Formúla 1

Varað við miklum hita yfir kapp­akstrinum í Singapúr

Andri Broddason skrifar
Kappaksturinn í Singapúr er einn líkamlega erfiðasti kappaksturinn.
Kappaksturinn í Singapúr er einn líkamlega erfiðasti kappaksturinn. Robert Szaniszlo/Getty Images

Hitaviðvörun hefur verið gefin út fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Singapúr sem fer fram um helgina. Þetta er í annað skiptið í röð sem varað er við hita í keppni og í fjórða skiptið á tímabilinu.

Til þess að keppni fái hitaviðvörun þarf hitastig að vera spáð því að fara yfir 31 gráðu meðan á keppninni stendur. Þegar keppni fær hitaviðvörun mega ökumenn klæðast kælingarvesti en verða ekki refsaðir fyrir að fara yfir hámarksþyngd bílanna með vestið reiknað með.

Kælivestið skýtur köldum vökva utan um líkama ökumannanna sem heldur þeim köldum. Það eru þó ekki allir ökumenn sem ákveða að klæðast kælingarvestinu þar sem þessi fimm kíló sem vestið vegur geta hægt á bílnum í keppninni.

Einnig er erfitt að halda vökvanum í vestinu köldum yfir alla keppnina þar sem keppnin í Singapúr er ein sú lengsta á tímabilinu. Einnig er ekki mikið pláss fyrir ökumenn í litlum og þröngum bílum og getur aukavesti þvælst fyrir þeim.

Max Verstappen, ökumaður Red Bull, segist ekki vilja nota kælingarvestið vegna þess að það þvælist fyrir honum. Hins vegar eru ökumenn eins og Charles Leclerc, hjá Ferrari, sem taka vestinu fagnandi og þrátt fyrir að það virki ekki alla keppnina þá tekur hann eins mikla kælingu og hann mögulega getur.

Þó að varað við miklum hita er einnig varað við loftgæðum meðan á keppninni stendur þar sem gróðureldar eru í Indónesíu. Reykurinn frá þeim eldum hefur lagst yfir Singapúr og er þykk mengun yfir borginni en þrátt fyrir það á keppnin að halda áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×