Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Eiður Þór Árnason skrifar 4. október 2026 09:30 Stund milli stríða hjá Nönnu og Ragnari í Council Bluffs í Iowa-ríki í Bandaríkjunum þar sem hljómsveitin spilaði í júlí. Martin Tónlistarheimurinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að hljómsveitin Of Monsters and Men kom fyrst fram opinberlega í Músíktilraunum árið 2010. Á sama tíma og aukin krafa er gerð um að tónlistarmenn séu stöðugt sýnilegir hefur íslenska sveitin synt á móti straumnum og leyft sér að hverfa á milli útgáfudaga.
Rúm sex ár liðu milli útgáfu þriðju og fjórðu hljóðversplötunnar þeirra sem kom út á síðasta ári. Vísir settist niður með tveimur liðsmönnum sveitarinnar í tilefni af því að fimmtán ár eru liðin frá því að platan My Head is an Animal kom hljómsveitinni á heimskortið. Í öðrum hluta ítarlegs viðtals ræða Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson meðal annars einkalífið, kvíða sem margir tónlistarmenn glíma við og Covid-áfallið. Hér má nálgast fyrsta hluta umfjöllunarinnar. Velgengni fyrstu plötu hljómsveitarinnar á Íslandi árið 2011 hjálpaði þeim að komast í sterka samningsstöðu gagnvart alþjóðlegum útgáfurisum sem kepptust um að ná samningi við íslensku ungmennin. Þannig náði Of Monsters and Men að varðveita ákveðið sjálfstæði strax frá upphafi og var My Head is an Animal endurútgefin af Republic Records sem er undir hatti Universal-risans árið 2012. Arnar Rósenkranz Hilmarsson, Kristján Páll Kristjánsson og Brynjar Leifsson mynda sveitina ásamt Nönnu og Ragnari.Martin Jókst sjálfstæði þeirra enn frekar þegar þau riftu samningi sínum við útgáfufyrirtækið eftir þriðju plötuna en það er jafnframt útgáfuheimili stórstjörnunnar Taylor Swift. Nýjasta hljóðversplatan þeirra sem ber heitið All is Love and Pain in the Mouse Parade er sú fyrsta sem hljómsveitin gefur út sjálf. Fá að vera þverhausar Þið eruð hluti af ákveðnu viðskiptaumhverfi. Er verið að þrýsta á ykkur að gefa meira út og vera sýnilegri eða eitthvað slíkt? Nanna: „Eins og staðan er núna, af því við erum svo sjálfstæð, þá er mjög, mjög lítill þrýstingur og við fáum bara að vera svolítið þverhausar.“ Ragnar: „En maður finnur samt að bransinn kallar á þetta. Allar tónlistarhátíðir vilja líka að þú birtir eitthvað ákveðið og maður skilur að bransinn er búinn að mótast svolítið með þessu.“ Þetta henti alls ekki öllum. Nanna tekur undir þetta en dáist þó að yngra fólki sem þrífist vel í þessum nýja veruleika. Nanna: „Þau kannski alast upp í þessu TikTok-umhverfi og þau skilja þetta miklu betur og þetta er hluti af því að vera skapandi. Mér finnst það alveg eiga rétt á sér en við erum einhvern veginn ekki af þeirri kynslóð.“ Ragnar: „Maður sér það þegar fólk finnur svona sína eigin leið í því og það er skemmtilegt en svo sér maður líka þegar fólk er að glíma við þetta og nær ekki að vera það sjálft.“ Hver og einn þurfi að finna sína leið og þá sé hægt að láta það virka. Plötufyrirtæki reiða sig í dag mörg mikið á myndbandsmiðilinn TikTok, bæði til þess að markaðssetja tónlist og uppgötva nýjar stjörnur. Þá eru dæmi um að þekktir listamenn hafi amast við þessari þráhyggju útgefenda sinna. Aðdáendur í Suður-Kóreu lögðu sig mikið fram og mættu með fána og skilaboð á íslensku. Martin Gott fyrir aðdáendur að fá pásu frá þeim Fleira hefur breyst á síðustu fimmtán árum og urðu til að mynda straumhvörf í tónlistarhlustun með tilkomu streymisveitna á borð við Spotify sem hafa að stórum hluta komið í stað plötusölu og ólöglegs niðurhals. Of Monsters and Men upplifðu þessa breytingu á eigin skinni en fyrsta platan þeirra kom út um það leyti sem Spotify var að breiðast út um heiminn. Því má segja að hljómsveitin hafi rétt náð í skottið á alþjóðlegri plötusölu eins og hún var fyrir tíma Spotify en svo kom platan Beneath the Skin út í breyttum heimi árið 2015. Ragnar: „Það er búið að vera áhugavert að ganga í gegnum þetta tímabil og sjá þetta breytast. Maður í rauninni pælir ekkert það mikið í því, maður bara aðlagast.“ Arnar Rósenkranz Hilmarsson trommuleikari bregður á leik í Gardone Riviera á Ítalíu. Martin Nanna: „Ég er svo þakklát fyrir að ég held að við séum alltaf svolítið með gamla skólann. Við nálgumst tónlist og plötugerð frá þeim stað að við erum að gera plötur. Við erum ekki að gera lög, sem er líka allt í lagi, en það er rosalega mikið sem fólk gerir í dag út af því að það vill vera sýnilegt. Ég held að rosalega margir tónlistarmenn, mjög skiljanlega, keyrast áfram af smá hræðslu við að vera ekki sýnilegir. Þannig að þú ert alltaf að reyna að gefa út nýtt, halda fólki og segja þeim: „Ég er hérna.“ Ég held að það sé smá prentað inn í okkur að það er allt í lagi að vera ekki alltaf sýnilegur og í raun og veru er það svolítið gott út af því að fólk þarf bara að fá pásu frá þér. Það þarf að sakna þín.“ Hún trúi því að það sé gott fyrir listamenn að gefa sér rými til þess að breytast og lifa lífinu inn á milli til þess að hafa eitthvað til að segja næst. Margir tónlistarmenn upplifi kvíða Ragnar segir hljómsveitina vera heppna að hafa náð að byggja upp sinn aðdáendahóp áður en þessi umbylting varð á bæði dreifingarleiðum tónlistar og samfélagsmiðlum. „Samfélagsmiðlar voru ekki svona mikilvægur hluti þannig að við höfum kannski efni á því og getum aðeins spilað dulúðarleikinn, horfið og komið svo aftur inn því maður er kominn með ákveðinn aðdáendahóp sem er að bíða. En maður getur ekki sett sig í þau spor núna að reyna að komast þangað, það er annar leikur.“ Sveitin kom við í Bologna á Ítalíu í júní síðastliðnum. Martin Nanna: „Ég veit að margir díla við ákveðinn kvíða með þetta. Maður má líka alveg taka sér tíma fyrir sjálfan sig og safna aðeins í bakpokann.“ Ragnar: „Nanna á svona bakpoka sem hún geymir allar hugmyndirnar sínar í.“ Nanna: „Ég man alltaf að [tónlistarkonan] Lay Low sagði þetta við mig. Lovísa sagði mér einhvern tímann að maður þyrfti að safna í bakpokann. Svo gæti maður tekið upp úr honum þegar maður færi að semja.“ Ragnar: „Það er mjög falleg pæling.“ Mæla með því að byrja á vinskap Það fær smá á Nönnu og Ragnar þegar þau eru spurð út í það hvernig langvarandi vinskapur þeirra þróaðist út í rómantískt samband. Nanna: „Við bara byrjuðum saman,“ segir Nanna og hlær. Ragnar: „Já, við bara byrjuðum saman.“ Nanna: „Það var ekki flóknara en það,“ bætir hún við brosandi. Ragnar: „Nei, í rauninni ekki. Vilt þú segja eitthvað um það?“ Nanna: „Nei, nei, bara það.“ Þau séu búin að vera saman í fimm ár og sambandið jafngamalt og hundurinn Vofa sem liggur á sófanum fyrir aftan þau. Nanna: „Það var sambandsgjöfin,“ segir hún og hlær. Brynjar, Nanna og Ragnar í Benicasim í Valensía þar sem þau spiluðu á Sansan-tónlistarhátíðinni. Martin Þau eru sammála um að það hafi verið gott að vera búin að þróa með sér djúpa vináttu í yfir tíu ár áður en þessi kafli tók við. Ragnar: „Ég mæli hundrað prósent með því. Það er bara geggjað og við höfum alltaf náð vel saman. Það gengur vel núna ef þú ert að pæla í því,“ bætir hann við og glottir. Lítið hefur borið á ástarjátningum þeirra á samfélagsmiðlum og kaus Nanna að upplýsa ekki um nafn huldumannsins í viðtali við Auðun Blöndal í þætti af Tónlistarmönnunum okkar sem kom út árið 2023. Ég spyr af því að þið hafið kannski ekkert mikið verið að auglýsa þetta. Nanna: „Við erum bara líka þannig fólk, ég veit það ekki. Maður svona þurfti að læra inn á það einhvern veginn að tala um tónlistina og vera að útskýra hana sem í sjálfu sér er ótrúlega skrýtið og smá erfitt að vera einhvern veginn að kryfja hana.“ Hún hafi yfirleitt haft minni áhuga á því að ræða einkalíf sitt. Ragnar: „Við fáum ekki mikið út úr því að deila svona hlutum. Það er nógu klikkað að deila tónlist.“ Finnst ykkur mikilvægt að halda einhverju fyrir ykkur? Það virðist vera smá pressa á tónlistarmönnum í dag að vera áberandi á samfélagsmiðlum, vera aðgengilegir og deila jafnvel persónulegum hlutum. Ragnar: „Já, það er einhvers konar val. Það er bara þannig sem við tikkum einhvern veginn. Við finnum ekki þessa þörf. Maður hugsar: „Af hverju vill einhver vita eitthvað um mann á þennan hátt ef hann þekkir mann ekki?“ Við erum í rauninni alveg ótrúlega lélegar stjörnur (e. celebrities). Við höllum okkur rosalega lítið inn í það og líður bara vel með það.“ Hljómsveitin á góðri stundu í Los Angeles þar sem þau fylltu The Palladium. Martin Nanna: „Ég er alveg fræg fyrir það að vera ótrúlega léleg í að deila dóti.“ Til að mynda hafi hún ítrekað lent í því að móðir hennar heyri það fyrst frá öðrum hvað Nanna hyggist taka sér fyrir hendur. „Mér finnst svo erfitt að tala um mig. Í alvörunni. Þegar ég er að tala við vini mína og nýtt fólk þá spyr ég bara. Þetta sem við erum að gera núna þar sem þú ert að spyrja okkur er alveg smá úr karakter. Mig langar frekar að vita hvað er að frétta af öðrum,“ bætir hún við áður en þau beina bæði sjónum sínum að blaðamanni. Ragnar: „Hvernig gengur þér?“ Nanna: „Já, hvernig gengur þér?“ Hér er undirritaður fljótur að skipta yfir í næsta umræðuefni enda valdi hann sér þetta hlutverk af ástæðu. Þriðja platan umdeildari en þær fyrri Nanna ræddi áður hvernig hljómsveitin hafi aðeins breytt um takt á annarri plötu sinni Beneath the Skin og valið að fara meira inn á við eftir löng og ströng tónleikaferðalög. Á Fever Dream sem kom út árið 2019 færði sveitin sig svo enn fjær því þjóðlagahljóði sem var áberandi á fyrri plötunum og fór meira í áttina að einhvers konar indípopprokki. Þessi stefnubreyting varð til þess að þriðja hljóðversplatan varð aðeins umdeildari meðal hlustenda en þær fyrri. Finnið þið fyrir umræðunni á þessum tíma og hefur hún einhver áhrif á ykkur? Nanna: „Bæði og. Málið er að ég skil alveg af hverju sumir sem voru búnir að hlusta á okkur lengi heyrðu þriðju plötuna okkar og hugsuðu: „Hvað eruð þið eiginlega að gera?“ En málið er að það var ógeðslega gaman að gera þá plötu og gaman að fara í þær pælingar. Sú plata var rosalega mikilvæg fyrir plötuna sem við vorum að gefa út, til dæmis út af því að hún kenndi okkur líka hvað við fíluðum og hvað við fíluðum ekki. Þetta er bara mikilvægur hluti af því að vera tónlistarmaður og finna hljóðið sitt.“ Ragnar: „Maður bara þróast og þroskast og deilir því á sama tíma. Svo er það að við fengum rosalega mikið af nýjum aðdáendum og uppáhaldslög margra sem maður hittir eru á þessari plötu. Það er svo svalt að gera eitthvað nýtt og þá færðu einhverja sem voru ekkert búnir að hlusta á þig. Ég hef alltaf fengið staðfestingu á því að það að prófa eitthvað nýtt er alltaf gott.“ „Fyrir mér er þetta mjög eðlislæg þriðja plata fyrir okkur. Hún þjónaði miklum tilgangi þegar kom að því hvernig við röðuðum hlutum upp fyrir nýjustu plötuna.“ Ragnar og Brynjar í Bangkok. Martin Ragnar bætir við að það sé í lagi ef fólk sé ekki hrifið af Fever Dream. Bæði kannast þau við að hafa upplifað vonbrigði þegar tónlistarfólk sem þau dýrka breytti um stefnu. Ragnar: „Af hverju gerðirðu ekki bara plötu sem ég fíla, sem hlustandi, ha? Ég fílaði hitt stöffið. Af hverju gerðirðu ekki bara aftur þannig fílið þitt?“ segir hann með leikrænum tilþrifum. „Ég skil alveg tilfinninguna. Þetta er hræðileg tilfinning en þetta er bara einhver vegferð fyrir listamanninn.“ Tóku á sig stórt fjárhagslegt högg Fever Dream kom út árið 2019 en eftir um hálft ár af tónleikahaldi þurfti hljómsveitin að pakka saman vegna heimsfaraldurs Covid-19. Nanna: „Þetta var ógeðslega skrýtið. Við vorum að taka Asíutúr og við þurftum meira að segja að fara fyrr heim þegar Raggi varð svo veikur og fór á spítala. Þannig að við þurftum að fljúga heim og ætluðum bara að endurskipuleggja allt en svo gátum við það aldrei. Fólk var búið að kaupa miða á tónleika og kannski flug og alls konar. Við vorum líka búin að ráða fullt af fólki í vinnu og búin að setja mikinn tíma og vinnu í að búa til sýningu (e. show) á þessum tíma. Fever Dream var svo mikil mikil sprenging. Það var rosalega flottur túr fram undan, rosalega mikið af tónlistarhátíðum og rosa mikið af dóti sem maður var búinn að hlakka til að gera.“ Þau hafi verið búin að leggja mikið í að hanna sjónarspil með sýningahönnuðum sem þau hafi verið orðin mjög spennt fyrir. „Og sú sýning varð aldrei. Við vorum með alls konar myndefni, við vorum með skjái með fullt af einhverri grafík og það varð aldrei og mun aldrei verða,“ segir Nanna en útilokar ekki að það verði bætt úr þessu síðar. „En þetta var svo mikið batterí.“ Þau hafi verið búin að láta forrita sérhannaða ljósasýningu þá en farið í þveröfuga átt í tónleikaferðalaginu núna. Allt hafi verið strípað niður og spilamennskan látin njóta sín. „Þetta er alveg andstæðan við það sem við vorum að gera síðast. Kannski langar okkur að gera þetta einhvern tímann aftur en eins og staðan er núna þá erum við spenntari fyrir því að stinga bara í samband og spila.“ Nanna segir að þetta hafi eðlilega verið fjárhagslegt högg fyrir hjómsveitina líkt og fyrir aðra listamenn sem ætluðu að spila á tímum heimsfaraldurs. „Þú treystir á ákveðna innkomu. Eins og þessir túrar eru þá ertu oft að fara af stað og það er ekki endilega það sem þú færð mest borgað fyrir. Svo ertu að fara á þessar tónlistarhátíðir og seinni hlutann og þá fer þetta svolítið að koma saman. Það er svo mikill startkostnaður.“ Hann hafi verið hár í tilfelli Fever Dream í ljósi áðurnefnds umfangs. Vínylplötur áritaðar í Kingston í Bretlandi en sveitin hóf tónleikaferðalag sitt í fyrra á því að spila í fjölda plötuverslana í Bretlandi.Martin Mikilvægt að hafa bæði Nanna segir að það skipti hljómsveitina máli að geta náð sér niður á Íslandi á milli langra og strangra vinnutarna erlendis en öll eru þau búsett hér á landi. Í þetta skipti hafi þau tekið sér styttri tarnir en oft áður en samt sem áður geti verið erfitt að rífa sig aftur upp og fara í fjörið. „Núna erum við bara búin að túra þetta síðan í október í fyrra. Þetta er búið að vera alveg geggjaður túr og þetta tónleikaferðalag með þessa plötu er búið að vera að mínu mati besta tónleikaupplifunin. En það kemur alveg tímapunktur eins og núna þar sem við erum búin að vera heima í næstum því mánuð og maður svona sest inn í ákveðnar rútínur og það er einhvern veginn að koma haust og ég er svo mikið haustbarn. Þá langar mann bara að vera í kósí hér.“ Þeim finnist það mikilvægt að geta tekið sér frí frá lífi tónlistarstjörnunnar og átt rólegt líf heima á Íslandi. „Mér finnst það vera algjör lúxus að geta svona hoppað á milli hlutverka og geta fengið svo mikla útrás og útopnun úti og koma síðan heim og kunna varla mannleg samskipti, vera bara svolítið skrýtinn,“ bætir Nanna við og hlær.
Of Monsters and Men Tengdar fréttir Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Þann 20. september voru slétt fimmtán ár liðin frá því að platan My Head is an Animal, frumraun hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, kom út á Íslandi. Hún var svo fljótlega gefin út af útgáfurisanum Universal Music Group og skaut sex ungmennum frá Íslandi skyndilega á alþjóðasviðið. 27. september 2026 09:16 Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ofurhljómsveitin Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi í nokkur ár en tilefnið er að ljúka heims tónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum. 29. apríl 2026 11:41 Of Monsters setur nýtt met Fyrsta plata Of Monsters and Men, My Head Is an Animal hefur sett nýtt met á Tónlistanum, samkvæmt Félagi hljómplötuframleiðenda. Hún hefur setið í efsta sæti þessa íslenska sölulista samanlagt í átján vikur, sem er lengri tími en nokkur önnur plata hefur setið frá því listinn var fyrst birtur. 13. september 2012 09:15 Mest lesið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Fleiri fréttir Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Sjá meira
Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Þann 20. september voru slétt fimmtán ár liðin frá því að platan My Head is an Animal, frumraun hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, kom út á Íslandi. Hún var svo fljótlega gefin út af útgáfurisanum Universal Music Group og skaut sex ungmennum frá Íslandi skyndilega á alþjóðasviðið. 27. september 2026 09:16
Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ofurhljómsveitin Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Hljómsveitin hefur ekki spilað á Íslandi í nokkur ár en tilefnið er að ljúka heims tónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum. 29. apríl 2026 11:41
Of Monsters setur nýtt met Fyrsta plata Of Monsters and Men, My Head Is an Animal hefur sett nýtt met á Tónlistanum, samkvæmt Félagi hljómplötuframleiðenda. Hún hefur setið í efsta sæti þessa íslenska sölulista samanlagt í átján vikur, sem er lengri tími en nokkur önnur plata hefur setið frá því listinn var fyrst birtur. 13. september 2012 09:15