Sport

Lokuðu hurðum hallarinnar eftir kvartanir leik­manna

Andri Broddason skrifar
Skipuleggjendur mótsins voru fljótir að bregðast vuð athugasemdum Anders Antonsen.
Skipuleggjendur mótsins voru fljótir að bregðast vuð athugasemdum Anders Antonsen. VCG/VCG via Getty Images

Opna danska meistaramótið í badminton stendur nú yfir í Óðinsvéum þar sem stærstu badmintonstjörnur heims spila. Keppendur kvörtuðu yfir vindi í höllinni og var nokkrum inngöngum í höllina lokað vegna þess.

Þrátt fyrir að mót séu haldin inni í íþróttahöllum berst vindur inn í húsið annaðhvort að utan eða úr loftræstingu hússins. Badmintonkúla er fislétt og vegur aðeins fimm grömm og því hefur vindur mikil áhrif á flug boltans.

Anders Antonsen, ein skærasta badmintonstjarna Danmerkur, átti í erfiðleikum með að slá kúluna og biðlaði til skipuleggjanda mótsins að laga vandamálið.

„Boltinn tekur dýfu niður, svo það er virkilega erfitt að tímasetja höggin sín. Þú sérð hvað það fara margir boltar í netið þegar vindurinn er í bakið. Það er vegna þess að boltinn tekur dýfu rétt áður en þú slærð,“ sagði Anders Antonsen í viðtali við TV2 eftir sigur hans á Cheuk Yiu Lee í 32-liða úrslitum.

Skipuleggjendur mótsins voru ekki lengi að bregðast við og hafa lokað nokkrum inngöngum í keppnishöllina og sett borða fyrir. Einnig var blað límt á hurðina sem bendir á að hurðin sé lokuð vegna vinds.

Íslandsvinurinn mætir heimsmeistaranum

Chou Tien Chen hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og virðist kunna vel við sig hér.Shi Tang/Getty Images

Íslendingavinurinn Chou Tien Chen hefur spilað vel á mótinu og tryggði sig í 8-liða úrslitin í dag eftir nauman sigur á Koki Watanabe. Hann á erfiðan mótherja í 8-liða úrslitunum þar sem hann mætir ríkjandi heimsmeistaranum Alex Alanier frá Frakklandi.

Það má því búast við æsispennandi leik þar sem báðir leikmenn hafa verið að spila upp á sitt besta á síðustu mótum

Hægt er að fygljast með mótinu í beinni útsendingu á Youtube-rás BWF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×