Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Rakel Sveinsdóttir skrifar 22. október 2026 07:05 Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor í mannauðsstjórnum hjá HÍ, segir hvert okkar í ábyrgð fyrir okkar eigin atvinnuhæfni. Hún sé í raun BMI stuðull vinnunnar, góð atvinnuhæfni efli okkur í að takast á við breytingar. Vísir/Anton Brink Þegar kemur að umræðu um krísustjórnun eða breytingastjórnun komast fáir með tærnar þar sem Gylfi Dalmann Aðalsteinsson hefur hælana. Enda prófessor í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands, hokinn af reynslu og með einstaklega góða yfirsýn yfir þær hæðir og lægðir sem íslenskt atvinnulíf hefur farið í gegnum. Allt frá því að menn stóðu niður við höfn – í von og ótta um hvort verkstjórinn myndi velja þá til vinnu þann daginn eða ekki. Yfir í samtímasöguna okkar: Áfallið þegar við fórum í gegnum bankahrunið og síðan heimsfaraldur rétt rúmum áratug síðar. Það merkilega er samt að þegar talið berst að undirbúningi kólnunar fyrir komandi samdráttarskeið nú – sem og hraðar tækniframfarir – byrjar Gylfi á því að tala um okkur sjálf. Og atvinnuhæfnina okkar: Við þurfum að bera ábyrgð á því sjálf að vera í fínu formi í vinnunni. Það má segja að atvinnuhæfnin okkar sé BMI-stuðullinn okkar í vinnu.“ Mörg ráð eru veitt um úrræði sem hægt er að grípa til þegar samdráttur er verulegur. „Uppsagnir eiga að vera síðasta lendingin.“ Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um undirbúning vinnustaða undir komandi samdráttarskeið. Góðu ráðin strax: Úrræði Það felast viss tækifæri í samdráttarskeiðinu sem fram undan er. Og þeim hagræðingum sem mögulega munu fylgja hraðri þróun gervigreindar og tækni. Því ólíkt bankahruninu eða Covid – sem skullu á okkur án nokkurs fyrirvara – höfum við nú svigrúm til að undirbúa okkur. „Við lærðum gríðarlega mikið af bankahruninu. Enda töpuðust þá þúsundir starfa og heilu deildirnar í fyrirtækjum þurrkuðust út. Menn vissu í upphafi ekki hvernig ætti að bregðast við, en úr varð gríðarlegur lærdómur í breytingastjórnun og mannauðsstjórnun,“ segir Gylfi. Það sama á við um heimsfaraldurinn. „Það hefur mikill þroski í mannauðsmálum byggst upp í fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi síðustu árin. Vinnustaðir eru mjög meðvitaðir um mannauðsmálin og betur undirbúnir undir erfið mál en áður,“ segir Gylfi um reynsluna okkar. En er það nóg? Því við virðumst vera sérfræðingar í að bregðast við en ekkert sérstaklega góð í að skipuleggja eitthvað fyrirbyggjandi.“ Nú sé hins vegar sá tími sem vinnustaðir ættu fyrir alvöru að rýna í reynslubankann sinn. „Velta fyrir sér hvað gerðum við í kjölfar bankahrunsins sem heppnaðist vel eða skilaði mestum árangri í Covid?“ Gylfi segir mörg úrræði hafa nýst vel í fyrri lægðum og nefnir nokkur dæmi: Snemmbúin starfslok: Sveigjanleg starfslok geta verið raunhæfur kostur fyrir suma. Gylfi telur að nýta mætti þetta úrræði í ríkari mæli, til dæmis með því að bjóða starfsfólki að láta af störfum fyrr en ella. Margir þeirra sem nú nálgast starfslok eru fjárhagslega vel settir, meðal annars vegna lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar, og gætu því hugað að öðrum verkefnum, til dæmis innan íþróttahreyfingarinnar eða félagasamtaka. Ráða ekki í störf sem losna: Hagræða með eðlilegri starfsmannaveltu, til dæmis þegar fólk fer í nám eða flytur utan. Hlutastörf og deiling starfa: Gylfi telur mega gera meira af þessu á Íslandi. Á dögunum hitti hann til dæmis einstakling sem er í 20% starfi og nokkrum dögum síðar annan einstakling sem er í 50% starfi. Möguleikar á útfærslum í þessu séu margir. Kalla eftir tillögum: Spyrja hreinlega starfsfólk hvort einhver sé tilbúinn að hætta og bjóða þá starfslokaleið. Gylfi hvetur vinnustaði til að rýna í reynslupokann og rifja upp hvaða úrræði eða aðgerðir reyndust vel í kjölfar bankahruns eða heimsfaraldurs. Ýmsar leiðir séu færar til að forðast uppsagnir, til dæmis deiling starfa eða snemmtæk starfslok.Vísir/Anton Brink En hvað með okkur sjálf? En aftur í okkar eigin ábyrgð og hvað við sem einstaklingar getum gert til að undirbúa okkur undir komandi samdráttarskeið eða breytta tíma. Hvaða BMI-stuðull er þetta eiginlega sem atvinnuhæfnin felur í sér? Gylfi útskýrir að í nokkurn tíma hafi verið aukin umræða í Evrópu um það sem kallast á ensku employability – eða atvinnuhæfni. Þessi umræða hafi aukist vegna þess að víða sé staðan sú að þar sem atvinnuleysi er mikið sé jafnvel þriðja kynslóðin nú án vinnu. „Hugtakið atvinnuhæfni varð til sem viðbragð við langtímaatvinnuleysi þar sem fyrirtæki, stéttarfélög og starfsmenn fóru að horfa meira til atvinnuhæfni hvers og eins, sem segir til dæmis mikið til um hversu góð við erum í að takast á við breytingar.“ „Við berum sjálf ríka ábyrgð á að viðhalda og efla atvinnuhæfni okkar. En atvinnuhæfni er líka sameiginlegt verkefni einstaklinga, vinnuveitenda og samfélagsins.“ Nú eru til dæmis uppi vangaveltur um hvaða störfum muni fækka með tilkomu gervigreindarinnar. En í þessu er það á okkar ábyrgð að vera í góðu formi í vinnunni í merkingunni að vera atvinnuhæf,“ segir Gylfi og líkir atvinnuhæfninni við það hvernig við byggjum upp okkar líkamlega form: Það gerist hægt og rólega og þegar vel gengur. Ekki aðeins þegar áfallið er skollið á. Gylfi bendir á að á Íslandi hafi fólk margar leiðir til að efla atvinnuhæfnina sína. „Stéttarfélögin og vinnuveitendur eiga hrós skilið á Íslandi fyrir öfluga fræðslu- og starfsþróunarsjóði. Þessir sjóðir eru góð leið til að efla atvinnuhæfi fólks – eitthvað sem kemur öllum til góða.“ Enn á ný bendir Gylfi á mikilvægi góðrar upplýsingamiðlunar vinnustaða. Því í breytingastjórnun er hún algjör forsenda. Mestu skipti að vera heiðarlegur, segja fljótt og örugglega frá því sem framundan er og segja allan sannleikann. Vísir/Anton Brink Sjálfsmyndin okkar Gylfi segir vinnuna svo stóran hluta af sjálfsmynd Íslendinga að úrræði þurfi alltaf að skoðast út frá því mannlega. Það geti til dæmis verið viðkvæmt að stinga upp á því við 63 ára gamlan einstakling að hætta að vinna 63 ára. „Vá, er ég orðinn úreltur?“ gætu margir spurt sig. Í þessu samhengi þurfi líka að hafa hugfast að á Íslandi er atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 65–74 ára margfalt meiri en að meðaltali í Evrópu: Ísland um 35% í samanburði við um 11% að meðaltali í Evrópu. Þegar kemur til uppsagna er ekki lengur sjálfgefið að þeir sem síðast voru ráðnir verði fyrstir til að missa vinnuna. Breyttar hæfniskröfur og tækniframfarir geta haft áhrif á hvaða störf og þekkingu fyrirtæki telja mikilvægt að varðveita. „Það er mismunandi hvernig þetta getur komið til í uppsögnum. Í sumum greinum eru umsamin starfsaldursréttindi þar sem eldri starfsmönnum er síður sagt upp, til dæmis í hópi flugmanna. Í öðrum geirum getur þetta verið mat fólks þar sem starfsfólk eldra en sextugt – stundum kallað ‚gráa gullið‘ – heldur áfram störfum þar sem yngra fólk á oft auðveldara með að fá nýja vinnu. Á móti kemur að hér gæti átt við að undirbúa snemmtæk starfslok.“ Atvinnumissir getur verið eitt af stærstu áföllum sem fólk verður fyrir á starfsævinni og mælist hátt á viðurkenndum kvörðum yfir streituvaldandi lífsatburði. „Uppsögn þarf því alltaf að undirbúa vel og styðja fólk, til dæmis með aðstoð við ferilskrá og atvinnuleit og með sálfræðiaðstoð. Stéttarfélögin koma þar sterkt inn.“ Þá megi ekki gleyma þeim sem eftir sitja. „Samvinna hópsins er hluti af vinnustaðamenningunni. Góðum móral og starfsanda sem getur verið kjölfestan í hverri deild. Ef til dæmis fjórum starfsmönnum af tólf er sagt upp, getur þetta haft áhrif á þann hóp sem eftir situr,“ segir Gylfi og vísar þar til þess sem oft er talað um sem heilkenni hins hólpna (e. lay off survivor syndrome). Þeir sem eftir sitja geta upplifað samviskubit, óöryggi og kvíða fyrir eigin framtíð. Traust til stjórnenda getur einnig minnkað og starfsandi versnað. Þá segir Gylfi mikilvægt að stjórnendur fái stuðning líka. Fátt sé jafn erfitt í þeirra hlutverki en að segja upp góðu fólki. Segðu allt og segðu satt Rétt eins og Gylfi fór svo vel yfir með okkur í upphafi Covid, sé góð upplýsingamiðlun algjört lykilatriði. „Gullna reglan er að segja allt, vera heiðarlegur, greina fljótt og örugglega frá því sem fram undan er og segja allan sannleikann,“ segir Gylfi. Stundum geti upplýsingamiðlun þó verið vandasöm, sérstaklega hjá félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað. „Skráð félög þurfa að fylgja sérstökum reglum um upplýsingagjöf, sem getur gert það flóknara að upplýsa starfsfólk með góðum fyrirvara. Því skiptir miklu máli að vanda tímasetningu og miðlun slíkra upplýsinga,“ segir Gylfi. Að nýta fyrri reynslu og undirbúa vinnustaðinn vel undir komandi samdráttarskeið og breytingar sé hins vegar tækifæri sem vinnustaðir hafa nú og Gylfi hvetur fólk til að nýta þetta svigrúm. „Þetta er í raun bara breytingastjórnun 101,“ segir Gylfi og hnykkir á nokkrum góðum ráðum fyrir okkur að muna. Sem í raun má segja að séu þessi atriði helst: Starfsfólk: Hugið að atvinnuhæfninni áður en á reynir. Takið frumkvæði að eigin starfsþróun og nýtið starfsþróunar- og fræðslusjóðina. Við berum sjálf ríka ábyrgð á eigin atvinnuhæfni. Stjórnendur: Segið satt og segið frá snemma. Skoðið allar aðrar leiðir en uppsagnir. Hlúið að þeim sem fara og þeim sem eftir sitja, og gleymið ekki að styðja ykkur sjálf. Öll: Lærum af reynslunni og tölum opinskátt um undirbúninginn. Mannauðsmál Stjórnun Vinnumarkaður Tengdar fréttir Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Þrýstingur á íslenskum vinnumarkaði magnast hratt. Enda tíðari fréttir um uppsagnir, hækkandi hlutfall atvinnuleysis og skýr merki um kólnun hagkerfis. 13. október 2026 07:02 „Starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hættir“ „Rannsóknir sýna að starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hætti störfum í kjölfar uppsagnar,“ segir Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental ráðgjöf og sérfræðingur í mannauðsstjórnun. Og er þar að vísa í það sem getur gerst á vinnustað, eftir hópuppsagnir. 9. október 2025 07:03 Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ „Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís. 23. september 2026 07:02 Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02 „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“ 4. mars 2026 07:03 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Sjá meira
Allt frá því að menn stóðu niður við höfn – í von og ótta um hvort verkstjórinn myndi velja þá til vinnu þann daginn eða ekki. Yfir í samtímasöguna okkar: Áfallið þegar við fórum í gegnum bankahrunið og síðan heimsfaraldur rétt rúmum áratug síðar. Það merkilega er samt að þegar talið berst að undirbúningi kólnunar fyrir komandi samdráttarskeið nú – sem og hraðar tækniframfarir – byrjar Gylfi á því að tala um okkur sjálf. Og atvinnuhæfnina okkar: Við þurfum að bera ábyrgð á því sjálf að vera í fínu formi í vinnunni. Það má segja að atvinnuhæfnin okkar sé BMI-stuðullinn okkar í vinnu.“ Mörg ráð eru veitt um úrræði sem hægt er að grípa til þegar samdráttur er verulegur. „Uppsagnir eiga að vera síðasta lendingin.“ Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um undirbúning vinnustaða undir komandi samdráttarskeið. Góðu ráðin strax: Úrræði Það felast viss tækifæri í samdráttarskeiðinu sem fram undan er. Og þeim hagræðingum sem mögulega munu fylgja hraðri þróun gervigreindar og tækni. Því ólíkt bankahruninu eða Covid – sem skullu á okkur án nokkurs fyrirvara – höfum við nú svigrúm til að undirbúa okkur. „Við lærðum gríðarlega mikið af bankahruninu. Enda töpuðust þá þúsundir starfa og heilu deildirnar í fyrirtækjum þurrkuðust út. Menn vissu í upphafi ekki hvernig ætti að bregðast við, en úr varð gríðarlegur lærdómur í breytingastjórnun og mannauðsstjórnun,“ segir Gylfi. Það sama á við um heimsfaraldurinn. „Það hefur mikill þroski í mannauðsmálum byggst upp í fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi síðustu árin. Vinnustaðir eru mjög meðvitaðir um mannauðsmálin og betur undirbúnir undir erfið mál en áður,“ segir Gylfi um reynsluna okkar. En er það nóg? Því við virðumst vera sérfræðingar í að bregðast við en ekkert sérstaklega góð í að skipuleggja eitthvað fyrirbyggjandi.“ Nú sé hins vegar sá tími sem vinnustaðir ættu fyrir alvöru að rýna í reynslubankann sinn. „Velta fyrir sér hvað gerðum við í kjölfar bankahrunsins sem heppnaðist vel eða skilaði mestum árangri í Covid?“ Gylfi segir mörg úrræði hafa nýst vel í fyrri lægðum og nefnir nokkur dæmi: Snemmbúin starfslok: Sveigjanleg starfslok geta verið raunhæfur kostur fyrir suma. Gylfi telur að nýta mætti þetta úrræði í ríkari mæli, til dæmis með því að bjóða starfsfólki að láta af störfum fyrr en ella. Margir þeirra sem nú nálgast starfslok eru fjárhagslega vel settir, meðal annars vegna lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar, og gætu því hugað að öðrum verkefnum, til dæmis innan íþróttahreyfingarinnar eða félagasamtaka. Ráða ekki í störf sem losna: Hagræða með eðlilegri starfsmannaveltu, til dæmis þegar fólk fer í nám eða flytur utan. Hlutastörf og deiling starfa: Gylfi telur mega gera meira af þessu á Íslandi. Á dögunum hitti hann til dæmis einstakling sem er í 20% starfi og nokkrum dögum síðar annan einstakling sem er í 50% starfi. Möguleikar á útfærslum í þessu séu margir. Kalla eftir tillögum: Spyrja hreinlega starfsfólk hvort einhver sé tilbúinn að hætta og bjóða þá starfslokaleið. Gylfi hvetur vinnustaði til að rýna í reynslupokann og rifja upp hvaða úrræði eða aðgerðir reyndust vel í kjölfar bankahruns eða heimsfaraldurs. Ýmsar leiðir séu færar til að forðast uppsagnir, til dæmis deiling starfa eða snemmtæk starfslok.Vísir/Anton Brink En hvað með okkur sjálf? En aftur í okkar eigin ábyrgð og hvað við sem einstaklingar getum gert til að undirbúa okkur undir komandi samdráttarskeið eða breytta tíma. Hvaða BMI-stuðull er þetta eiginlega sem atvinnuhæfnin felur í sér? Gylfi útskýrir að í nokkurn tíma hafi verið aukin umræða í Evrópu um það sem kallast á ensku employability – eða atvinnuhæfni. Þessi umræða hafi aukist vegna þess að víða sé staðan sú að þar sem atvinnuleysi er mikið sé jafnvel þriðja kynslóðin nú án vinnu. „Hugtakið atvinnuhæfni varð til sem viðbragð við langtímaatvinnuleysi þar sem fyrirtæki, stéttarfélög og starfsmenn fóru að horfa meira til atvinnuhæfni hvers og eins, sem segir til dæmis mikið til um hversu góð við erum í að takast á við breytingar.“ „Við berum sjálf ríka ábyrgð á að viðhalda og efla atvinnuhæfni okkar. En atvinnuhæfni er líka sameiginlegt verkefni einstaklinga, vinnuveitenda og samfélagsins.“ Nú eru til dæmis uppi vangaveltur um hvaða störfum muni fækka með tilkomu gervigreindarinnar. En í þessu er það á okkar ábyrgð að vera í góðu formi í vinnunni í merkingunni að vera atvinnuhæf,“ segir Gylfi og líkir atvinnuhæfninni við það hvernig við byggjum upp okkar líkamlega form: Það gerist hægt og rólega og þegar vel gengur. Ekki aðeins þegar áfallið er skollið á. Gylfi bendir á að á Íslandi hafi fólk margar leiðir til að efla atvinnuhæfnina sína. „Stéttarfélögin og vinnuveitendur eiga hrós skilið á Íslandi fyrir öfluga fræðslu- og starfsþróunarsjóði. Þessir sjóðir eru góð leið til að efla atvinnuhæfi fólks – eitthvað sem kemur öllum til góða.“ Enn á ný bendir Gylfi á mikilvægi góðrar upplýsingamiðlunar vinnustaða. Því í breytingastjórnun er hún algjör forsenda. Mestu skipti að vera heiðarlegur, segja fljótt og örugglega frá því sem framundan er og segja allan sannleikann. Vísir/Anton Brink Sjálfsmyndin okkar Gylfi segir vinnuna svo stóran hluta af sjálfsmynd Íslendinga að úrræði þurfi alltaf að skoðast út frá því mannlega. Það geti til dæmis verið viðkvæmt að stinga upp á því við 63 ára gamlan einstakling að hætta að vinna 63 ára. „Vá, er ég orðinn úreltur?“ gætu margir spurt sig. Í þessu samhengi þurfi líka að hafa hugfast að á Íslandi er atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 65–74 ára margfalt meiri en að meðaltali í Evrópu: Ísland um 35% í samanburði við um 11% að meðaltali í Evrópu. Þegar kemur til uppsagna er ekki lengur sjálfgefið að þeir sem síðast voru ráðnir verði fyrstir til að missa vinnuna. Breyttar hæfniskröfur og tækniframfarir geta haft áhrif á hvaða störf og þekkingu fyrirtæki telja mikilvægt að varðveita. „Það er mismunandi hvernig þetta getur komið til í uppsögnum. Í sumum greinum eru umsamin starfsaldursréttindi þar sem eldri starfsmönnum er síður sagt upp, til dæmis í hópi flugmanna. Í öðrum geirum getur þetta verið mat fólks þar sem starfsfólk eldra en sextugt – stundum kallað ‚gráa gullið‘ – heldur áfram störfum þar sem yngra fólk á oft auðveldara með að fá nýja vinnu. Á móti kemur að hér gæti átt við að undirbúa snemmtæk starfslok.“ Atvinnumissir getur verið eitt af stærstu áföllum sem fólk verður fyrir á starfsævinni og mælist hátt á viðurkenndum kvörðum yfir streituvaldandi lífsatburði. „Uppsögn þarf því alltaf að undirbúa vel og styðja fólk, til dæmis með aðstoð við ferilskrá og atvinnuleit og með sálfræðiaðstoð. Stéttarfélögin koma þar sterkt inn.“ Þá megi ekki gleyma þeim sem eftir sitja. „Samvinna hópsins er hluti af vinnustaðamenningunni. Góðum móral og starfsanda sem getur verið kjölfestan í hverri deild. Ef til dæmis fjórum starfsmönnum af tólf er sagt upp, getur þetta haft áhrif á þann hóp sem eftir situr,“ segir Gylfi og vísar þar til þess sem oft er talað um sem heilkenni hins hólpna (e. lay off survivor syndrome). Þeir sem eftir sitja geta upplifað samviskubit, óöryggi og kvíða fyrir eigin framtíð. Traust til stjórnenda getur einnig minnkað og starfsandi versnað. Þá segir Gylfi mikilvægt að stjórnendur fái stuðning líka. Fátt sé jafn erfitt í þeirra hlutverki en að segja upp góðu fólki. Segðu allt og segðu satt Rétt eins og Gylfi fór svo vel yfir með okkur í upphafi Covid, sé góð upplýsingamiðlun algjört lykilatriði. „Gullna reglan er að segja allt, vera heiðarlegur, greina fljótt og örugglega frá því sem fram undan er og segja allan sannleikann,“ segir Gylfi. Stundum geti upplýsingamiðlun þó verið vandasöm, sérstaklega hjá félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað. „Skráð félög þurfa að fylgja sérstökum reglum um upplýsingagjöf, sem getur gert það flóknara að upplýsa starfsfólk með góðum fyrirvara. Því skiptir miklu máli að vanda tímasetningu og miðlun slíkra upplýsinga,“ segir Gylfi. Að nýta fyrri reynslu og undirbúa vinnustaðinn vel undir komandi samdráttarskeið og breytingar sé hins vegar tækifæri sem vinnustaðir hafa nú og Gylfi hvetur fólk til að nýta þetta svigrúm. „Þetta er í raun bara breytingastjórnun 101,“ segir Gylfi og hnykkir á nokkrum góðum ráðum fyrir okkur að muna. Sem í raun má segja að séu þessi atriði helst: Starfsfólk: Hugið að atvinnuhæfninni áður en á reynir. Takið frumkvæði að eigin starfsþróun og nýtið starfsþróunar- og fræðslusjóðina. Við berum sjálf ríka ábyrgð á eigin atvinnuhæfni. Stjórnendur: Segið satt og segið frá snemma. Skoðið allar aðrar leiðir en uppsagnir. Hlúið að þeim sem fara og þeim sem eftir sitja, og gleymið ekki að styðja ykkur sjálf. Öll: Lærum af reynslunni og tölum opinskátt um undirbúninginn.
Snemmbúin starfslok: Sveigjanleg starfslok geta verið raunhæfur kostur fyrir suma. Gylfi telur að nýta mætti þetta úrræði í ríkari mæli, til dæmis með því að bjóða starfsfólki að láta af störfum fyrr en ella. Margir þeirra sem nú nálgast starfslok eru fjárhagslega vel settir, meðal annars vegna lífeyrisréttinda og séreignarsparnaðar, og gætu því hugað að öðrum verkefnum, til dæmis innan íþróttahreyfingarinnar eða félagasamtaka. Ráða ekki í störf sem losna: Hagræða með eðlilegri starfsmannaveltu, til dæmis þegar fólk fer í nám eða flytur utan. Hlutastörf og deiling starfa: Gylfi telur mega gera meira af þessu á Íslandi. Á dögunum hitti hann til dæmis einstakling sem er í 20% starfi og nokkrum dögum síðar annan einstakling sem er í 50% starfi. Möguleikar á útfærslum í þessu séu margir. Kalla eftir tillögum: Spyrja hreinlega starfsfólk hvort einhver sé tilbúinn að hætta og bjóða þá starfslokaleið.
Í þessu samhengi þurfi líka að hafa hugfast að á Íslandi er atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 65–74 ára margfalt meiri en að meðaltali í Evrópu: Ísland um 35% í samanburði við um 11% að meðaltali í Evrópu.
Starfsfólk: Hugið að atvinnuhæfninni áður en á reynir. Takið frumkvæði að eigin starfsþróun og nýtið starfsþróunar- og fræðslusjóðina. Við berum sjálf ríka ábyrgð á eigin atvinnuhæfni. Stjórnendur: Segið satt og segið frá snemma. Skoðið allar aðrar leiðir en uppsagnir. Hlúið að þeim sem fara og þeim sem eftir sitja, og gleymið ekki að styðja ykkur sjálf. Öll: Lærum af reynslunni og tölum opinskátt um undirbúninginn.
Mannauðsmál Stjórnun Vinnumarkaður Tengdar fréttir Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Þrýstingur á íslenskum vinnumarkaði magnast hratt. Enda tíðari fréttir um uppsagnir, hækkandi hlutfall atvinnuleysis og skýr merki um kólnun hagkerfis. 13. október 2026 07:02 „Starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hættir“ „Rannsóknir sýna að starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hætti störfum í kjölfar uppsagnar,“ segir Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental ráðgjöf og sérfræðingur í mannauðsstjórnun. Og er þar að vísa í það sem getur gerst á vinnustað, eftir hópuppsagnir. 9. október 2025 07:03 Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ „Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís. 23. september 2026 07:02 Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02 „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“ 4. mars 2026 07:03 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Sjá meira
Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Þrýstingur á íslenskum vinnumarkaði magnast hratt. Enda tíðari fréttir um uppsagnir, hækkandi hlutfall atvinnuleysis og skýr merki um kólnun hagkerfis. 13. október 2026 07:02
„Starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hættir“ „Rannsóknir sýna að starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hætti störfum í kjölfar uppsagnar,“ segir Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental ráðgjöf og sérfræðingur í mannauðsstjórnun. Og er þar að vísa í það sem getur gerst á vinnustað, eftir hópuppsagnir. 9. október 2025 07:03
Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ „Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís. 23. september 2026 07:02
Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst „Við þurfum að búa til breytingastjórnun 2.0. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við ætlum að starfa í breytingaumhverfi sem hefur kannski upphaf en engan endi,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir hjá Auðnast. 30. september 2026 07:02
„Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Við þurfum að efla okkur í aðlögunarhæfni því breytingarnar sem fram undan eru verða svo svakalega örar,“ segir Adriana Karolina Pétursdóttir, formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Rio Tinto og bætir við: „Það sem við lærðum í gær getur verið úrelt á morgun.“ 4. mars 2026 07:03