Innlent

Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls

Agnar Már Másson skrifar
Útkallið virðst vera við JL-húsið að Hringbraut 121.
Útkallið virðst vera við JL-húsið að Hringbraut 121.

Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði.

Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir.

Slökkviliðið hafi verið ræst út úr portinu á bak við JL-húsið að Hringbraut 121.

Slökkviliðsbílar og sjúkrabílar sáust á ferð við Hringbraut í vesturborg Reykjavíkur um rétt fyrir hálfníu í kvöld.

Frétt hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×