Kane með tvennu í öruggum sigri Andri Broddason skrifar 6. október 2026 18:15 Harry Kane skorar og skorar. vísir/getty Englendingar fljúga hátt þessa dagana og unnu sannfærandi 3-0 sigur á Tékkum í kvöld. Harry Kane var að jafna landsleikjamet Peter Shilton í kvöld en þetta var landsleikur númer 125 hjá honum. Kane hélt upp á áfangann með tveimur mörkum og nálgast nú 100 mörk fyrir enska landsliðið. Þriðja markið var sjálfsmark hjá Tékkum. Englendingar eru í öðru sæti þriðja riðils í A-deildinni. Spánverjar tróna á toppnum með fullt hús. Þjóðadeild karla í fótbolta