Tónlist

Mikil notkun Ís­lendinga á appinu ó­vænt

Lovísa Arnardóttir skrifar
Steinar Þór Oddsson, Hugleikur Dagsson og Einar Hrafn Stefánsson hönnuðu appið saman.
Steinar Þór Oddsson, Hugleikur Dagsson og Einar Hrafn Stefánsson hönnuðu appið saman. Aðsend

Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker- smáforritsins, segir það óvænt að appið, sem var hannað fyrir ferðamenn, sé í mikilli notkun heimamanna. Búið er að bæta við appið aukinni þjónustu fyrir Íslendinga og er nú hægt að skoða dagskrár íslenskra hátíða í appinu, til dæmis Airwaves sem hefst í vikunni. 

Hann segir fyrstu skrefin hafa verið stigin á Reykjavík Pride, Menningarnótt og Ljósanótt og á RIFF þar sem dagskrár hátíðanna voru settar upp í appinu með viðburðum, tímasetningum og staðsetningum.

Iceland Airwaves sé nú einnig með sinn eigin flipa í appinu og notendur geti þannnig  skoðað dagskrána, síað hana eftir dögum, fundið tónleikastaði á korti og lesið um listamennina.

„Appið var upphaflega hugsað fyrir ferðamenn, en við sáum fljótt að Íslendingar nota það líka til að finna happy hour, veitingastaði og eitthvað að gera. Á Airwaves er dagskráin dreifð um allan miðbæinn og það getur verið púsl að ná öllu sem mann langar að sjá. Ég hef spilað á Airwaves margoft, svo ég þekki hátíðina vel. Við viljum að fólk eyði kvöldinu á tónleikum en ekki í að leita að þeim,“ segir Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker.

Icebreaker er nýtt app sem er þróuð af sprotafyrirtækinu The Tourist Trapp og hefur það markmið að gera Ísland einfaldara fyrir erlenda gesti. Í tilkynningu um útgáfu þess í sumar kom fram að appið sameini staðbundna þekkingu, ritstýrt efni frá The Reykjavík Grapevine og myndheim eftir Hugleik Dagsson sem teiknaði sérsniðnar myndskreytingar, kortatákn og persónur fyrir appið.

Vildu gera meira

Einsr segir að þegar stofnendur sáu að innlendir notendur væru svo margir hafi þeir strax farið að hugsa hvað væri meira hægt að gera fyrir hópinn. 

„Hátíðir eru mjög gott dæmi. Það getur verið hellingur í gangi á einum stað og dagskráin oft dreifð á mismunandi vefsíður og samfélagsmiðla. Við viljum gera það jafn einfalt að finna eitthvað skemmtilegt að gera á hátíð og að finna næsta kaffihús. Það sem við viljum sjá er að fólk sem mætir á íslenska hátíð þurfi ekki að leita að dagskránni, heldur kíki bara á Icebreaker.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.