EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2026 08:09 BioWare hefur gert marga góða og fræga hlutverkaleiki en á undanförnum árum hafa forsvarsmenn fyrirtækisins misstigið sig nokkrum sinnum. Nýir eigendur mjög skuldsetts Electronic Arts hafa tekið þá ákvörðun að loka einu af farsælustu og þekktustu leikjafyrirtækjum heims. Um fjögur hundruð starfsmönnum EA hefur verið sagt upp og fyrirtækinu BioWare verður lokað. Þá er búið að hætta við framleiðslu fimmta leiksins í hinni vinsælu seríu Mass Effect.
Electronic Arts er þekkt fyrir að gefa út leiki eins og FIFA, Madden og aðra íþróttaleiki, auk Sims, Battlefield og Mass Effect, svo einhverjir séu nefndir. Fyrirtækið var nýlega keypt af hópi fjárfesta, sem leiddur var af PIF, opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu, og inniheldur meðal annars Jared Kushner, tengdason Donalds Trump. Sú yfirtaka kostaði um 55 milljarða dala og var talin stærsta skuldsetta yfirtaka sögunnar en það þýðir að hún var að miklu leyti fjármögnuð með lántöku sem EA mun þurfa að greiða í framtíðinni. Nýir forsvarsmenn BioWare hétu því að draga verulega úr kostnaði á næstunni. Þannig átti að spara um 700 milljónir dala árlega og átti meðal annars að gera það með uppsögnum. Þá töldu greinendur að sérstök áhersla yrði lögð á vinsælustu leikjaseríur fyrirtækisins eins og Sims og íþróttaleikina. Framleiddu gífurlega vinsæla leiki BioWare var stofnað í Kanada árið 1995 og var eitt sinn meðal stærstu leikjafyrirtækja heims. Á undanförnum þremur áratugum hafa starfsmenn þess framleitt þó nokkra gífurlega vinsæla tölvuleiki. Fyrirtækið sérhæfði sig í hlutverkaleikjum þar sem spilarar gátu sett sig í spor hetja í umfangsmiklum söguheimum, hvort sem það gerðist í ævintýraheimum eða í geimnum, og þurftu oft að taka stórar ákvarðanir sem höfðu mikil áhrif í leikjunum. Meðal þekktustu leikja fyrirtækisins eru gömlu Baldur‘s Gate-leikirnir, Mass Effect-serían, Neverwinter Knights, Dragon Age-serían og Star Wars: Knights og the old Republic. Í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum BioWare í gær var spilurum þakkað fyrir að vera hluti af sögu fyrirtækisins. „Nú, eftir rúma þrjá áratugi af sameiginlegum ævintýrum, verður BioWare lokað og framleiðslu næsta Mass Effect leikjar verður hætt,“ sagði í yfirlýsingunni. „Það sem kynslóðir af BioWare byggðu saman er eitthvað til að hylla og muna eftir. Þessir leikir urðu svo mikið meira vegna þess að þið spiluðuð þá, rökrædduð ákvarðanir ykkar, urðuð ástfangin af persónunum og gerðuð þessa söguheima að ykkar eigin.“ Þó nokkur feilspor Margt hefur þó gengið á á undanförnum árum og hefur BioWare ekki tekist að fanga áhuga leikjaspilara eins og áður. Þegar tilkynnt var í gær að fyrirtækinu yrði lokað störfuðu þar um fimmtíu manns. EA keypti BioWare árið 2007 og eru leikjaspilarar gjarnir á að segja að vandræði fyrirtækisins megi rekja til þeirra kaupa. Árið 2019 gaf BioWare út leikinn Anthem, þar sem óhætt er að segja að starfsmenn fyrirtækisins hafi verið látnir stíga út fyrir þægindaramma sinn. Anthem var ekki hlutverkaleikur eins og BioWare sérhæfði sig í, heldur var þetta fjölspilunarskotleikur og var markmiðið að reyna að fanga spilara sem höfðu áhuga á sambærilegum leikjum eins og Fortnite og Overwatch. Það gekk ekki eftir. Framleiðsla leiksins einkenndist af miklum vandræðum og niðurstaðan varð eftir því. Sjá einnig: Groundhog day tölvuleikjanna Nýjustu leikir BioWare í seríunum Dragon Age og Mass Effect þóttu sömuleiðis ekki standast sömu gæðakröfur og fyrri leikirnir í seríunum vinsælu. Mass Effect: Andromeda kom út árið 2017 og Dragon Age: The Veilguard árið 2024. Eins og áður kom fram unnu starfsmenn fyrirtækisins að nýjum leik í söguheimi Mass Effect en sá leikur mun aldrei líta dagsins ljós.
Leikjavísir Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira