Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Lovísa Arnardóttir skrifar 22. október 2026 19:02 Magnús Geir, Jacob og David á frumsýningu í síðustu viku. Steina Matt Magnús Geir Þórðarson leikstýrir verkinu Högg eftir James Graham. Hann segist hafa fallið fyrir verkinu fyrir tveimur árum og það snert hann persónulega. Hann segir verkið hverfast um þá valkosti sem fólk getur staðið frammi fyrir í lífinu og hvað gerist þegar fólk velur mildi og mannúð í stað haturs og heiftar.
Högg eftir James Graham var frumsýnt síðustu helgi í Þjóðleikhúsinu. Verkið er unnið upp úr bók Jacobs Dunne, Right from Wrong, þar sem hann rekur sína eigin sögu: söguna af því þegar hann varð valdur að dauða annars manns með einu hnefahöggi en ekki síður söguna af eftirleiknum, fangelsisvistinni og ótrúlegum stakkaskiptum á lífi hans eftir að foreldrar hins látna óskuðu eftir að hitta hann. „Högg er náttúrulega mjög margslungið verk og er fyrst og fremst alveg ótrúlega áhrifarík saga ungs manns sem lætur engan ósnortinn. Þar fylgjumst við með hvernig líf hans og margra annarra umturnast eftir einn örlagaríkan atburð - og valkostina sem þau standa frammi fyrir. Það hvaða valkost við veljum getur breytt öllu um framhaldið, hvort við veljum rétt eða rangt,“ segir Magnús Geir leikstjóri verksins. Um bókina sem verkið byggir á segir á vef leikhússins: Right from Wrong rekur lífshlaup Jacobs. Sagan hefst í félagslegu íbúðahverfi í Nottingham. Vegna vandamála heima fyrir og í skólanum leiddist Jacob út í gengjamenningu tengda fíkniefnum. Hann drakk ótæpilega og slóst sér til skemmtunar, uns ein örlagarík nótt breytti stefnu lífs hans. Bókin dregur ekkert undan í frásögninni af sekt Jacobs og skömm og sýnir hvernig hann nýtti reynsluna til að snúa við blaðinu. Hann hefur tekið virkan þátt í verkefnum á sviði uppbyggilegrar réttvísi, meðal annars á vegum The Forgiveness Project. Hann hefur líka lokið háskólaprófi í afbrotafræði með ágætiseinkunn. Í því sé fylgst með fólki sem tekur ótrúlega ákvörðun um að velja mannúð og mildi í stað haturs og heiftar. Hann segir nokkuð langan aðdraganda að því að taka verkið til sýningar. „Við erum náttúrulega alltaf að leita að góðum verkum fyrir leikhúsið og leita að sögum sem eiga ríkt erindi og eru líklegar til að snerta áhorfendur. Á ári hverju erum við að skoða hundruð hugmynda, handrita og sýninga en það verður að segjast að sjaldan höfum við verið jafn sannfærð um mikilvægi þess að koma verki á svið og þegar við lásum Högg,“ segir hann og að það gangi misjafnlega. Kollféllu fyrir verkinu Fyrir tveimur árum hafi handritið að Höggi ratað á þeirra borð, stuttu eftir frumsýningu í Nottingham. „Það blasti strax við að þetta er einstaklega vel skrifað verk eftir eitt fremsta leikskáld Breta. En það sem skipti nú enn meira máli var að þarna var saga sem talaði mjög sterkt til okkar og hafði djúpstæð áhrif á mig persónulega þegar ég las þetta,“ segir hann og að það hafi verið eitthvað einstakt í verkinu sem dró hann að því. „Framvindan í verkinu er þétt og rígheldur áhorfendum frá fyrstu mínútu og til enda. Við fylgjum aðalpersónunni í gegnum barnæsku og unglingsárin og upp að atburðinum örlagaríka og í framhaldinu upplifa áhorfendur hvernig unnið er úr áfallinu. Högg er í aðra röndina harkalegt og hratt en það býr einnig yfir alveg ótrúlegri von og birtu. Þar upplifum við það besta í mannsandanum. Verkið hverfist um atburð, þetta eina högg, og við fengum mjög sterka tilfinningu um leið og við lásum þetta fyrst fyrir því að þetta væri saga sem ætti mjög brýnt erindi og yrði að komast á svið á Íslandi.“ Edda Björg Eyjólfsdóttir í hlutverki móður Jacob og Jacob van Oosterhout í hlutverki Jacobs.Steina Matt Hann segir að frá því að verkefnavalsnefndin í leikhúsinu hafi lesið verkið hafi verið róið að því öllum árum að fá réttinn af verkinu. Á sama tíma sló uppsetningin í gegn og var sýnd í Nottingham, New York og London, hratt gríðarlegri umræðu af stað og vann öll helstu leikhúsverðlaun, meðal annars sem leikrit ársins. „Þjóðleikhúsið er fyrst leikhúsa til að fá heimild til að setja verkið upp eftir upprunalegu uppfærsluna en nú eru uppsetningar í undirbúningi um allan heim.“ Verkið snerti alla sem eigi börn eða foreldra og alla sem hafa elskað það en einnig eigi leikritið mikið samfélagslegt erindi. Þar er velt upp mörgum stórum spurningum, meðal annars um það hvernig unnið sé úr áföllum, hvort hægt sé að ná sátt á milli þolenda og gerenda og hvort mögulegt sé að fyrirgefa. Þannig eigi verkið erindi samfélagslega og sérstaklega að því samtali sem víða á sér stað um hvernig hægt sé að ná sátt á milli þolenda og gerenda, sem mögulega ekki hefur fengist í dómskerfi, hefur ekki fengist á samfélagsmiðlum, en gæti mögulega fengist í einhvers konar samtali. „Þegar fólk gerir mistök og jafnvel mistök sem hafa hræðilegar afleiðingar, á fólk þá von á að fá annað tækifæri? Viljum við að samfélagið sé þannig að ef fólk sýnir iðrun og vilja til að bæta sig, ætlum við að vera opin fyrir því? Eða ætlum við að segja bara auga fyrir auga og þetta sem þú gerðir var það hræðilegt að þú átt ekki afturkvæmt?“ Kraftur í því að sagan sé sönn Hann segir einnig einstakan kraft í því að um sé að ræða sanna sögu og hann velti því enn fyrir sér, þrátt fyrir að hafa unnið að verkinu mánuðum saman, hvernig þetta fólk komst á endanum á þennan stað að ná sátt. „Vitundin um að það sé raunverulegt fólk sem raunverulega gerði þetta eykur áhrifamáttinn svo mikið.“ Magnús Geir segir að listræna teymið hafi ákveðið að sýna uppruna verksins virðingu og ekki að staðfæra það. Hins vegar sé uppsetningin alíslensk og uppsetningin því ólík uppsetningunni í Bretlandi. Gísli Galdur Þorgeirsson sá um tónlistina og Ilmur Stefánsdóttir gerði leikmyndina. „Sýningin var unnin í þéttri samsköpun alls hópsins sem að sýningunni stendur. Við fengum handritið og þar með söguna náttúrulega frá Bretlandi og rannsökuðum það náið,” segir Magnús Geir Hann segir að við undirbúning verksins hafi þau fengið ótal sérfræðinga og fagaðila til að veita þeim dýpri skilning á ólíkum þáttum verksins. „Við erum auðvitað að vinna með leikritið sjálft og svo búum við að því að af því þetta eru raunverulegar sögur er til heilmikið efni, bók sem Jacob skrifaði, hlaðvarpsþættir og ótal viðtöl. En eitt af því sem við gerðum í þessu ferli var að fá fjölmarga sérfræðinga sem þekkja til ólíkra kima eða málaflokka sem þessu tengjast til að koma og fræða okkur. Það er fólk sem hefur verið að vinna inni í fangelsiskerfinu, sálfræðingar, afbrotafræðingar og félagsfræðingar. Það var alveg ómetanlegt til að dýpka það sem við vorum að vinna með og setja fleiri liti í sögurnar.“ Tíu leikarar eru á sviði í hinum ýmsu hlutverkum. Jorri Kristjánsson Verk sem talar til ungs fólks Magnús Geir segir að þó svo að leikritið sé skrifað fyrir fullorðna sé sagan mjög skýr og auðvelt að fylgja henni. „Við finnum það mjög sterkt að verkið talar mjög sterkt til ungs fólks og unglinga líka,“ segir hann og að þau séu farin að fá hópapantanir frá elstu bekkjum grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Fræðsludeild Þjóðleikhússins hafi einnig unnið fræðsluefni. Hann segir Jacob, Joan og David, sem sagan fjallar um, hafa lagt mikla áherslu á að sýningin sé nýtt til góðs og bæti samfélagið. „Þannig að þau hafa mikið verið að hvetja okkur til að virkja sem flesta hópa og vera með umræður,“ segir hann og að eftir sjöttu sýningu næsta föstudag verði viðstödd Joan, sem er móðir fórnarlambsins, James Hodgkinson. „Hún er að koma til landsins og við ætlum að vera með á þeirri sýningu og taka þátt í umræðunni.“
Þjóðleikhúsið Bretland Leikhús Menning Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira