Enski boltinn

Aftur vand­ræða­gangur hjá Manchester United fyrir úti­leik gegn Leeds

Andri Broddason skrifar
Jason Wilcox var harðlega gagnrýndur í vikunni og það ekki í fyrsta skipti sem knattspyrnustjóri Manchester United.
Jason Wilcox var harðlega gagnrýndur í vikunni og það ekki í fyrsta skipti sem knattspyrnustjóri Manchester United. Catherine Ivill/Getty Images

Manchester United heimsækir Elland Road á sunnudaginn þar sem liðið mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni. Sagan virðist ætla að endurtaka sig þar en síðast þegar liðið heimsótti Leeds varð dramatík þegar Jason Wilcox, knattspyrnustjóri Manchester United, var gagnrýndur af þáverandi þjálfara Manchester United, Ruben Amorim. Nú er aftur verið að gagnrýna Wilcox en varnarmaðurinn Lisandro Martinez gagnrýndi aðgerðaleysi stjórnar félagsins eftir að félagið tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni.

Á síðasta tímabili var þjálfarasætið orðið heitt undir Amorim þegar liðið heimsótti Elland Road. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en blaðamannafundur eftir leikinn átti eftir að vekja mikla athygli.

Þar sagðist Amorim ekki fá að stjórna þeim hlutum sem hann vildi þegar hann var ráðinn sem þjálfari liðsins. Seinna kom í ljós að fyrir leikinn gegn Leeds hafi Amorim farið á fund með Wilcox þar sem Amorim var beðinn um að breyta leikkerfinu sínu. Portúgalski þjálfarinn hafði engan áhuga á því og hélt áfram að spila sitt 3-4-3 kerfi.

Amorim var rekinn sem þjálfari Manchester United tveimur dögum eftir jafnteflið gegn Leeds til þess að losa um spennuna milli stjórnar og þjálfara. Það sem hjálpaði stjórninni í þessari ákvörðun var að gengi liðsins var ekki gott undir þjálfun Amorim og því hafi stuðningsmenn verið ánægðir með ákvörðunina.

Bjargvætturinn Carrick

Michael Carrick var ráðinn til að taka við félaginu út tímabilið og náði hann að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir Manchester United. Eftir þann frábæra árangur var hann ráðinn sem þjálfari liðsins.

Eins og greint var frá í gær fór Lissandro Martinez á fund með stjórn Manchester United eftir gagnrýni hans á aðgerðir stjórnarinnar. Staðan um helgina virðist því vera keimlík því þegar liðin mættust síðast á heimavelli Leeds.

Það sem Lissandro Martinez gagnrýndi mest var að stjórn Manchester United fjárfesti ekki nógu mikið í að styrkja leikmannahóp félagsins. Það var ljóst að því að ná Meistaradeildarsæti fylgir meira leikjaálag og þurfti liðið fleiri leikmenn í hverja stöðu til þess að geta hvílt leikmenn og róterað liðinu.

Vantar leikmenn í margar stöður

Andrey Santos, Youri Tielemans og Carlos Baleba voru þeir leikmenn sem voru keyptir en allir þessir leikmenn eru miðjumenn. Liðið er án vinstri bakvarðar þar sem Luke Shaw er meiddur og án hreinræktaðs framherja á meðan Benjamin Sesko er einnig meiddur.

Jason Wilcox er því í vandræðum enn og aftur fyrir útileik gegn Leeds en málið verður ekki jafn auðveldlega leyst núna. Síðast gat hann einfaldlega rekið Amorim en það er erfiðara að gera það með mikilvægan leikmann eins og Martinez. Því lengur sem vandræðagangur Manchester United heldur áfram því meiri sannleikur er í gagnrýni Martinez á Wilcox.

Leikur Leeds og Manchester United er sýndur í beinni útsendingu á sunnudaginn á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×