Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar 13. október 2026 12:31 Nýlega var settur á laggirnar spretthópur um fjárhagsaðstoð og stuðningskerfi Kópavogsbæjar sem á að hafa „það hlutverk að rýna fyrirkomulag, reglur, verkferla og framkvæmd fjárhagsaðstoðar og annarra stuðningskerfa Kópavogsbæjar.“ Bæjarráð samþykkti tillöguna um að stofna hópinn samhljóða enda var megináhersla lögð á að skoða skyldi hvort kerfið væri gagnsætt, samræmt og þjónaði fólkinu sem á því þarf að halda og hinn hlutinn af tillögunni gekk út á að skoða hvort nokkuð bæri á misnotkun á kerfinu. Að mínu mati þótti þetta vísun til þess að hér væru í gangi góð vinnubrögð þar sem mögulega væri grunur um einhverjar misfellur og að hér væri þverpólitísk sátt um að skoða, í samstarfi við starfsmenn bæjarins, kerfið út frá ólíkum öngum. Nokkrum dögum síðar opnaði ég vefmiðla yfir kaffibollanum og svelgdist á þegar ég las viðtal við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, á Mbl.is. Þar fór hún yfir þær fregnir að þessi spretthópur hefði verið stofnaður og tildrög hans. Í viðtalinu fór hún jafnframt yfir forsendur sem ekki þótti ástæða til að tiltaka í gögnum sem bárust bæjarráði, meðal annars mikla hækkun á hlutfalli erlendra ríkisborgara meðal þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð hjá Kópavogsbæ frá árinu 2021. Þessu var slegið upp í undir fyrirsögninni „Útlendingar nú 71% þeirra sem að fá fjárhagsaðstoð” og jafnframt haft eftir Ásdísi að ekkert benti til þess að misnotkun væri að eiga sér stað, en að hún vildi meina að fleiri væru að sækja í stuðning sveitarfélagsins en áður. Umræðunni lauk þó ekki þar. Daginn eftir birtist viðtal við bæjarstjóra á Vísi undir fyrirsögninni „Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð“. Þar kemur fram að til skoðunar sé hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma áður en það eigi rétt á fullri fjárhagsaðstoð og vísar bæjarstjóri þar meðal annars til danskra reglna. Á sama tíma tekur hún aftur fram að engar vísbendingar séu um misnotkun á kerfinu. Gögnin sýna aðra mynd Ég óskaði í kjölfar þessa viðtals við bæjarstjóra og fréttaflutnings um málið eftir gögnunum sem liggja að baki þessum fullyrðingum. Ég fékk í hendurnar samanburð milli fyrstu sjö mánaða ársins 2021 og 2026 og þær tölur sýna að þrátt fyrir að nú þiggi fleiri erlendir ríkisborgarar fjárhagsaðstoð frá bænum þá sýna gögnin ekki sambærilega aukningu í heildarútgjöldum sveitarfélagsins og ætla mætti af þeirri mynd sem dregin hefur verið upp í umræðunni. Fjölgun hlutfalls erlendra ríkisborgara af þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Kópavogsbæ þarf svo jafnframt að setja í samhengi. Verið er að bera saman tölur frá 2021 við tölur frá 2026, en ástæða þess að einmitt þessi ártöl eru borin saman liggur ekki ljós fyrir. Það sem liggur þó ljóst fyrir er að miklar samfélagslegar breytingar hafa orðið á síðastliðnum fimm árum og þessi gögn verður að skoða út frá því. Bæði hefur innflytjendum fjölgað á Íslandi almennt og auk þess tók Ísland á móti fjölda flóttafólks í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Undirrituð tók fyrst sæti í bæjarstjórn Kópavogs í júní og er ef til vill enn þá að læra á það hvernig pólitík virkar. En ég tek hlutverk mitt og okkar sem sitjum í bæjarstjórn alvarlega og eitt af því sem skiptir mig máli er að við segjum satt og rétt frá. Það er ábyrgðarhlutverk að stýra sveitarfélagi og mikilvægt að ákvarðanir sem teknar eru á vettvangi nefnda og ráða á vegum bæjarins séu teknar út frá réttum gögnum. Það er ekki síður mikilvægt að gögn séu ekki slitin úr samhengi og þeim varpað fram í fjölmiðlum með þeim hætti að þau gefi villandi mynd af stöðunni og ýti þar með undir tortryggni í garð ákveðinna viðkvæmra hópa. Við í Samfylkingunni viljum frekar hvetja bæjarstjóra Kópavogs til að beina sjónum sínum að því hvers vegna sífellt stærri hópur fólks af erlendum uppruna þarf að reiða sig á fjárhagsaðstoð Kópavogsbæjar og skoða nánar hvernig megi grípa fyrr inn í með virkniúrræðum, félagsráðgjöf, íslenskukennslu og öðrum leiðum til að styðja við inngildingu og virka þátttöku í samfélaginu. Við viljum hjálpa íbúum bæjarins, ekki mála upp ósanngjarnar myndir af þeim í fjölmiðlum til að fóðra pólitíska orðræðu sem lítil, og sennilega engin, innistæða er fyrir. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun