Innlent

Flutninga­bíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Viðbragsaðilar athafna sig á vettvangi.
Viðbragsaðilar athafna sig á vettvangi. Vísir/Vilhelm

Þverárfjallsvegur er lokaður vegna umferðarslyss rétt ofan við Sauðárkrók á móts við bæinn Skarð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar segir að flutningabíll hafi oltið og þverar bíllinn ásamt vagni veginn. Vegfarendum er bent á að fara þjóðveg 1 um Vatnsskarð. 

Að sögn lögreglu er ekki  vitað hversu lengi vegurinn verður lokaður en vegfarendum bent er á að fylgjast með á umferdin.is. Ekki er vitað um slys á fólki að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×