Tíska og hönnun

Stal senunni í sex milljarða króna brjósta­haldara

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti athygli á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret.
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti athygli á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret. Taylor Hill/FilmMagic

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti mikla athygli á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret í gærkvöldi. Er þetta í fyrsta sinn sem Jenner gengur tískupallinn fyrir þessa geisivinsælu sýningu.

Fyrsta tískusýning Victoria's Secret fór fram árið 1995 og hefur ár hvert vaxið í vinsældum. Heimsfrægar fyrirsætur ganga tískupallinn fáklæddar í nærfötum og eru þekktar sem „Englarnir“ eða Victoria's Secret Angels. 

Poppstjörnur taka gjarnan vinsæl lög á sviðinu og englarnir ganga seiðandi fram hjá þeim. Í ár steig kanadíska söngkonan Tate McRae á stokk en áður hafa meðal annars Rihanna, Justin Bieber og The Weeknd tekið þetta verkefni að sér. 

 Kylie Jenner stal senunni á sýningunni í gær og kom mörgum viðstöddum á óvart. Hún klæddist „fantasy“-brjóstahaldaranum svokallaða sem hefur verið órjúfanlegur hluti af tískusýningunni frá árinu 2018. Á brjóstahaldaranum eru 4410 demantar umkringdir 75,54 karata gulum demanti. Það tók fimmtán hönnuði yfir þúsund klukkutíma að sauma þá í og gripurinn er metinn á rúma sex milljarða íslenskra króna. 

Jenner er hvað þekktust fyrir að tilheyra Kardashian-Jenner fjölskyldunni og hefur frá blautu barnsbeini verið hluti af raunveruleikaþáttunum Keeping Up With The Kardashians og síðar The Kardashians. 

Kendall Jenner systir hennar er auðvitað ein þekktasta fyrirsæta heimsins í dag en Kylie hefur sjálf aðeins verið að stíga skref inn í tískubransann og lokaði meðal annars tískusýningu franska merkisins Coperni í Disney-landi í París fyrir tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.