Fótbolti

KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA

Aron Guðmundsson skrifar
Gianni Infantino er forseti FIFA. 
Gianni Infantino er forseti FIFA.  EPA/CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH

Búist er við því að FIFA leggi fram til­lögu sem sér til þess að hvert aðildar­sam­band Alþjóðaknatt­spyrnu­sam­bandsins fái því sem nemur rúmum þremur milljörðum króna.

The Athletic greinir frá en væntanleg tillaga FIFA snýr að því að útdeila um sex milljörðum Bandaríkjadala til aðildarsambanda á fjögurra ára tímabili frá árinu 2027 til og með 2030.

Hvert aðildarsamband, þar á meðal Knattspyrnusamband Íslands, fengi þar af leiðandi um 25 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut, eða sem nemur rúmum þremur milljörðum íslenskra króna.

Upprunaleg áætlun FIFA gerði ráð fyrir því að hvert aðildarsamband myndi fá um 10 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut, því sem nemur rúmum 1,2 milljörðum íslenskra króna, en nú á að hækka þá upphæð gríðarlega.

Til þess að mæta hækkuninni myndi FIFA úthluta meira en 3,5 milljörðum Bandaríkjadala úr varasjóði sínum og það á grundvelli fordæmalausrar viðskiptalegrar velgengni heimsmeistaramóts karla sem fór fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó síðasta sumar. Þetta hefur The Athletic eftir heimildarmanni sínum sem hefur verið upplýstur um tillögu FIFA.

Þessi væntanlega hækkun kemur þó á tímapunkti þar sem mikil óánægja hefur verið ríkjandi með Gianni Infantino, forseta FIFA, sem hefur ítrekað verið sakaður um spillingu og slæma stjórnarhætti. Infantino gerði tilraun til þess fá einkafjárfesta til að kaupa hlut í innviðum sambandsins.

Tillagan verður rædd á fundi stjórnar FIFA á morgun. Verði hún samþykkt þar mun hún fara í umræðuferli og kláruð af stjórn FIFA í desembær næstkomandi. Það verður síðan undir ársþingi FIFA komið í mars á næsta ári að samþykkja tillöguna endanlega. 


Tengdar fréttir

Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn

Gianni Infantino mun verða endurkjörinn sem forseti FIFA á aðalfundi alþjóðasambandsins í mars næst komandi. Í sumar voru allir mættir til að fella kónginn en honum verður ekki steypt af stóli svo glatt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×