Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar 10. október 2026 07:02 Hvað er að frétta af Ásgeiri Jónssyni Seðlabankastjóra og unnustu hans? Það er erfitt að vita, því fjölmiðlar nenna ekki að reyna að finna út úr því. Nema Heimildin, sem hefur fjallað um þetta meiriháttar hneykslismál öðru hverju. Fyrir ári var þar sagt frá því að Seðlabankinn "kannaði hagsmunaárekstra" vegna þess að unnusta bankastjórans stýrir fjárfestingasjóði, en eftirlit með slíkum sjóðum heyrir undir Fjármálaeftirlitið, sem 2020 var sameinað Seðlabankanum. Fyrir utan hinn augljósa hagsmunaárekstur eru starfsmenn bankans bókstaflega vanhæfir til að rannsaka hluti sem varða yfirmann þeirra, samkvæmt 5. mgr. 3. greinar stjórnsýslulaga. En almennt virðist æðsta fólk í íslenska valdakerfinu telja að lög séu bara fyrir sauðsvartan almúgann og aðra aumingja að fara eftir. Auk þessa lítur það illa út að Seðlabankastjóri býr yfir ýmsum trúnaðarupplýsingum sem geta verið fjárfestum dýrmætar, og opinbert siðferði krefst þess að tilhögun hlutanna veki ekki grunsemdir um misnotkun valds. Og hér er ekki um neina smápeninga að ræða; fyrirtæki unnustunnar mun hafa fengið rúmar 60 milljónir í fyrra fyrir umsjón með fjárfestingasjóðnum sem er kjarni þessa hagsmunaárekstrar. Reyndar sagði Seðlabankinn ósatt um málið í upphafi, þegar fullyrt var að sjóður unnustunnar fjárfesti aðeins í erlendum bréfum. En hvað er smá skreytni fyrir vin, sem er að auki yfirmaður manns? Þar sem Forsætisráðuneytið ber ábyrgð á bankanum spurði ég það fyrir rúmu ári, 15. september í fyrra, hver rannsakaði mál af þessu tagi. Svarið var þetta: "Forsætisráðuneytið fer með almennt eftirlit með starfrækslu Seðlabanka Íslands á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands. Ráðuneytið og Seðlabankinn eru í samskiptum vegna málsins." Fyrir ári var staðan sem sagt þessi: Unnusta Seðlabankastjóra þiggur marga tugi milljóna á ári fyrir að reka fjárfestingasjóð sem heyrir undir Fjármálaeftirlitið, sem er hluti af Seðlabankanum, sem heyrir undir Seðlabankastjóra, undirmenn hans eru að "rannsaka" mögulegan hagsmunaárekstur, og Forsætisráðuneytið, sem er yfir Seðlabankanum, er með hendur í vösum, en hins vegar "í samskiptum" við bankann um málið ... Fjórum mánuðum eftir að ég fékk ofangreint svar frá ráðuneytinu, þann 26. janúar, spurði ég hvað hefði komið út úr þessum "samskiptum". Svarið kom fáum dögum síðar: "Yfirferð Seðlabanka Íslands yfir innri verkferla þegar upp kemur vafi um hæfi stjórnenda er ekki að fullu lokið. Ráðuneytinu hefur verið haldið upplýstu um þá vinnu." Þá hafði sem sagt í marga mánuði verið í gangi "yfirferð" yfir "verkferla", vegna vafa um hæfi Seðlabankastjóra. Að sjálfsögðu datt engum í hug að hann þyrfti að víkja meðan verið væri að rannsaka hvort hann væri vanhæfur til að gegna þessu embætti. Þannig er staðan enn í dag, við erum með Seðlabankastjóra sem er mögulega vanhæfur til að gegna starfinu, samkvæmt "eftirlitsaðilum" innan bankans, vegna hagsmunaárekstrar sem ekkert hefur verið gert til að stöðva ... Tveim mánuðum eftir umrætt svar spurði ég svo hvar málið væri statt og hvort ráðuneytið teldi sig ekki þurfa að rannsaka málið sjálfstætt, frekar en að láta bankann bara rannsaka sjálfan sig. Nú fékk ég ekkert svar, og ítrekaði spurninguna öðrum tveim mánuðum síðar, í byrjun júní, og fékk aftur ekkert svar. Fyrir rúmum tveim vikum, ári eftir að ég hafði fyrst spurt um þetta, ítrekaði ég enn og þá var svarið á þessa leið (fyrir utan afsökunarbeiðni): "Ég taldi mig hafa svarað þér þarna í júní en sé að svo er ekki. Þá var ekkert nýtt að frétta af málinu en ég athuga málið aftur núna." Viðkomandi starfsmaður ráðuneytisins hefur líklega verið í fullri vinnu síðan við að athuga hvað ráðuneytið er að gera í málinu. Á meðan er unnusta Seðlabankastjóra væntanlega að lesa í andlitið á unnusta sínum þegar þau hlusta á fjármálafréttir, til að giska á hvort peningastefnunefndin muni hækka vexti eða lækka á næsta fundi, og hvort banki unnustans ætli að kaupa mikið af evrum næsta mánuðinn. Og svo trúlega að velta fyrir sér hvort hún nái hundrað milljóna markinu á næsta ári, allt undir vökulu auga Fjármálaeftirlitsins, sem heyrir undir Seðlabankann, sem heyrir undir unnustann... Höfundur er stærðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Steingrímsson Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun