Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted og Magnús Kr. Ingason skrifa 24. september 2026 08:32 Stöðugleiki krefst sameiginlegs átaks Íslensk heimili hafa búið við verðbólgu og háa vexti um langt skeið. Þegar endurskoðun kjarasamninga stendur yfir er brýnt að fyrirtæki, stjórnvöld og aðrir sem hafa áhrif á verðlag leggi sitt af mörkum, eins og kostur er til aukins verðstöðugleika. Við hjá Festi tökum undir mikilvægi þess að skapa stöðugleika í efnahagslífinu, draga úr verðbólgu, ná niður vöxtum og verja kaupmátt heimilanna. Festi og dótturfélögin ELKO, Krónan, Lyfja og N1 gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Stjórnendur og starfsfólk leggja daglega áherslu á góða þjónustu og lágt vöruverð um allt land með öflugum innkaupasamningum, hagkvæmum rekstri og eftirsóknarverðum vinnustöðum. Um leið þurfa félögin að bregðast við markaðsaðstæðum hverju sinni, enda vega aðfangaverð, laun og vextir þungt í rekstrinum og hafa allir þessir kostnaðarþættir hækkað umtalsvert á undanförnum misserum, eins og kunnugt er. Umræðan þarf að byggjast á staðreyndum Opinberar upplýsingar Hagstofu Íslands varpa ljósi á þróun vísitölu neysluverðs og einstakra undirliða hennar. Af ellefu helstu vöruflokkum sem tengjast starfsemi félaga innan samstæðu Festi hækkuðu tíu minna en almennt verðlag síðustu tólf mánuði. Verðbólga mældist 5,6% í ágúst; matur hækkaði um 4,4%, en eldsneyti og heimilistæki lækkuðu að nafnvirði. Þróun þessara afmörkuðu flokka bendir því til þess að þeir hafi almennt ekki verið meðal helstu drifkrafta verðbólgunnar á tímabilinu, án þess þó að gögnin endurspegli að fullu verðþróun einstakra vörutegunda eða verðákvarðanir einstakra félaga (sjá graf 1). Hvar liggur verðbólguþrýstingurinn? Af 5,6% verðbólgu í ágúst má rekja um 5,0 prósentustig eða 89% til þjónustuliðarins. Húsnæðisliðurinn skýrir 1,8 prósentustig og opinber þjónusta 1,3 prósentustig þrátt fyrir að vega einungis 5,2% í vísitölunni. Opinber þjónusta skýrir þannig rúmlega 23% - verðbólgunnar, samanborið við um 9% að meðaltali á árunum 2023–2025. Þannig hafa gjaldskrár fyrir hitaveitu og vatnsveitu, skrásetningargjöld opinberra háskóla, komugjöld í heilbrigðisþjónustu og ýmis önnur opinber gjöld hækkað umfram verðbólgumarkmið. Þetta leysir fyrirtæki ekki undan ábyrgð, en sýnir að varanlegur árangur næst ekki án aðhalds hjá ríki og sveitarfélögum. Frystum verð á yfir 600 dagvörum til áramóta Verslunin er síðasti hlekkurinn í langri aðfangakeðju. Verðið sem neytandinn sér mótast meðal annars af innkaupsverði, framleiðslukostnaði, flutningum, gengi, sköttum og öðrum opinberum gjöldum. Festi tekur sjálfstæðar ákvarðanir um verðlagningu og leitar jafnframt leiða til að draga úr kostnaði í eigin rekstri. Varanlegur stöðugleiki næst þó aðeins ef allir hlekkir aðfangakeðjunnar og hið opinbera axla ábyrgð á þeim þáttum sem þeir ráða yfir. Til að leggja enn frekar af mörkum í baráttunni við verðbólgu og stuðla að auknum stöðugleika mun Krónan frysta verð á yfir 600 dagvörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Ódýrt, Krónan Lífrænt, First Price, Grøn Balance og Gestus. Vörurnar spanna alla helstu vöruflokka og hefur verðfrystingin þegar tekið gildi og mun standa til og með 31. desember 2026. Verð þessara vara hækkar því ekki á tímabilinu, en getur lækkað ef þróun gengis eða innkaupsverðs gefur tilefni til. Með aðgerðinni viljum við auka fyrirsjáanleika fyrir viðskiptavini, draga úr kostnaðarþrýstingi á heimilin og styðja við þann stöðugleika sem er forsenda lægri verðbólgu og vaxta. Festi mun áfram sýna aðhald og leita allra raunhæfra leiða til að verja hagsmuni viðskiptavina sinna. Stöðugleiki næst þó aðeins með samstilltu framlagi fyrirtækja, stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Höfundar eru forstjóri Festi og framkvæmdastjóri fjármála-og rekstrarsviðs Festi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verslun Festi Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun