Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Hjörvar Hafliðason, Birkir Karl Sigurðsson, Leifur Þorsteinsson, Þórarinn Hjartarson, Gísli Freyr Valdórsson, Gurrý Jónsdóttir, Lína Birgitta og Sólrún Diego skrifa 9. október 2026 14:30 Fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar skrifaði grein á Vísi í vikunni, mætti svo í Bítið á Bylgjunni og kvartaði undan því að bakarar væru hengdir fyrir smiði. Nefndin væri aðeins að framfylgja lögum Alþingis og fengi ómaklega skömm í hattinn fyrir. Forsagan er þessi: Undanfarna mánuði hefur Fjölmiðlanefnd krafist þess að stjórnendur vinsælla hlaðvarpa skrái þætti sína sem fjölmiðla, ella megi þeir búast við háum fjársektum. Við sem skrifum undir höfum fengið slík bréf. Sum okkar mjög mörg. Líkingin um bakarann og smiðinn er ágæt, en í hana vantar eina persónu. Smiðurinn er Alþingi, sem smíðar lögin. Bakararnir eru fólkið sem býr eitthvað til úr engu, oftast á kvöldin og um helgar, á eigin kostnað og eigin ábyrgð. Og svo er það glassúrfólkið. Glassúrfólkið hvorki bakar né smíðar. Það kemur að kökunni þegar aðrir hafa bakað hana og skreytir hana reglum, eyðublöðum og sektarhótunum. Og það fær greitt um hver mánaðamót, hvernig sem kakan bragðast. Ein á villigötum Lögin eru sannarlega opin til túlkunar og það þarf að skýra þau. Nefndin kýs hins vegar að teygja þau eins langt og þau ná, hlaðvörpum í óhag, og ber sig svo aumlega í fjölmiðlum þegar fundið er að því. Ekkert Norðurlandanna fer sömu leið og íslenska Fjölmiðlanefndin. Ráðuneyti fjölmiðlamála hefur sagt að útgangspunkturinn sé að hefðbundin hlaðvörp verði ekki skráningarskyld og ráðherrann vill ekki að eftirlit „kæfi vaxtarbrodda í fæðingu“. Lögin eru til endurskoðunar og frumvarp er boðað í síðasta lagi í mars. Þetta veit framkvæmdastjórinn. Samt gengur nefndin sjálfala og heldur ótrauð áfram, þótt henni sé ljóst að lögunum verði breytt eftir nokkra mánuði. Það heitir ekki að framfylgja lögum. Það heitir að hafa skoðun og beita skriðþunga ríkisins til að knýja hana fram, á veikum lagagrunni. Glassúr er fitandi Alþingi setti lögin, það er rétt. En það var nefndin sem samdi leiðbeiningar um skráningu hlaðvarpa, leiðbeiningar sem hún segir sjálf að séu „hvorki almenn lög né lögskýringargagn“. Og það var nefndin sem ákvað hvaða hlaðvörpum skyldi skrifað. Nú segir framkvæmdastjórinn að hlaðvörp séu „ekki sjálfkrafa fjölmiðlar“ og að máli skipti hvort þau séu vinsæl og skili tekjum. Hvorugt stendur í lögunum. Hún segir líka að landslag fjölmiðla sé svo kvikt að lögin geti ekki sagt til um hvar línan liggur. Samt hótar nefndin fólki sektum fyrir að fara yfir hana. Sum okkar hafa stýrt stórum ritstjórnum og vita vel hvað felst í því að reka fjölmiðil. Það sem við gerum í hlaðvörpunum er allt annað. Og raunar töluvert ómerkilegra, sé út í það farið. Táp og fjör við eftirlit Framkvæmdastjórinn segir skráningu ekkert mál. Spyrjið stjórnendur skráðra hlaðvarpa hvort samskiptin við nefndina séu táp og fjör. Hlaðvörpin okkar eru örfyrirtæki. Við skilum sköttum og ársreikningum eins og annar rekstur, og það er sjálfsagt. En það er ekki sjálfsagt að örfyrirtæki þurfi að hafa fólk í vinnu við bréfaskriftir og skýrslugerð fyrir óþarft og duttlungafullt eftirlit. Það er ekki rekstrarkostnaður. Það er sérviska. Og hvar endar sérviska sjálfala nefndar? Hver tryggir að stofnun sem sér ekkert athugavert við framgöngu sína í dag - að fólk þurfi að tilkynna sig sérstaklega til stjórnvalds til að mega tjá sig - fari ekki að túlka lögin upp á nýtt á morgun? Í dag eru það hlaðvörp. Á morgun Facebook-statusar og prjónauppskriftir. Rökin halda ekki Ekkert okkar er að biðja um sérmeðferð. Við lútum að sjálfsögðu lögum í landinu. En meðal raka fyrir skráningu hlaðvarpa eru auglýsingar á áfengi, nikótíni og fjárhættuspilum. Slíkar auglýsingar eru þó nú þegar bannaðar í hlaðvörpum eins og annars staðar. Þá er því haldið fram að fólk verði að geta höfðað meiðyrðamál gegn hlaðvarpsstjórnendum. Það getur það nú þegar, enda gilda almenn lög um meiðyrði jafnt um hlaðvörp og annað. Skráning bætir engu við nema eyðublaði og launaðri vinnu fyrir glassúrfólk en ólaunaðri vinnu fyrir fólk sem reynir að skapa verðmæti. Og nefndin, sem segist ekki geta lagt á dagsektir, hefur sjálf vísað til dagsektaheimildar sinnar í bréfum til hlaðvarpara. Framkvæmdastjórinn telur jafnframt óásættanlegt að sumir miðlar sæti eftirliti en aðrir ekki. Nefndin segir sjálf að lögin gildi óháð tækni. Með öðrum orðum lítur framkvæmdastjórinn svo á að eftirlit nefndarinnar sé landamæralaust og nái yfir allt internetið. Samfélagsmiðillinn OnlyFans hlýtur að vera þar undir. Það verður án efa sérstök yfirferð fyrir starfsfólkið og enn annað tilefnið fyrir nefndina að ráða fleira glassúrfólk til starfa. Ungfrú Chill Í Bítinu sagðist framkvæmdastjórinn ekki vera „Ungfrú Átök“, heldur „Ungfrú Chill“. Hún sagði líka að hlaðvörp væru stærsti vaxtarbroddurinn. Undir það má taka. Á íslensku eru nú til hlaðvörp um stjórnmál, íþróttir, sögu, heilsu, viðskipti, snyrtivörur, fæðingar, gömul morðmál og daginn og veginn, sem fólk hlustar á í bílnum, í ræktinni og við uppvaskið. Á tímum þegar mikið er rætt um stöðu tungumálsins í heimi streymisveitna og enskumælandi efnis ætti slík gróska að vera stjórnvöldum fagnaðarefni. Samt gerir nefndin allt sem í hennar valdi stendur til að standa þeirri grósku fyrir þrifum. Ungfrú Chill hefur aldrei óskað eftir fundi með okkur hlaðvörpurum til að ræða málin, leggja sín sjónarmið á borðið og heyra okkar, eins og ráðherra hefur þó gert. Við fögnum því hins vegar að hún sé sammála okkur um að skýra þurfi lögin og túlkun þeirra. Við erum svo sannarlega til í það samtal, helst áður en til frekari fjársekta kemur. Við komum með kökuna og hún er velkomin með glassúrinn. Höfundar eru stjórnendur hlaðvarpa. Ólöf Skaftadóttir - Komið gott Kristín Gunnarsdóttir - Komið gott Hjörvar Hafliðason - Dr. Football Birkir Karl Sigurðsson - Chess after Dark Leifur Þorsteinsson - Chess after Dark Þórarinn Hjartarson - Ein pæling Gísli Freyr Valdórsson - Þjóðmál Gurrý Jónsdóttir - Spjallið Lina Birgitta - Spjallið Sólrún Diego - Spjallið Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlaðvörp Fjölmiðlar Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun