Lífið

Bólginn á höndunum skríðandi til Bessa­staða

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Axel Máni er að drepast í höndunum að eigin sögn.
Axel Máni er að drepast í höndunum að eigin sögn.

Ungur maður fer nú skríðandi til Bessastaða en hann hélt af stað frá Njarðvík í gærkvöldi. Hann segir tilganginn vera þann að sanka að sér fleiri fylgjendum á samfélagsmiðlum.

„Ég er að skríða frá Njarðvík til Bessastaða með umslag til Höllu,“ segir Axel Máni í samtali við Vísi en tekur fram að hann vilji ekki gefa upp innihald bréfsins fyrr en hann er kominn með fimm þúsund fylgjendur. Hann streymir öllu á samfélagsmiðlinum Tik-Tok en þetta er ekki fyrsta uppátæki Axels á miðlunum, hann komst síðast í fréttir í maí þegar hann gróf sig undir sand í Nauthólsvík í sólarhring.

Af hverju í ósköpunum ertu að þessu?

„Ég er með samfélagsmiðlaaðgang þar sem ég er búinn að vera að gera allskonar áskoranir og þetta endaði á að vera ein þeirra. Síðast var ég í 24 klukkustundir á hlaupabretti og núna langaði mig að gera eitthvað erfiðara.“

Axel segist hafa verið að horfa á kvikmynd með vinum sínum upp í bústað þegar hugmyndin að athæfinu kviknaði. Í myndinni var einhver að skríða. Axel Máni hélt af stað frá bensínstöð Orkunnar við Fitjar í Njarðvík í gærkvöldi og segist hafa farið bakveg hjá HS Veitum.

@seliking

Halla eg er að koma!!🇮🇸

♬ original sound - Seliking

Og af hverju að skríða til Bessastaða?

„Það kemur í ljós þegar ég er kominn með fimm þúsund fylgjendur,“ segir Axel sem gefur ekkert upp þó þjarmað sé að honum. Hann segir hálft ár síðan hann hafi byrjað á allskyns skringilegum uppátækjum á samfélagsmiðlum.

„Einu sinni læsti ég mig inni á baðherbergi í tvo sólarhringa. Síðan var ég einu sinni blindur í viku. Bundið fyrir augun mín í 160 klukkutíma. Svo gróf ég mig í sand í sólarhring. Allt í beinni.“

@seliking

Við hölfum áfram🇮🇸

♬ original sound - Seliking

Þú vilt ekkert segja mér hvað er í bréfinu?

„Ég get það ekki. Ég er í beinni!“

Hvernig er líkamlega ástandið, ég heyrði þig ræða það áðan á Tik-Tok að þú værir bólginn á höndunum?

„Hnéin á mér eru ágæt en hnúarnir eru í alvöru hakki. Ég hugsa að það sé ekkert langt í álagsbrot þar,“ segir Axel Máni. Hann ætlar þó ekki að skríða í alla nótt, um miðnætti ætlar hann að taka sér pásu.

„Þá fer ég inn í bíl og sef þar. Svo legg ég aftur af stað í fyrramálið. Ég lagði af stað í gærkvöldi um níuleytið og hætti klukkan hálf tvö. Svo byrjaði ég aftur eitt í dag, er búinn með tíu kílómetra og á 36 kílómetra aftur.“

En að leggja þetta á sig fyrir fylgjendur á samfélagsmiðlum, sumir myndu segja að þetta væri hálfklikkað?

„Skilaboðin eru þau að það er sama hversu fáránlega hluti þig langar að gera, prófaðu það bara. Það er enginn að pæla í þér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.