Fótbolti

Gylfi með til Eist­lands

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gylfi var hress í Leifsstöð í gær.
Gylfi var hress í Leifsstöð í gær. KSÍ

Gylfi Þór Sigurðsson flaug með íslenska landsliðinu til Eistlands þrátt fyrir meiðsli. Hann fékk högg á rifbeinin undir lok leiks við Búlgaríu.

Gylfi kom inn af bekknum í leik Íslands við Búlgaríu á laugardaginn var en steinlá eftir samstuð við leikmann búlgarska liðsins undir lok leiks og fór þjáður af velli.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur Gylfi glímt við meiðsli í rifbeinum um hríð eftir að hafa brákað þau fyrr í sumar. Hann fékk högg beint í brákuð beinin á laugardaginn og var í kjölfarið sendur í myndatöku samkvæmt landsliðsþjálfaranum Arnari Gunnlaugssyni.

Gylfi virðist vera á fínum stað þrátt fyrir meiðslin þar sem hann flaug með liðinu út til Eistland í síðasta leik landsliðsins í þessum glugga. Leikurinn fer fram í Tallinn annað kvöld.

Þrír leikmenn bættust við hópinn fyrir leik morgundagsins; þeir Brynjar Ingi Bjarnason, Alfons Sampsted og Sævar Atli Magnússon.

Mikael Egill Ellertsson verður í leikbanni á morgun og þá datt Kristall Máni Ingason út úr hópnum vegna meiðsla.

Arnar Gunnlaugsson mun sitja fyrir svörum á blaðamannafundi í Tallinn klukkan 14:15 í dag. Fundurinn verður sýndur beint á Vísi.

Ísland og Eistland mætast ytra klukkan 18:45 annað kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×