„Við erum ekki að ýta undir slagsmál en við erum að ýta undir ástríðu“ Andri Broddason skrifar 23. september 2026 16:31 Carson Hocevar og Ryan Blaney lentu í slagsmálum eftir NASCAR-kappakstur á laugardaginn. Chris Graythen/Getty Images Tveir keppendur í NASCAR sem enduðu á að fara í slag hvor við annan eftir að þeir lentu í árekstri munu ekki fá neina refsingu. Steve O’Donnell, framkvæmdastjóri NASCAR, vill breyta ímynd íþróttarinnar þar sem ökumenn mega sýna ástríðu fyrir utan bílana sína.
Slagsmál brutust út eftir NASCAR-kappaksturinn sem fór fram á Bristol Motor-kappakstursbrautinni í Bandaríkjunum síðasta laugardag. Þar keyrði Carson Hocevar utan í Ryan Blaney sem gerði það að verkum að Blaney endaði í árekstri og þurfti að hætta keppni eftir að hafa leitt stóran hluta keppninnar. HOCEVAR TURNS BLANEY!!! pic.twitter.com/0hws9929fl— NASCAR (@NASCAR) September 20, 2026 Eftir keppnina gekk Blaney að Hocevar sem stóð hjá bílnum sínum og ýtti honum ákaflega. Hocevar svaraði með sama hætti og fljótlega brutust út slagsmál. Eftir slagsmálin sleppti stjórn NASCAR að refsa ökumönnunum sem er mikil breyting á hefðum innan íþróttarinnar. A wild scene on pit road. pic.twitter.com/lYzBtdEsqO— NASCAR (@NASCAR) September 20, 2026 Fyrir tveimur árum lentu Ricky Stenhouse Jr. og Kyle Busch í átökum og fyrir það voru þeir sektaðir um 75 þúsund dollara eða rúmlega níu milljónir króna. Flestir ökumenn vildu ekki borga þessa stóru sekt og var því lítið um slagsmál eftir það í NASCAR. Vinsældir NASCAR voru að fara lækkandi og voru stjórnarmenn næstum að grátbiðja ökumenn að sýna lit og persónuleika í keppnum. Þeir þorðu þó ekki að fara yfir strikið vegna hættu á að vera sektaðir. Í apríl tók Steve O’Donnell við sem framkvæmdastjóri NASCAR og breytti áherslum þar sem ökumenn voru ekki hvattir til að slást en þeim yrði ekki refsað fyrir það. „Ökumenn þurfa að útkljá sín mál utan bílsins. Við erum ekki að ýta undir slagsmál, en við erum að ýta undir ástríðu,“ sagði O‘Donnel við Kevin Harvick sem stjórnar hlaðvarpinu „Happy hour“. Í framhaldinu sagði O‘Donnel að NASCAR hefði breyst frá því sem það var árum fyrr. Markmið hans á meðan hann er við stjórnvölinn er að snúa íþróttinni aftur á þann stað sem hún var á blómaskeiði íþróttarinnar.
Akstursíþróttir Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Sjá meira