Handbolti

„Ekkert sem ég missti svefn yfir“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Snorri Steinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag áður en hann var tekinn tali.
Snorri Steinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag áður en hann var tekinn tali. Vísir/Einar

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, kveðst spenntur fyrir því að hitta landsliðsmenn aftur og hefja nýja undankeppni fyrir EM 2028 í byrjun næsta mánaðar. Hann opinberaði leikmannahópinn fyrir verkefnið í dag.

Það er að fara af stað ný undankeppni. Fyrsti hópurinn fyrir hana klár og er mikill heilabrot við þetta val.

„Það er alltaf eitthvað. En þetta var kannski ekkert sem ég missti svefn yfir. Það er þokkalegt stand á drengjunum. Flestir okkar leikmenn, kannski fyrir utan Þorstein Leó, sem eru heilir heilsu og auðvitað eins og gengur og gerist er alltaf eitthvað og einhverjir sem hafa verið að glíma við. En þetta er í dag bara okkar sterkasta lið og mér fannst það líka mikilvægt að gera það þannig að þessu sinni. Það er langt síðan við komum saman allir og mikilvægt svona að setja okkur strax í stellingar,“ segir Snorri Steinn í samtali við íþróttadeild Sýnar.

Klippa: Snorri Steinn fer yfir hópinn og komandi verkefni

Landsliðið hefur ekki komið saman um nokkurra mánaða skeið og Snorra er farið að hlakka til að komast með þeim út á völl.

„Það er óhjákvæmilegt ef maður er landsliðsþjálfari. Þú ert náttúrulega ekki með það dagsdaglega þannig að það er alltaf gott þegar það styttist í verkefni og maður finnur að þetta er að bresta á. Klukkan tifar líka og janúar er handan við hornið. Þannig að það eru alls konar hlutir sem grassera hjá manni, þannig að það verður bara mjög gott að fá drengina í hendurnar.“

Viggó Kristjánsson og Ýmir Örn Gíslason hafa glímt við meiðsli í haust en eru í hópnum. Aðrir eru í toppstandi eins og sakir standa.

„Viggó náttúrulega meiddist í vor. Hann er vissulega byrjaður að spila með Erlangen en er kannski ekki 100% heill heilsu og þar fyrir utan er hann í leikbanni líka í fyrsta leik og þannig að það var svona eðlilegt að velja þrjá, fannst mér, að þessu sinni, í þessa stöðu. Ýmir Örn handarbrotnaði líka í byrjun tímabils en er byrjaður að æfa. Hann verður með í næsta leik með sínu liði þannig að hann nær einhverjum 2–3 leikjum fyrir verkefnið þannig að öðru leyti eru menn bara nokkuð heilir.“

Snorri Steinn nefndi það á blaðamannafundi dagsins að verkefni í nóvember litaðist gjarnan af því að stórmót í janúar væri skammt undan. Hvað á hann við með því og hvernig mun þetta litast af því?

„Bara að því leytinu til að allt sem þú gerir núna, það er alveg líklegt að þú takir eitthvað af því með þér inn í næsta verkefni og þegar þú skilur svo við liðið eftir þetta verkefni þá viltu náttúrulega hafa góða tilfinningu og hafa spilað vel og unnið þessa leiki og að það sé eitthvað gott að byggja á í staðinn fyrir að vera með eitthvað óbragð í munninum og þurfa þá að fara að moka það upp þegar við komum næst saman,“ segir Snorri Steinn og bætir við:

„Það er kannski mest á þann hátt sem þetta svona litar það. Að því sögðu þá eru þetta líka bara tveir stakir mótsleikir í allt öðru móti heldur en einhver janúar og við þurfum að bara bera virðingu fyrir því og nálgast þessa leiki þannig og gerum það ekkert öðruvísi. Þurfum bara að undirbúa okkur vel og gera þetta vel og ef það er raunin þá kannski getur þetta nýst okkur á góðan hátt fyrir janúar.“

Um er að ræða fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM 2028. Liðið mætir fyrst Úkraínu hér heima í Laugardalshöll miðvikudaginn 4. nóvember og svo Eistum ytra í Tallinn sunnudaginn eftir. En hvernig er þessi áskorun?

„Þetta eru ólík lið og varðandi Úkraínu, þá eru þeir náttúrulega bara í þannig aðstæðum sem enginn getur sett sig í og ég þarf bara að sjá hvaða leikmenn þeir koma með til landsins fyrir það fyrsta,“

„Auðvitað er ég búinn að skoða þeirra leiki frá því á síðasta stórmóti. Þeir voru þar bara í smá veseni en geta alveg spilað handbolta inn á milli og eru með leikmenn sem eru að spila í Evrópu og við þurfum bara að mæta einbeittir og klárir til leiks og bera virðingu fyrir því að við séum að spila landsleik og mótsleik og það hefur bara verið raunin alveg frá því ég tók við og ég hef ekkert miklar áhyggjur af því,“ segir Snorri og bætir við:

„En það þarf samt að gera það, eins og ég var að segja, til þess að við fáum eitthvað út úr þessu verkefni, þá þurfum við að gera þetta 100 prósent.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×