„Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 30. september 2026 13:02 Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambandsins. vísir/arnar Formaður Starfsgreinasambandsins furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið.
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir það ekki góða sendingu í samtal um hvort kjarasamningar haldi að fjármálaráðherra segi það ekki rétt að launþegar hafi það verra nú en áður og að Ísland geti þolað þann sársauka sem felst í að ná aga á ríkisfjármálunum enda standi heimilin vel. „Við getum bara tekið sem dæmi að það er allt launafólk að fá á sig skattahækkun í formi þess að framleiðni dettur út varðandi það að hækka persónuafslátt og skattþrep. Síðan eru það allar gjaldskrárhækkanir sem er búið að boða.“ Í samtali um forsendubrest kjarasamninga hafi sveitarfélögin gefið út að þau ætli að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan við 2,5%. „Við erum búin að fá risastóra aðila í verslun og þjónustu til að taka þátt í þessu. Það er einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu og það er þessi maður sem talar um að heimilin geti þolað sársauka. Þetta er algjörlega með ólíkindum, einfaldlega vegna þess að það ættu að vera stjórnvöld sem ættu að vera leiðandi í þeirri vinnu að ná niður verðbólgu og vöxtum eins og þau lofuðu þegar þau voru kosin til þess að stjórna þessu landi.“ Í viðtali við fjármálaráðherra sem finna má hér að ofan segir hann að sársaukinn við að ná aga í ríkisfjármálum sé lítill. Vilhjálmur segir það á skjön við upplifun sinna félagsmanna. „Við áttum okkur ekki á þessum ummælum hvað þetta varðar, en við vitum hins vegar að það sem leikur verka- og láglaunafólk verst er mikil verðbólga og hátt vaxtastig, vegna þess að þetta leitar allt út í verðlag, út í húsaleiguna, út í lánin og svo framvegis.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir „Ég er ógeðslega reiður“ Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. 30. september 2026 08:59 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
„Ég er ógeðslega reiður“ Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. 30. september 2026 08:59