Menning

Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Olga Sonja ákvað að nýta púðlusafnið sem hún erfði eftir ömmu sína í sýningu um móðurhlutverkið og kvenarfinn.
Olga Sonja ákvað að nýta púðlusafnið sem hún erfði eftir ömmu sína í sýningu um móðurhlutverkið og kvenarfinn. Björgvin Sigurðarson

Leikkonan Olga Sonja Thorarensen eignaðist fyrir nokkrum árum sitt fyrsta barn og missti um svipað leyti ömmu sína. Hún erfði eftir ömmuna safn af tvö hundruð púðluhundastyttum úr postúlíni og ákvað með systur sinni, dansaranum Salóme Sól Norðkvist, að vinna upp úr safninu leikritið Púðlusafnið. Þar takast þær á við fjölskylduarfinn og umbreytingarnar sem fylgja móðurhlutverkinu.

Púðlusafnið er nýtt íslenskt sviðsverk innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder og óvenjulegum púðluarfinum. Styttusafnið hefur legið ósnert í kössum en verður nú tekið upp og fær nýjan tilgang í verki sem fléttar saman heimildaleikhúsi og fantasíuheimi næturtíkarinnar. 

Höfundar og flytjendur sýningarinnar eru systurnar Olga Sonja og Salóme Sól og leikstjórn sýningarinnar er í höndum Köru Hergils Valdimarsdóttur og Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. 

Púðlusafnið verður frumsýnt næstkomandi föstudag í Tjarnarbíói og ræddi blaðamaður við systurnar um þessa óvenjulegu sýningu, aðdragandann að henni og hvernig hugmyndin að henni kviknaði.

Ónærgætin spurning til ömmu

„Púðlusafnið er tenging mín við það þegar ég var barn og lék mér fyrir framan skápinn þar sem amma geymdi safnið. Ég bjó oft hjá ömmu og afa þannig að þau spiluðu stóran þátt í uppeldi mínu, voru smá eins og aukaforeldrar og amma svolítið eins og mamma númer tvö,“ segir Olga Sonja um safnið sem telur hátt í tvö hundruð púðluhunda.

Hugmyndin kviknaði fyrir nokkrum árum.Björgvin Sigurðarson

„Þegar ég var barn spurði ég ömmu hvort ég mætti eiga safnið þegar hún væri dáin. Þá áttaði ég mig ekki á því hversu ónærgætin spurningin væri og hvað hún í raun og veru þýddi. Ég mundi alltaf þetta samtal því mér fannst það svo beinskeytt og amma gerði það greinilega líka,“ bætir hún við.

Um svipað leyti og Olga Sonja eignaðist sitt fyrsta barn fyrir nokkrum árum og var að reyna að finna sig í móðurhlutverkinu þá féll amma þeirra systra frá. Olga erfði þá styttusafnið.

„Púðlusafnið hefur síðan legið í kössum inni í geymslu hjá mér í mörg ár og mér fannst það algjör synd. Þær eru stórkostlegar og ættu að vera sýnilegar,“ segir Olga Sonja.

Systurnar tækla móðurhlutverkið og samband sitt við ömmu sína.Björgvin Sigurðarson

Hvatti systurina til að hætta í jarðfræði

„Nokkrum mánuðum eftir að amma lést fékk ég símtal frá Olgu Sonju. Hún hafði erft púðlusafnið hennar ömmu en vissi ekkert hvar hún ætti að koma því fyrir heima hjá sér í Berlín. Þá spurði hún mig hvað mér fyndist um að gera sýningu um safnið og gefa því tilgang á ný,“ segir Salóme Sól um kveikjuna að sýningunni.

„Mér fannst þessi hugmynd brilljant og hvatti Olgu til að hætta í jarðfræði og sækja um listamannalaun. Síðan hófst samtal um hvaða heim við gætum skapað í kringum þetta safn. Við fórum að rifja upp samband okkar við Púðlusafnið frá því að við vorum krakkar og í leiðinni rifjuðust upp minningar af ömmu en líka spurningar sem við höfðum um hana,“ bætir hún við.

Salóme Sól er dansari og tónlistarkona.Björgvin Sigurðarson

„Um svipað leyti var ég að lesa bókina Nightbitch eftir Rachel Yoder, sem fjallar um listakonu sem verður heimavinnandi móðir. Hún er að glíma við erfiðleika sem fylgja þessu nýja hlutverki og byrjar að taka hamskiptum og breytast í tík á nóttunni. Eins og varúlfur nema hún breytist í hund,“ segir Olga Sonja.

„Þegar ég las bókina var ég nýlega orðin móðir sjálf, bjó erlendis og svo kom Covid og ég tengdi við svo margt sem móðirin upplifði, einangrun og einmanaleika. Þannig kviknaði eiginlega hugmyndin að því að gera sýningu. Einhvern veginn tengdist þetta allt, safnið sem samanstóð af hundruðum púðluhundastytta og næturtíkin,“ bætir hún við.

„Ég fer þá að reyna að spegla mig í ömmu og hugsa til þess hvernig hún gerði þetta allt saman. Hún eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var sautján ára og var orðin þriggja barna móðir 25 ára.“

Púðlusafnið er sýnt í Tjarnarbíói.Björgvin Sigurðarson

Blanda saman púðlusafninu við minningar og næturtíkina

„Við áttuðum okkur á því hvað þetta púðlusafn er sterk sameiginleg tenging okkar við ömmu og hennar heimili. Þessar púðlustyttur voru svo merkilegar fyrir okkur. Púðlusafnið var í raun upphafspunkturinn og það býður upp á endalausa fantasíu. Það er hægt að tengja svo margt við þessar púðlur og það einhvern veginn býður ímyndunaraflinu að leika lausum hala,“ segir Salóme Sól.

Nokkrar af styttunum úr púðlusafninu.

„Okkur fannst passa að gera verkið saman þar sem það er að hluta til um ömmu okkar og safnið hennar. Okkur fannst áhugavert að sjá hvort við minntumst ömmu á ólíkan hátt og ég held að sé líka áhugavert að fá sjónarhorn okkar beggja á móðurhlutverkið, ég verandi móðir en hún ekki,“ bætir Olga við.

Verkið er blanda af heimildaleikhúsi og fantasíuheimi. Hvernig lýsir það sér?

„Við erum við sjálfar á sviðinu og notum okkar persónulegu upplifanir og minningar en leyfum okkur að fara inn í fantasíuna líka. Blöndum saman minningum, myndefni og öðru um ömmu okkar við tilbúinn heim þar sem við leyfum okkur að taka hamskiptum,“ segir Olga Sonja en auk þeirra tveggja verða púðlustytturnar allar á sviðinu.

Púðlusysturnar skríða eftir gólfinu.Björgvin Sigurðarson

Verkið er unnið í samsköpunarferli níu kvenna sem telur systurnar, leikstjórana tvo og fleiri til. Leikritið hefur verið í vinnslu síðasta árið og fæðst í nokkrum lotum.

„Við erum að vinna verkið í nánu samstarfi við hópinn og hendum hugmyndum fram og til baka. Verkið hefur smám saman orðið til yfir síðasta árið og má segja að það sé ennþá að breytast, sem okkur finnst gott. Heldur þessu lifandi,“ segir Salóme Sól.

Þið hafið birt óvenjuleg myndbönd í aðdraganda sýningarinnar. Hverju eiga áhorfendur von á?

„Áhorfendur mega eiga von á einlægri sýningu, við erum að fjalla um persónulegar upplifanir af því að verða móðir og eins að vera systur og barnabörn ömmu okkar. En notumst líka við húmor og dans í verkinu,“ segir Salóme Sól.

Sýningin veltir því upp hvað konur erfa og hvað þær eiga að verða þegar þær verða mæður. Systurnar reyna að komast nær ömmu sinni og sjálfum sér í gegnum púðlusafnið og taka hægfara hamskiptum á sviðinu gegnum sýninguna þar sem þær breytast í púðlutíkur og verða smám saman hluti af safninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.