Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. október 2026 12:09 Sólveig Anna er formaður Eflingar. Vísir/Anton Brink Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hvað leiddi fylkinguna að þessari niðurstöðu segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, að stjórnvöld hafi komið að borðinu með umfangsmiklum hætti. „En svo til viðbótar er það auðvitað staðreynd að þegar eru umsamdar launahækkanir sem koma til framkvæmda núna í janúar á næsta ári. Þar erum við að tala um 4, 99% hækkun á töxtum sem verkafólk hringinn í kringum landið er á. Og þegar við horfum á það og sjáum svo það sem stjórnvöld eru að koma með hér að borðinu ásamt sveitarfélögunum sem ætla að halda sínum gjaldskrárhækkunum í hófi, þá metum við það sem svo að þarna sé komið nægilega mikið til móts við okkur og stöðu okkar félagsfólks, að ekki annað sé í boði í stöðunni heldur en að ganga frá framlengingu á samningi,“ segir Sólveig Anna. Nú sitja VR og Fagfélögin á fundi með Samtökum atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara og reyna að ná lendingu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir undirritun Breiðfylkingarinnar ekki hafa áhrif á stöðu þeirra viðræðna sem nú standa yfir. „Þau eru bara búin að finna lendingu sem þau telja ásættanlega fyrir sig. Það erum við ekki búin að gera. Við erum enn í þeirri stöðu að stórir hópar innan okkar félaga hafa verið að taka á sig launalækkanir og erum ekki tilbúin að halda þessum launalækkunum áfram. Þannig að það er enn viðfangsefnið sem að blasir við hérna niðri í Karphúsi þar sem við sitjum á fundi með Samtökum atvinnulífsins og ég vonast til þess að við sitjum saman þar til þetta hefur verið leyst,“ segir Halla. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagðist í Bítinu á Bylgjunni í morgun hafa áhyggjur af því að VR og tengd félög virðast ekki ætla að fylgja fordæmi Breiðfylkingarinnar. Halla svarar þessu. „Það er auðvitað áhugavert að hagfræðingar og fleiri svona málsmetandi aðilar í þessu samfélagi telja að eina leiðin til þess að ná einhverjum árangri í efnahagsmálum fyrir Ísland sé að ákveðnir hópar í þessu samfélagi, fullvinnandi fólk, gangi í gegnum launalækkanir ár eftir ár eftir ár. Og það hlýtur að vera frumskylda okkar sem stöndum í stafni í stéttarfélögum að tryggja að svo verði ekki.“ Sólveig Anna segir það setja þau í undarlega stöðu ef átök verða á almennum vinnumarkaði. Það sé afstaða félagsfólks Eflingar að vilja ekki fórna þeim launahækkunum sem séu fram undan. „Og að láta sem að þessi stóri aðgerðarpakki frá stjórnvöldum sé einhvern veginn einskis virði. Við metum stöðuna ekki þannig að það sé skynsamleg nálgun á þessum tímapunkti að fara hér í ófrið á vinnumarkaði.“ Halla Gunnarsdóttir tekur nú við. „Tja, þá eru þau bara algjörlega búin að setja sig sjálf í þessa undarlegu stöðu sko. Það er búið að liggja fyrir allan tímann að við ætlum ekki að fallast á áframhaldandi launalækkanir og það þarf að ná samkomulagi um það. Það að þau skjótist þarna niður til Samtaka atvinnulífsins seint um kvöld í gær til þess að skrifa undir eitthvert samkomulag frekar en að leyfa þessu samtali að ganga til enda, það er algjörlega þeirra ákvörðun.“
Kjaramál Stéttarfélög Vinnumarkaður Atvinnurekendur Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira