Sport

Dag­skráin í dag: Liver­pool, Man. City, PSG og Real í Meistara­deild Evrópu

Sindri Sverrisson skrifar
Liverpool og Manchester City verða bæði í eldlínunni í dag eftir að hafa mæst á Anfield á sunnudag þar sem City vann 3-0 sigur.
Liverpool og Manchester City verða bæði í eldlínunni í dag eftir að hafa mæst á Anfield á sunnudag þar sem City vann 3-0 sigur. Getty/Alex Pantling

Eftir bráðfjörugan gærdag er dagskráin litlu síðri á sportrásum Sýnar í dag en þar verður Meistaradeild Evrópu í fótbolta í aðalhlutverki að þessu sinni.

Liverpool-menn verða snemma á ferðinni því þeir mæta LASK í Austurríki klukkan 16:45 á Sýn Sport Viaplay.

Liðið sem að allir hafa verið að tala um síðustu vikur, Manchester City, tekur svo á móti Evrópumeisturum PSG á Sýn Sport 2 klukkan 19.

Fylgst verður með þeim leik sem og öllum öðrum leikjum kvöldsins í Meistaradeildarmessunni þar sem Gummi Ben og félagar verða á léttu nótunum eins og endranær.

Þeir sem vilja frekar horfa á staka leiki geta séð Aston Villa mæta Fenerbahce, Real Betis mæta Porto eða Roma mæta Real Madrid.

Öll helstu atvik leikjanna má svo sjá í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport um klukkan 21.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×