Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Agnar Már Másson skrifar 2. október 2026 20:21 Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. Vísir/Lýður Hafnarfjarðarbær hyggst ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5 prósent á árinu 2027. Þá hyggst bærinn hverfa frá lækkun á systkinaafsláttarkerfi fyrir leikskóla á þeim grundvelli að sú breyting hefði getað haft í för með sér hækkun umfram 2,5 prósent fyrir tiltekna hópa.
Frá því er greint í tilkynningu að bæjarráð Hafnafjarðar hafi ákveðið á fundi í gær að setja það sem grundvallarviðmið við fjárhagsáætlunargerð bæjarins, sem nú stendur yfir, að almennar gjaldskrár yrðu ekki hækkaðar umfram 2,5 prósent. Fram kemur að Hafnarfjarðarbær svari þar með ákalli Sambands íslenskra sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðar um sameiginlegt átak gegn verðbólgu. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í síðustu viku ályktun um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á næsta ári. Sömuleiðis er greint frá því að í ljósi þessarar ákvörðunar hafi bæjarráð ákveðið að hverfa frá breytingu á systkinaafslætti á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarráði 17. september og átti að koma til framkvæmda 1. nóvember. Sú breyting átti að felast í því að afláttur fyrir annað systkinið yrði lækkaður úr 75 prósentum í 50 prósent, og fyrir þriðja systkini úr 100 prósentum í 75 prósent. Sveitarfélagið segir nú í tilkynningu að sú breyting hefði haft í för með sér hækkun leikskólagjalda umfram 2,5 prósent í ákveðnum tilfellum. Á fyrri helmingi árs var rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarbæjar neikvæð um 1,9 milljarða króna samkvæmt árshelmingsuppgjöri á sama tíma og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 887 milljóna króna hagnaði.
Hafnarfjörður Rekstur hins opinbera Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira