Innlent

Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf

Birgir Olgeirsson skrifar
Hlutfall atvinnulausra um hvert starf hefur ekki verið svo hátt síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar stóð sem hæst.
Hlutfall atvinnulausra um hvert starf hefur ekki verið svo hátt síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar stóð sem hæst. Vísir/Vilhelm

Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé.

Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum í átta prósentum.

Samkvæmt gögnum bankans hefur atvinnuleysi aukist samhliða fækkun lausra starfa. Hlutfall atvinnulausra á móti lausum störfum hefur hækkað hratt að undanförnu og nálgast nú sex.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Vísir/Anton Brink

Hlutfallið byggist á tölum Hagstofunnar um atvinnulausa samkvæmt vinnumarkaðskönnun og laus störf samkvæmt fyrirtækjakönnun.

Viðurkennir hættu á of miklu atvinnuleysi

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var spurður hvort hætta væri á að bankinn héldi vöxtum of háum of lengi og atvinnuleysi ykist meira en nauðsynlegt væri.

„Það er alveg hætta á því, já.“

Ásgeir segir bankann hafa miklar áhyggjur af þróuninni á vinnumarkaði. Þar sé að kólna og atvinnuleysi að aukast.

Launafólki fækkar á almennum markaði

Gögnin sem bankinn kynnti sýna að launafólki á almennum vinnumarkaði fækkaði að meðaltali um 0,7 prósent milli ára á tímabilinu janúar til júlí. Á vinnumarkaðnum í heild fjölgaði launafólki um 0,3 prósent.

Hér er ein af glærum sem sýndar voru til að varpa ljósi á hvernig efnahagsumsvif hafa kólnað og mikill slaki myndast á vinnumarkaði.

Til samanburðar nam árleg fjölgun að meðaltali fimm prósentum á almennum vinnumarkaði á árunum 2021 til 2024 og 3,9 prósentum á vinnumarkaðnum í heild.

Í kynningu bankans kemur jafnframt fram að hægt hafi á vexti einkaneyslu og hagvöxtur haldist tiltölulega lítill.

Sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót

Þrátt fyrir kólnunina á vinnumarkaði telur Ásgeir ekki útlit fyrir að vextir verði lækkaðir á þessu ári. Verðbólga mælist nú 5,9 prósent.

„Ég er ekki að sjá það að við getum lækkað vexti fyrir áramót.“

Hann bindur hins vegar vonir við að verðbólga fari að hjaðna eftir áramót, sérstaklega ef ró næst á vinnumarkaði og áform fjárlaga ganga eftir.


Tengdar fréttir

Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“

Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×