Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar 9. október 2026 11:33 Þann 11. september fékk Kaldvík hf. rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði. Talsmenn verkefnisins nefna störf, útflutningstekjur og tekjur fyrir ríki og sveitarfélag. Ég vann nýverið mat á efnahagslegum áhrifum eldisins að beiðni VÁ – félags um verndun fjarðar. Matið byggir á ársreikningum og árshlutauppgjörum Kaldvíkur og opinberum gögnum, og niðurstaðan er í stuttu máli þessi: ávinningurinn er raunverulegur, en hann er lítill. Áhættan er það hins vegar ekki. Fyrst um forsendurnar. Leyfi fyrir 10.000 tonnum er leyfi fyrir hámarkslífmassa, ekki loforð um 10.000 tonna slátrun á ári. Kaldvík áætlar að slátra um 17.000 tonnum í ár en hafði, fyrir utan Seyðisfjörð, leyfi fyrir 43.800 tonnum. Áætluð slátrun félagsins í ár nemur með öðrum orðum innan við 40% af þeim leyfum sem það hefur nú þegar, og það er ekkert einsdæmi: á landsvísu var slátrað um 41.000 tonnum af laxi úr sjókvíum árið 2023 á móti rúmlega 100.000 tonna leyfðum lífmassa. Það sem heldur aftur af eldinu eru sjúkdómar, afföll og fjármagn, ekki skortur á leyfum. Ég geri því ráð fyrir að í Seyðisfirði verði að jafnaði slátrað um 5.000 tonnum á ári. Það er ef eitthvað er bjartsýnt. Um 500 krónur á hvern landsmann Hvað fær ríkið? Stærsti liðurinn er fiskeldisgjaldið, sem leggst á hvert slátrað kíló óháð afkomu. Miðað við gjaldið í ár skila 5.000 tonn um 170 milljónum króna á ári í fiskeldisgjald, og um þriðjungur þess rennur í reynd í Fiskeldissjóð. Við bætast um 27 milljónir í umhverfisgjald, sem reiknast af leyfinu sjálfu, alls um 200 milljónir. Auk þess kemur tryggingagjald af launum, um 21 milljón. Tekjuskattur fyrirtækja verður enginn í fyrirsjáanlegri framtíð, því Kaldvík á um 123 milljónir evra í yfirfæranlegu skattalegu tapi. 200 milljónir króna hljóma eins og há upphæð. Setjum hana í samhengi: hægt væri að kaupa gott einbýlishús fyrir þá upphæð. Hún jafngildir líka um 500 krónum á hvern landsmann á ári. Hún er um 0,01% af áætluðum tekjum ríkissjóðs árið 2027, sem eru rúmlega 1.700 milljarðar króna. Þá á eftir að draga frá kostnað ríkisins við eftirlit, rannsóknir og hugsanlega hreinsun í firðinum ef illa fer. Sveitarfélagið fær hlutfallslega meira, en samt ekki mikið: um 100 milljónir króna á ári í útsvar og eldisgjald til hafna, eða um 19.000 krónur á hvern íbúa Múlaþings. Hluti þess rennur í hafnarsjóð og nýtist því fyrst og fremst til hafnarmála. Störf á við einn veitingastað Og störfin? Ef þeim fjölgaði í réttu hlutfalli við framleiðslu yrðu bein störf 40 til 60. En Kaldvík á fyrir sláturhús sem nýtist aðeins að rúmum helmingi, og félagið rekur sjálft háan sláturkostnað til lítillar nýtingar innviða. Viðbótarframleiðslan nýtir því að stórum hluta fólk og tæki sem þegar eru til staðar. Ég met því að beinu störfin yrðu um 20 til 35, eða um 30 til 50 að meðtöldum óbeinum störfum. Fæst þeirra yrðu þó í Seyðisfirði: seiðaeldið er á Norðurlandi, fóðurgjöfinni er stýrt frá Djúpavogi, slátrun fer fram á Djúpavogi og höfuðstöðvarnar eru á Eskifirði. Í gögnum með umsókn Kaldvíkur um byggingarleyfi segir að við hvert virkt eldissvæði muni starfa þrír til fjórir starfsmenn. Með vaktaskiptum gerir það að mínu mati um 10 störf í bænum sjálfum, á bilinu 5 til 14 eftir forsendum. Það er álíka fjöldi og starfar á einum veitingastað en samkvæmt Hagstofu Íslands störfuðu að jafnaði tæplega 13 manns hjá hverju fyrirtæki í rekstri veitingastaða árið 2024. Það er líka aðeins fjórðungur til þriðjungur þeirra rúmlega 40 starfa sem tapast í bænum við lokun fiskvinnslu Síldarvinnslunnar árið 2024 og fiskimjölsverksmiðjunnar, sem tilkynnt var um í fyrra. Öll eru störfin auk þess háð fjárhagsstöðu félagsins, eins og vikið er að hér á eftir, sem og þeirri forsendu að fiskeldið hafi ekki neikvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar á Seyðisfirði, t.d. ferðaþjónustu, sem tapa gætu störfum ef neikvæð umhverfisáhrif fiskeldisins yrðu of mikil. Útflutningstekjurnar eru af sömu stærðargráðu. 5.000 tonn skila um 4,2 til 4,6 milljörðum króna í brúttó útflutningi. Þegar innflutt fóður, önnur erlend aðföng og vextir til erlendra lánveitenda eru dregin frá verða að mínu mati eftir um 0,8 til 1,4 milljarðar á ári, eða innan við 0,03% af landsframleiðslu. Rekstraraðili í vanda Ávinningurinn, sem væri helst í formi starfa á svæðinu í víðu samhengi, er þó háður því að Kaldvík standi í skilum, og þar liggur vandinn. Félagið tapaði 30,7 milljónum evra árið 2024 og 38,3 milljónum evra árið 2025. Síðari talan er yfir fimm milljarðar króna, eða álíka mikið og allur fyrirhugaður afgangur ríkissjóðs árið 2027. Handbært fé frá rekstri hefur verið neikvætt frá 2023. Móðurfélagið breytti 128 milljónum evra af lánum frá tengdum aðilum í hlutafé á tveimur árum, og án þess hefði eigið fé félagsins verið neikvætt í árslok 2025. Móðurfélagið fékk í ár undanþágu frá lánaskilmálum og 20 milljóna evra víkjandi lán frá stærsta hluthafa sínum. Í ársreikningi 2025 vekur endurskoðandi athygli á verulegri óvissu um rekstrarhæfi félagsins. Þetta er ekki einsdæmi. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands áætlaði að arðsemi eigin fjár í íslensku sjókvíaeldi hefði að meðaltali verið um -5% á árunum 2016 til 2022, þótt afkoman hafi batnað undir lok tímabilsins. Greinin hefur í reynd verið rekin á fjármagni eigenda og lánveitenda. Óafturkræf áhætta Á móti þessum hóflega ávinningi kemur áhætta sem ekki verður snúið við. Skipulagsstofnun taldi eldið geta haft verulega neikvæð áhrif á villta laxastofna vegna erfðablöndunar. Strokulax leitar í ár um allt land, þannig að áhættan er ekki bundin við Austfirði. Í Seyðisfirði sjálfum voru um 75% íbúa andvíg eldinu samkvæmt könnun Gallup árið 2023, og ferðaþjónustan, sem er ein helsta undirstaða bæjarins, keppir um sama fjörð og sömu ímynd. Spurningin er því ekki hvort laxeldi í Seyðisfirði skili einhverju. Það gerir það. Spurningin er hvort um 500 krónur á hvern landsmann á ári og störf á við einn veitingastað í bænum, frá félagi sem tapar milljörðum, í grein sem slátrar árlega innan við helmingi leyfilegs lífmassa, réttlæti óafturkræfa áhættu fyrir villta laxastofna og ferðaþjónustu bæjarins. Ég efast um það. En svo getur vel verið að útreikningar mínir séu rangir. Tölurnar koma að mestu úr ársreikningum Kaldvíkur sjálfs, og ég vona að félagið leiðrétti mig ef svo er. Skýrslan er aðgengileg hér. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Margeirsson Sjókvíaeldi Múlaþing Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun