Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar 9. október 2026 14:02 Orð hafa áhrif. Þau geta sært, huggað, aukið skömm, skapað skilning og gefið von. Þetta á ekki síst við þegar við tölum um sjálfsvíg. Orðin sem við veljum, hvort sem er í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum eða í samtölum okkar á milli, geta haft áhrif á það hvernig við skiljum og bregðumst við þessum flókna veruleika. Sjálfsvíg er alltaf harmleikur og á bak við hverja manneskju sem deyr í sjálfsvígi er fjölskylda, ástvinir og samfélag sem tekst á við erfiðan missi og flókna sorg. Áskorun okkar nú er að tryggja varanlega fækkun sjálfsvíga á Íslandi. Við þurfum að halda áfram að styrkja sjálfsvígsforvarnir, tryggja stuðning við fólk í erfiðleikum og skapa samfélag þar það þykir bæði sjálfsagt og eðlilegt að tala um eigin líðan og leita sér hjálpar. Við getum öll lagt okkar af mörkum með ábyrgri og nærgætinni umræðu. Við getum vandað orðin, hlustað með opnum hug, sýnt umhyggju og hjálpað fólki að halda í vonina. Það kostar ekkert en getur skipt miklu máli. Það má tala um sjálfsvíg Ábyrg umræða þýðir ekki að það megi ekki tala um sjálfsvíg. Enn eimir af þeim misskilningi að það geti aukið hættu á sjálfsvígi að tala um sjálfsvíg. Rannsóknir styðja það ekki, en það skiptir máli hvernig við gerum það. Ábyrg og nærgætin umræða getur því verið mikilvægur hluti af forvörnum. Fyrir einstakling sem glímir við vanlíðan getur opið samtal skapað tækifæri til að tjá sig um það sem er erfitt, að upplifa að hann sé ekki einn, sjá aðra möguleika og fá upplýsingar um stuðning og úrræði. Samtalið getur gefið einstaklingnum dýrmætan tíma til að endurskoða ákvörðun sína. Með því að vanda orð okkar, byggja umræðuna á þeirri þekkingu sem við höfum og nálgast hana af nærgætni getum við stuðlað að hjálplegri og styðjandi umræðu. Hún getur skipt máli fyrir þau sem misst hafa ástvin og gefið fólki sem glímir við erfiðleika von. Forðumst að einfalda ástæður Rannsóknir sýna að það er sjaldnast einn atburður eða erfið lífsreynsla, svo sem sambandsslit, atvinnumissir eða annað áfall, sem getur útskýrt hvers vegna einstaklingur sér ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Sjálfsvíg eiga sér yfirleitt stað í flóknu samspili margra þátta, oft yfir lengri tíma. Þegar einhver deyr í sjálfsvígi er eðlilegt að leita skýringa og reyna að skilja hvað gerðist. Oft er freistandi að tengja andlátið við nýlega eða erfiða lífsreynslu. Slík reynsla getur vissulega haft áhrif á líðan og verið hluti af atburðarásinni, en eitt áfall eða einn atburður skýrir sjaldnast sjálfsvíg. Fólk bregst ólíkt við erfiðleikum og því er mikilvægt að varast einfaldar skýringar og horfa frekar á hið flókna samspil margra þátta. Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígforvarna hjá embætti landlæknis, hefur í samvinnu við Blaðamannafélag Íslands gefið út ráðleggingar um ábyrga umfjöllun um sjálfsvíg í fjölmiðlum. Umræða um sjálfsvíg fer hins vegar ekki aðeins fram í fjölmiðlum heldur einnig í samtölum, á samfélagsmiðlum og í athugasemdakerfum. Ráðleggingarnar eru því gagnlegar öllum sem fjalla um málefnið. Forvitni getur skaðað Það er mörgum eðlilegt að leita skýringa á því hvers vegna viðkomandi dó, hvernig andlátið bar að. Aðstandendur, viðbragðsaðilar, prestar og annað fagfólk sem stendur nærri fá oftar en ekki spurninguna: Hvernig dó viðkomandi? Stundum er spurt beint, en stundum getur spurningin borist í gegnum samfélagsmiðla. Þótt spurningin geti sprottið af löngun til að skilja er mikilvægt að staldra við og spyrja: Hjálpar þessi spurning og hverjum hjálpar svarið? Í ráðleggingum um ábyrga umfjöllun er lögð áhersla á að fjalla hvorki um aðferð né staðsetningu sjálfsvígs, meðal annars vegna hættu á hermihegðun. Almennt ætti því ekki að spyrja um aðferðina eða taka þátt í slíkri umræðu. Betra er að beina athyglinni að því sem skiptir máli: Hvernig líður aðstandendum eftir andlát viðkomandi. Fá þeir viðeigandi stuðning? Hvernig getum við verið til staðar? Í bæklingnum Að finna orðin, sem byggir á viðtölum við aðstandendur sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi, er lögð áhersla á að vera til staðar, vanda orðalag og forðast vangaveltur um ástæður eða aðdraganda. Þannig má draga úr sektarkennd og skömm hjá aðstandendum. Ekki glæpur Orðið „fremja“ eða enska orðið commit vísar í glæpsamlegt atferli, til dæmis að fremja rán eða morð. Þrátt fyrir það hefur orðið “fremja” lengi verið notað í tengslum við sjálfsvíg, þó svo að sjálfsvíg teljist ekki glæpur. Þetta er ekki aðeins umræða sem á sér stað á Íslandi og á íslensku heldur einnig í öðrum löndum og tungumálum. Ástæða þess að lagt er til að forðast orðið „fremja“ er sú að það er talið geta ýtt undir vanlíðan, skömm og sektarkennd meðal eftirlifandi ástvina. Segjum frekar “lést í sjálfsvígi” eða “dó í sjálfsvígi” en “framdi sjálfsvíg”. Ábyrg umfjöllun veitir von Íslenskir fjölmiðlar hafa tekið ráðleggingum um ábyrga umfjöllun um sjálfsvíg mjög vel og ber að þakka það. Í auknum mæli er lögð áhersla á að benda á úrræði og miðla sögum sem sýna að bati er mögulegur og von er til staðar. Tilvísanir í hjálparúrræði fylgja einnig oftast með fréttum og greinum um sjálfsvíg og tengd málefni. Ábendingum um óheppilegar fyrirsagnir eða orðalag er einnig nánast undantekningarlaust vel tekið og textar lagfærðir. Smellibeitur eiga alls ekki við þegar fjallað er um jafn flókið lýðheilsuvandamál og sjálfsvíg. Samtalið heldur áfram Þegar Gulum september lýkur og við fögnum alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 10. október er tækifæri til að minna á að ábyrg og nærgætin umræða skiptir máli allt árið. Með því að vanda orðin, hlusta og miðla þekkingu getum við öll lagt okkar af mörkum til að skapa samfélag þar sem auðveldara er að tala um líðan, leita sér hjálpar og halda í vonina. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MPM verkefnastjóri hjá Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir er bent á Píeta-samtökin, síma 1799, Hjálparsíma Rauða krossins, síma 1717 og netspjallið 1717.is, og Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, síma 1700 og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð er hægt að hringja í 112. Þeim sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, síma 1700 og netspjallið heilsuvera.is, og Sorgarmiðstöð, síma 551-4141 og netfangið sorgarmidstod@sorgarmidstod.is. Einnig er hægt að leita stuðnings hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218. Í neyð er hægt að hringja í 112. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun