Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Árni Sæberg skrifar 16. september 2026 10:22 Sævar Hilmarsson faðmar verjanda sinn, Stefán Karl Kristjánsson, sem tókst á við sækjanda málsins í upphafi þinghalds, með þeim afleiðingum að aðalmeðferð málsins var frestað. Vísir Verjandi Sævars Hilmarssonar, sem er einn ákærðu í Dettifossmálinu svokallaða, mótmælti framlagningu nýrra gagna harðlega þegar þinghald hófst í málinu. Um klukkustundar töf varð á upphafi aðalmeðferðar.
Dómþing hófst klukkan 09:15 í morgun á því að farið var yfir hvaða gögn hefðu verið lögð fram í málinu og hver afstaða sakborninga til sakarefnis væri. Við þingfestingu í júlí neituðu þeir Sævar og Kastriot Pepaj, sem ákæruvaldið telur hafa skipulagt innflutning á rúmum fjórtán lítrum af amfetamínbasa, sök. Tveir skipverjar á Dettifossi játuðu sök að hluta. „Rosalegar hártoganir“ Þá kom fram að sækjandi málsins, Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, ætlaði að leggja fram frekari gögn í málinu, þar á meðal mynd af flöskum með ætluðum amfetamínbasa. Því mótmælti Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars, harðlega og sagðist myndu kæra framlagninguna og krefjast úrskurðar um hana, félli sækjandi ekki frá framlagningunni. Þá var tekist á um það hvort aðalmeðferð væri yfir höfuð hafin þar sem dómari hefði ekki tekið skýrt fram að hún væri það. „Þetta eru rosalegar hártoganir hjá ykkur,“ sagði Barbara Björnsdóttir, dómari málsins, þá við verjendur. Verjendur, frá vinstri, Sveinn Andri Sveinsson, Stefán Karl Kristjánsson, Unnsteinn Örn Elvarsson, Leó Daðason, og Jón Bjarni Kristjánsson. Sá síðarnefndi er verjandi konu sem sætir aðeins upptökukröfu í málinu.Vísir Sækjandi neitaði að draga framlagninguna til baka og sagðist einfaldlega hafa tekið eftir því í gær að enga mynd af amfetamínbasaflöskunum meintu væri að finna í gögnum málsins. Hún hefði því beðið rannsakendur að finna slíka mynd og hún lagt hana fram. „Þetta er ekki einkamálaréttarfar, það er alltaf hægt að leggja fram gögn.“ „Ég er ekki vondi karlinn“ Dómari benti Stefáni Karli þá á að héldi hann því til streitu að krefjast úrskurðar um framlagninguna þyrfti að fresta aðalmeðferðinni, með tilheyrandi fyrirhöfn og lengra gæsluvarðhaldi fyrir sakborningana. „Það er alveg ófært að setja þessa aðalmeðferð í uppnám.“ Stefán Karl sagðist þá engan áhuga hafa á því að setja aðalmeðferðina í uppnám en hann vildi þó að ákæruvaldið hagaði málatilbúnaði sínum eins og lög gera ráð fyrir. Ekki gengi að sækjandi labbaði inn í dómsal og legði nýtt gagn á borð verjenda að morgni aðalmeðferðar, án þess að láta þá vita fyrir fram. „Ég er ekki vondi karlinn í þessu. Það er ákæruvaldið sem gætir ekki sanngirni.“ Hlé og síðan samkomulag Að loknu um tíu mínútna hléi féllst dómari málsins á að aðalmeðferð þess hefði í raun aldrei hafist og því þyrfti að veita verjendum tækifæri til að tjá sig um framlagningu gagnsins umdeilda. Hins vegar komust dómari og sækjandi að samkomulagi um það að bíða með framlagningu gagnsins. Að svo búnu komu fram frekari mótmæli af hálfu Stefáns Karls vegna framlagningar svokallaðra handhverfugreininga vegna annarra mála á hendur Sævari, sem varða akstur undir áhrifum fíkniefna. Dómari leysti úr því með því að kljúfa umferðarlagabrotið frá Dettifossmálinu. Að svo búnu var hægt að hefja aðalmeðferð.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Lögmennska Dómsmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira