Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Freyja Þórisdóttir skrifar 19. september 2026 18:05 Það munu eflaust margir sjá á eftir hamsatólginni en þegar lager Stóruvalla klárast verður ekki hægt að nálgast hana í matvöruverslunum nema annar framleiðandi taki við keflinu. Stóruvellir ehf. Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hættir nú framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Nema það taki einhver við keflinu verður því ekki hægt að nálgast hamsatólg í matvöruverslunum þegar lager fyrirtækisins klárast enda eru þau ein um að framleiða hana.
Þetta staðfestir Garðar Jónsson, stofnandi Stóruvalla ehf., í samtali við Bændablaðið sem greindi fyrst frá. Garðar hóf ásamt fleirum að framleiða hamsatólg og aðrar vörur árið 1993 er fram kemur á vefsíðu fyrirtækisins en Garðar er nú að fara á eftirlaun. Hann auglýsti reksturinn til sölu í fyrra og hafði einnig reynt að ræða við Norðlenska, sem framleiðir ríflega sjö hundruð mismunandi vöruliði úr kjöti, en án árangurs. Sem fyrr segir eru Stóruvellir eina fyrirtækið á landinu sem framleiðir hamsatólg en einnig útikerti úr tólg sem víða er að finna við leiði og þá sér í lagi yfir veturinn. Í frétt Bændablaðsins er haft eftir Garðari sem segir veltuna hjá fyrirtækinu ekki mjög mikla en framleiðsluna hafa gengið vel. „Árið 2004 dundu síðan áföllin yfir en þá brann atvinnuhúsnæðið til grunna og það ekki einu sinni heldur tvisvar. En upp var staðið, þrjóskan nýtt til hins ýtrasta og sótið blásið af. Hafist var handa við uppbyggingu og í dag er framleiðslan í glæsilegu og vel útbúnu 160 m² húsnæði með góðum tækjabúnaði og vinnuaðstöðu,“ segir á vefsíðu fyrirtækisins en nú er komið að leiðarlokum nema það taki einhver óvænt við rekstrinum. Í frétt Bændablaðsins kemur einnig fram að tólgin hafi verið seld í einhverju magni til útlanda þar sem hún sé notuð í sápu- og kertagerð sem og í húðkrem.
Matur Menning Jól Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira