íslensks þjálfara sem tilkynnt var um í morgun sem og framtíð Michael Carrick sem knattspyrnustjóra Manchester United.

Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×