Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar 22. september 2026 09:32 Síðustu viku nóvember 2025 fékk sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu til meðferðar beiðni um breytingu á forsjá og lögheimili barns. Fáum vikum síðar greip barnavernd inn í, tók barnið úr umsjá hins foreldrisins og kom því fyrir hjá málshefjanda. Líkur á því að sættir náist hjá sýslumanni eru nákvæmlega engar en sáttameðferð er lögboðin, hvernig sem á stendur. Beiðni um flýtimeðferð var hafnað. Málshefjandi fékk loksins boðun til sýslumanns í lok júlí 2026 og var þá sagt að nú yrði málinu vísað í sáttameðferð. Síðan hefur ekkert borið til tíðinda. Þann 11. september sendi ég fyrirspurn til fjölskyldusviðs sýslumanns um það hvenær stæði til að ljúka málinu. Málinu hafði enn ekki verið úthlutað til sáttamanns, en samkvæmt fjölskyldusviði má búast við að það verði gert í október eða nóvember. Mér var bent á að ég gæti kvartað til dómsmálaráðuneytisins ef mér þætti þetta of langur málsmeðferðartími. Það hljómar kannski eins og gott ráð en.fyrir tveim árum ætlaði dómsmálaráðuneytið sér hálft ár til að afgreiða stjórnsýslukærur og ég skal éta hálfdós af Orabollum í bleikri uppá að ráðuneytið hefur ekki hysjað upp um sig síðan. Hjá stjórnvöldum merkir svarið "október eða nóvember" að það verður í fyrsta lagi eftir miðjan nóvember sem málinu verður úthlutað til sáttamiðlara. Þá fær hitt foreldrið boðun í viðtal. Viðkomandi þekkir kerfið ágætlega og veit að í slíkum málum verður sýslumaður að reyna tvisvar. Miðað við það sem á undan er gengið er líklegast að foreldrið tefji málið með því að mæta ekki við fyrstu boðun. Þegar næsta boðun kemur mun foreldrið tilkynna veikindi á síðustu stundu, þannig að fundinum verður frestað um viku. Og svo aðra. Sennilega lýkur sýslumaður ekki málinu fyrr en rétt fyrir jól. Þá er 18 daga réttarhlé hafið þannig að það verður fyrst í janúar sem hægt verður að birta stefnu. Við þingfestingu málsins fær gagnaðili fjögurra vikna frest til að skila greinargerð. Þá þarf að bíða til loka febrúar eftir að málið fari í úthlutun til dómara. Það er svo allur gangur á því hversu lengi mál er fyrir dómi eftir það. Sem dæmi má nefna að nú er fyrirhuguð aðalmeðferð í máli sem var höfðað rúmum 18 mánuðum fyrir þann dag sem aðalmeðferð fer fram. Áður hafði sýslumaður verið með málið til meðferðar í 13 og hálfan mánuð. Eftir aðalmeðferð þarf að bíða dómsuppkvaðningar, sem má reikna með að verði um 4 vikum síðar. Þegar ég lýsti óánægju með það í vor að aðalmeðferð kæmist ekki á dagskrá fyrir réttarhlé (sem stendur allan júlí og allan ágúst) hafði dómarinn á orði að hann myndi fylgja málshraðareglu barnalaga, við þyrftum ekki að hafa neinar áhyggjur af öðru. Nei, mér misheyrðist ekki, dómarinn sagði þetta í tölvupósti, um þetta mál sem var þingfest rúmum 18 mánuðum fyrir aðalmeðferð. Málshraðareglan sem dómari vísar til er í 4. mgr. 38. gr. barnalaga og hljóðar svo: Flýta skal meðferð máls um forsjá eða lögheimili barns. Hver sem niðurstaða héraðsdóms verður mun málið fara fyrir Landsrétt, það verða 6-8 mánuðir til viðbótar þar. Þekkir einhver barn sem finnst 40 mánuðir af forsjárdeilum hæfilegur tími? Þess má geta að hælisleitandinn sem ég sagði frá í síðasta pistli hefur enn ekki heyrt orð frá Útlendingastofnun. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun