Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 6. október 2026 12:11 Halla Gunnarsdóttir segir að samtalið sé orðið efnismeira. Enn sé þó talsverð gjá á milli aðila og tíminn á þrotum. vísir/anton Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum.
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að talsverður hiti hafi verið í fólki á fundinum í gær. „Þau voru ósátt við þær launalækkanir sem stór hluti VR-félaga hefur gengið í gegnum en líka við ákvarðanir í ríkisfjármálum og auðvitað peningastefnu sem hefur þrengt alveg gríðarlega að launafólki á gildistíma þessara kjarasamninga.“ Frestur til uppsagnar rennur út síðdegis á fimmtudaginn en í morgun fundaði félagið með Samtökum atvinnulífsins. „Mér til mikillar gleði þá erum við núna komin í aðeins efnismeira samtal heldur en ég tel að við höfum verið í, þannig það var svona ákveðið samtal sem átti sér stað í morgun og ég hef væntingar um að haldi áfram í dag. Það er mjög skammur tími til stefnu og ljóst að við þurfum að hafa dálítið hraðar hendur en að vera líka ákveðin og lausnamiðuð í þessu. Í grunninn skynja ég ekki mikinn vilja til þess að segja upp samningum en á hinn bóginn er mitt fólk heldur ekki tilbúið til þess að fara inn í hálft annað ár af sama ástandi.“ Geri veturinn mjög erfiðan Aðspurð að hvaða leyti samtalið hafi verið efnismeira segir Halla að ýmsar lausnir hafi verið settar á borðið og aðilar nálgist hvorn annan af virðingu. Samtalið muni halda áfram í dag og eftir atvikum á morgun. „Og ég held að það skipti máli að fólk beri virðingu fyrir þeim ólíku hagsmunum og því ólíka baklandi sem aðilar hafa. Þannig að við erum allavega svona komin af stað í samtal en það er talsverð gjá á milli og ennþá alveg talsverð hætta á að samningar falli, en líka rosaleg meðvitund um hvað það myndi þýða því að það myndi gera þennan vetur mjög erfiðan.“
Kjaramál Kjaraviðræður 2023-25 Stéttarfélög Vinnumarkaður Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira