Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. október 2026 10:31 Gypsy Rose var dæmd til þess að dvelja í fangelsi í tíu ár en afplánaði átta ár. GETTY Barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, sem er þekkt fyrir að hafa orðið móður sinni að bana, fannst látinn á heimili sínu fyrir helgi.
Ken Urker átti 34 ára afmæli þann 1. október þegar hann fannst látinn á heimili sínu í Louisiana-fylki. Orsök andlátsins liggur ekki fyrir en Gypsy Rose telur að hann hafi látist vegna of stórs skammts af fíkniefnum. Gypsy Rose komst í heimspressuna þegar hún var dæmd í tíu ára fangelsi árið 2016 fyrir að hafa orðið móður sinni að bana. Hún játaði brotið og lýsti áralöngu ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir af hálfu móður sinnar, Dee Dee. Grunur lék á að móðir hennar hefði verið með Munchasen-heilkenni gagnvart dóttur sinni, sem er ofbeldi þar sem umönnunaraðili ýkir, býr til eða veldur veikindum hjá þeim sem er í umsjá hans. Dee Dee hafi því neytt Gypsy Rose til að þykjast vera langveik árum saman. Saga mæðgnanna varð innblástur fyrir þættina The Act og heimildarmyndina Mommy Dead and Dearest. Urker og Gypsy Rose trúlofuðu sig árið 2018 á meðan hún var enn í fangelsi. Þau slitu trúlofuninni árið 2019 og giftist Gypsy Rose þá Ryan Scott Anderson. Þau skildu skömmu eftir að henni var sleppt úr fangelsi árið 2023 og hófu þá Gypsy Rose og Urker samband sitt að nýju. Saman eiga þau eina stúlku, Aurora, sem fæddist í desember 2024. „Það eru engin orð sem geta lýst dýpt þessa missis. Ég bið um næði og samkennd fyrir dóttur okkar, fjölskyldur okkar og alla sem syrgja Ken á þessum ótrúlega sársaukafulla tíma,“ sagði Gypsy Rose í yfirlýsingu sem People greinir frá. „Hans verður sárt saknað, hann verður elskaður að eilífu og aldrei gleymdur.“
Bandaríkin Andlát Mest lesið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fleiri fréttir Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Sjá meira