Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Andri Broddason skrifar 16. september 2026 21:03 Það virðist ekkert ætla að ganga upp hjá Manchester United þessa dagana. Alex Livesey/Getty Images Fjórir leikir fóru fram í deildarbikarnum á Englandi þar sem nokkur stórlið mættust. Byrjun tímabilsins ætlar ekki að batna hjá Manchester United þegar liðið tók á móti Brighton.
Shae Lacy var í byrjunarliði Manchester United þegar liðið tók á móti Brighton í deildarbikarnum í kvöld. Hann deildi mynd af sér fyrir framan Manchester United merkið eftir að fréttir bárust að ungstirnið JJ Gabriel vildi fara frá félaginu. Shae Lacey þakkaði traustið strax á áttundu mínútu þegar hann skaut frábæru skoti í nærhornið sem var óverjandi fyrir Jason Steele í marki Brighton. Aðeins tveim mínútum síðar tvöfaldaði Manchester United forystuna þegar Marcus Rashford keyrði upp kantinn og skaut á mark Brighton. Steele varði boltann en hann datt fyrir Mason Mount í teignum sem gat sett boltann þægilega í netið. Manchester United virtist ætla að halda tveggja marka forystu í hálfleik en Brighton minnkaði muninn í uppbótartíma með marki frá Charalampos Kostulas. Pascal Gross jafnaði svo metin fyrir Brighton á 65. mínútu og virtist lið Manchester United vera búið að missa tökin á leiknum. Brighton náði forystu leiksins fimm mínútum síðar þegar varamaðurinn Maxim De Cuyper skoraði eftir frábæra sókn og taflinu allt í einu snúið við. Manchester United gerði ýmsar skiptingar til þess að reyna að ná jöfnunarmarki fyrir leikslok en það tókst ekki og náði því Brighton að tryggja sig í 16-liða úrslit bikarsins. Staðan í deildarbikarnum ekki betri en í ensku úrvalsdeildinni Annar úrvalsdeildarslagur var þegar Coventry tók á móti Aston Villa. Gengi Coventry hefur ekki verið gott í ensku úrvalsdeildinni og virtist það ekki vera að breytast. Tammy Abraham kom Aston Villa í forystu strax á sjöundu mínútu. Á 27. mínútu náði Coventry að jafna metin en eftir jöfnunarmarkið tók Aston Villa yfir leikinn. Ross Barkley kom Aston Villa í forystu og Tammy Abraham skoraði sitt annað mark til að koma Aston Villa í 3-1 sem reyndust vera lokatölur leiksins. Everton sigldi þægilegum sigri heim Í leik Everton og Wolves var fyrsta markið lengi að koma en Everton var sterkari aðilinn framan af. Erfiðlega gekk þó fyrir liðið að nýta færin sín en það hafðist loksins á 80. mínútu þegar Charly Alcaraz kláraði færi eftir góðan undirbúning frá Tyler Dibling. Þetta reyndist eina mark leiksins og náði Everton því að slá út Wolves sem spilar í ensku B-deildinni eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Óvæntur sigur í Norður-Englandi Fleetwood Town, sem leikur í ensku D-deildinni, tók á móti Sheffield United en þar urðu óvænt úrslit. Eina mark leiksins kom á 57. mínútu þegar fyrirgjöf kom í teig Sheffield. Þaðan fór boltinn í hausinn á Rhys Norrington-Davies sem skoraði sjálfsmark. Fleetwood Town slóg því út lið sem spilar í tveimur deildum fyrir ofan og heldur áfram í næstu umferð deildarbikarsins.
Manchester United Brighton & Hove Albion Aston Villa FC Everton FC Coventry City FC Enski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira