Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Árni Sæberg skrifar 28. september 2026 12:20 Sjálfsafgreiðslukassar í Krónunni. Ekki liggur fyrir í hvaða verslunum maðurinn stundaði sín fjársvik. Vísir Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað framið fjársvik í verslunum með því að skanna rangt strikamerki í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig minna fyrir vörur en þær kostuðu.
Ákæra á hendur manninum er í 43 liðum og allir fjalla þeir nema einn um sams konar brot. Sá eini sem varðar ekki fjársvik er vegna skjalafals, með því að hafa framvísað fölsuðu belgísku ökuskírteini þegar lögregla hafði af honum afskipti. Við meðferð málsins var fallið frá þeim ákærulið. Eftir stóðu 42 tilvik fjárdráttar með sömu verknaðaraðferð. Til dæmis segir í fyrsta ákærulið að hann hafi svikið út katsu kjúklinga-pokeskál að verðmæti 2.290 krónur, með því að hafa afgreitt sjálfan sig á sjálfsafgreiðslukassa án þess að greiða fullt verð fyrir vöruna. Hann hafi komið fyrir strikamerki af vöru að verðmæti 45 krónur á umbúðum dýrari vörunnar. Með háttseminni hafi hann vakið og hagnýtt sér þá röngu hugmynd starfsmanna verslunarinnar að hann hefði greitt fullt verð fyrir vöruna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, segir að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og þegar greitt einu bótakröfu málsins, sem nam 61 þúsund krónum. Miðað við það og sakaferil mannsins, sem er enginn, sé refsing hans hæfilega ákveðin níu mánaða fangelsi en rétt þyki að fresta fullnustu refsingar og hún skuli niður falla að liðnum tveimur árum, haldi maðurinn almenn skilorð.
Verslun Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira