„Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 17:57 Guðmundur telur andarnefjuna hafa verið um sjö metra á lengd. Aðsend Íbúi í Bolungarvík, tók eftir andarnefjuhræi í innanverðum Kjálkafirði þegar hann átti leið um svæðið fyrr í dag. Dýrið hafi virst nýdautt en þó verið skýr ummerki um varg sem sé dæmi um hve miskunnarlaus náttúran geti verið. Höfuðlagið hafi verið svo einkennandi að Bolvíkingurinn hafi þekkt tegundina um leið og hann kom auga á hræið. „
Ég var að keyra vestur í Bolungarvík og við vorum bara að koma þarna fyrir fjarðarbotninn eða þessa þverun sem er þarna inni í Kjálkafirði og þá sá ég hræið í fjörunni,“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson Bolvíkingur í samtali við blaðamann en hann hafi ákveðið að beygja af leið og labba niður í fjöru. Mjög stutt síðan hann drapst Hann hafi strax tekið eftir því að þetta væri nýtt hræ enda hafi enn seitlað blóð úr munni hvalsins. „Það var örugglega mjög stuttur tími frá því þegar hann dó en það var samt ummerki um varg,“ segir Guðmundur og bætir við að „það var bæði á maganum eins og það hafi slegist til þarna þegar er verið að fjara undan því eins og dýrin gera“. Andarnefjur eru með einkennandi höfuðlag. Trýnið er mjótt en ennið hátt og kúpt og fær hún nafnið af þessu sérstæða höfuðlagi sem minnir á önd.Aðsend Þá hafi mjög líklega krummar eða aðrir fuglar tyllt sér á dýrið sem hafi að hans mati virst hafa rekið á land þegar það var enn á lífi. „Þetta er svona dæmi um hversu miskunnarlaus náttúran getur verið í svona aðstæðum. Það að vargurinn sé strax byrjaður að kroppa í dýrin á meðan þau eru lifandi.“ Áttaði sig um leið á tegundinni Hann segist hafa áttað sig nánast um leið á því að þarna væri um hval af tegundinni andarnefju að ræða enda séu þær með mjög einkennandi höfuðlag sem líkist straumönd. „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska,“ segir hann og útskýrir að hann hafi lengi starfað sem sjómaður og því verði oft hvalir á vegi hans en þeir séu margir hverjir svipaðir þegar þeir koma einungis upp til að anda. Andarnefjur verða allt að níu metrar á lengd, er fram kemur á Vísindavefnum, en Guðmundur áætlaði að dýrið í fjörunni hefði verið á bilinu sex til sjö metrar á lengd. Það hefði því líklega ekki verið fullvaxta dýr. Þá hafi hann reynt að hafa samband við landeigendur en vissi annars ekki fyllilega hvernig hann ætti að snúa sér í þessum aðstæðum; hvort það mætti skilja hræið eftir án þess að neinn kæmi að sækja það. „Það fyrsta sem ég hugsaði var að láta Náttúrustofu vita af þessu, sem ég gerði. En landeigendur náttúrulega eiga það sem rekur á þeirra fjörur,“ segir hann og bætir við: „Það er lítið um búskap á svæðinu þannig að ég hafði svo sem enga sveitabæi til þess að banka upp á en hefði að öðrum kosti gert það.“
Hvalir Dýr Bolungarvík Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira