98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Tempra 16. september 2026 09:25 Tempra er leiðandi íslenskur framleiðandi á vörum úr EPS, efninu sem flestir þekkja einfaldlega sem frauðplast. Starfsemi fyrirtækisins skiptist í tvo meginhluta: umbúðir fyrir ferskfiskútflutning og einangrun fyrir byggingariðnað. Það er líklega ekki margt sem sameinar ferskan íslenskan fisk á leið til útlanda, gólfhita í fjölbýlishúsi og grasþak á nýbyggingu. Svarið gæti þó leynst í verksmiðju Tempru þar sem hráefni á stærð við sykurkorn er „poppað“ upp og breytt í allt frá fiskikössum yfir í einangrun fyrir íslensk hús.
Tempra er leiðandi íslenskur framleiðandi á vörum úr EPS, efninu sem flestir þekkja einfaldlega sem frauðplast. Starfsemin skiptist í tvo meginhluta: umbúðir fyrir ferskfiskútflutning og einangrun fyrir byggingariðnað. Þótt vörurnar séu ólíkar eiga þær ýmislegt sameiginlegt. Þær þurfa að einangra vel, standast miklar kröfur og, ekki síst, vera tilbúnar þegar viðskiptavinurinn þarf á þeim að halda. Björn Sverrisson er markaðsstjóri Tempru. „Við erum að framleiða umbúðir utan um fersk matvæli sem þurfa alltaf að uppfylla ákveðnar gæðakröfur. Þjónustustigið skiptir líka gríðarlega miklu máli vegna þess að útflutningur á ferskum fiski er mjög tímaháð starfsemi,“ segir Björn Sverrisson, markaðsstjóri Tempru. Risastór poppvél EPS er skammstöfun fyrir expanded polystyrene. Ýmis íslensk heiti hafa verið reynd í gegnum tíðina og eitt þeirra er þanplast. Það náði þó aldrei almennilega flugi og flestir Íslendingar tala einfaldlega um frauðplast. „Við erum að tala um þetta hvíta frauð sem fólk kannast við. Efnið er um 98 prósent loft og hefur mjög góða einangrunareiginleika. Það er meðal annars notað undir botnplötur, innan á veggi, utan á útveggi og ofan á þök. Síðan framleiðum við úr því umbúðir og fiskikassarnir eru þar langstærsti hlutinn hjá okkur,“ segir Björn. Framleiðsluferlið er kannski ekki alveg eins og fólk ímyndar sér þegar það sér fullbúinn fiskikassa. Hráefnið, pólýstýren, kemur til Tempru í örsmáum kúlum sem eru aðeins stærri en sykurkorn. Þjónustustigið skiptir líka gríðarlega miklu máli vegna þess að útflutningur á ferskum fiski er mjög tímaháð starfsemi. „Kúlurnar fara í gegnum svokallaðan forþenjara þar sem þær eru hitaðar með gufu. Til einföldunar má eiginlega segja að þetta sé eins og risastór poppvél. Við poppum kúlurnar upp með hita og gufu,“ segir Björn. Eftir það tekur við þurrkun og efnið fer í síló áður en það er mótað í viðkomandi vöru. Í umbúðaframleiðslunni eru notuð sérstök kassamót en í einangrunarframleiðslunni er búinn til stór frauðplastkubbur sem síðan er skorinn niður í plötur eftir þeim stærðum og þykktum sem þörf er á. Fiskurinn má ekki bíða Stærstu viðskiptavinir Tempru koma úr sjávarútvegi og byggingariðnaði og fyrirtækið er stærst á sínum mörkuðum hér á landi. Þegar kemur að umbúðum fyrir ferskan fisk segir Björn erfitt að finna efni sem keppir við EPS í einangrunareiginleikum. „Það eru til aðrar lausnir og menn hafa prófað ýmislegt í gegnum tíðina. EPS ber hins vegar af þegar kemur að því að halda kælingu og einangra vel. Þar liggur einn helsti styrkur efnisins.“ En góð vara ein og sér dugar ekki. Ferskur fiskur bíður ekki þolinmóður eftir umbúðunum sínum og þar kemur staðsetning framleiðslunnar og þjónusta Tempru sterkt inn. Við leggjum mikla áherslu á að þjónusta viðskiptavini hratt, vel og örugglega. „Þeir sem flytja út ferskan fisk, hvort sem það er lax eða hvítfiskur, þurfa að fá umbúðirnar sínar á réttum tíma. Þetta er rekstur sem þolir enga bið. Hver dagur sem menn fá ekki umbúðirnar getur þýtt tapaða sölu.“ Sama hugsun á við í byggingariðnaðinum. Tafir á byggingarstað geta fljótt orðið kostnaðarsamar og því skiptir miklu að geta brugðist hratt við pöntunum. „Hver dagur á byggingarstað er mjög dýr. Við erum því nánast alltaf að eiga við stuttan afgreiðslutíma og afgreiðsluhraðinn er mjög mikilvægur. Við leggjum mikla áherslu á að þjónusta viðskiptavini hratt, vel og örugglega.“ Róbótar taka þátt í vinnunni Þegar Björn er spurður hvað Tempra hafi helst fram yfir sambærileg fyrirtæki nefnir hann tvennt: reynslu og hátt tæknistig. Í verksmiðjunni hefur sjálfvirknivæðingin aukist jafnt og þétt gegnum árin. Þar eru tólf umbúðavélar og sautján þjarkar sem meðal annars aðstoða við áprentun og stöflun. Umbúðaframleiðslan gengur allan sólarhringinn að lágmarki fimm daga vikunnar. „Þegar ég tala um hátt tæknistig á ég meðal annars við mikla sjálfvirkni í verksmiðjunni. Þetta er mjög sjálfvirk framleiðsla og við erum með mikið af róbótum. Það gerir okkur kleift að framleiða hratt og bregðast vel við þörfum viðskiptavinanna.“ Starfsmenn Tempru eru að jafnaði um 30 og verksmiðjuhúsnæðið um 3.500 fermetrar. Þar af tekur lagerinn um 1.500 fermetra. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að vara sem er 98 prósent loft kalli á töluvert geymslupláss. Frá fiskikössum yfir í Lego-hús Þótt fiskikassar og hefðbundin húsaeinangrun séu fyrirferðarmikill hluti starfseminnar er vöruframboðið mun fjölbreyttara. Tempra flytur meðal annars inn ýmiss konar umbúðalausnir fyrir sjávarútveg, svo sem poka, filmur, límbönd og strekkifilmur. Í byggingarhlutanum er meðal annars boðið upp á XPS-einangrun, einangrun fyrir gólf og gólfhita, hljóðeinangrun milli hæða í fjölbýlishúsum og ýmsa fylgihluti. Einn sá hluti starfseminnar sem vex hvað hraðast eru svokölluð kubbahús. „Þau virka svolítið eins og Lego,“ segir Björn. Þar eru einangrandi kubbar settir saman og mynda hluta af byggingarkerfinu. Þetta er eitt dæmi um hvernig notkun einangrunarefna hefur þróast langt út fyrir hina hefðbundnu einangrunarplötu. Tempra hyggst halda áfram á þeirri braut. Á næstu misserum er ætlunin að fjölga bæði umbúðalausnum fyrir sjávarútveg og einangrunarlausnum fyrir byggingariðnað. Misskilningur um frauðplast Eitt er þó sérstaklega mikilvægt fyrir Björn að komi fram þegar rætt er um frauðplast: Efnið er endurvinnanlegt. Hann segir enn nokkuð útbreiddan misskilning um að notað frauðplast eigi sér enga aðra leið en í urðun. Raunin sé önnur. „Frauðplastið er 100 prósent endurvinnanlegt. Það á við um kassana, húseiningarnar og í raun vörur úr frauðplasti almennt. Það er hægt að endurvinna efnið og nota það aftur í alls konar vörur.“ Þróunin hefur verið hröð á þessu sviði og bendir Björn meðal annars á XPS-einangrun sem Tempra flytur inn og er notuð á þök. Þar er meira en helmingur efnisins endurunnið hráefni. „Endurvinnsluhlutfall frauðplasts er orðið mjög hátt víða í Evrópu og hér heima hefur líka orðið mikil breyting. Sorpa flokkar frauðplast sérstaklega og endurvinnsluaðilar eru komnir með það í sérstakan endurvinnslufarveg.“ Framleitt fyrir íslenskan markað Öll framleiðsla Tempru er seld innanlands. Ástæðan er ekki skortur á áhuga erlendis heldur einfaldlega eðli vörunnar. Þegar varan er að langmestu leyti loft verður flutningskostnaður fljótt stór hluti af dæminu. „Flutningskostnaðurinn er það hár að útflutningur borgar sig einfaldlega ekki. Þetta virkar líka í hina áttina. Það er ekki hagkvæmt að flytja þessar vörur langar vegalengdir til Íslands.“ Frauðplastið er 100 prósent endurvinnanlegt. Þess vegna skiptir öflug innlend framleiðsla máli, ekki síst þegar viðskiptavinirnir starfa í atvinnugreinum þar sem tíminn er bókstaflega peningar. Hvort sem um er að ræða ferskan fisk sem þarf að komast sem fyrst á erlendan markað eða byggingarframkvæmd þar sem menn bíða eftir einangrun er markmiðið því hið sama. „Þjónustan er einn af okkar helstu styrkleikum,“ segir Björn. „Við þurfum að geta brugðist hratt við og tryggt að viðskiptavinurinn fái það sem hann þarf þegar hann þarf á því að halda.“
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Viðskipti innlent Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira